Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 16
19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Ég er nú á síðustu önninni í námi í mínu í Kennaraháskóla
Íslands en þar er ég að læra að verða leikskólakennari,“ segir
Haraldur Freyr en hann er þekktastur fyrir að tromma í rokk-
hljómsveitinni Botnleðju, sem nú er að byrja að nýju eftir hlé.
Haraldur hefur komið víða við en að undanförnu hefur hann
starfað við dagskrárgerð í sjónvarpi. „Ég er nýbúinn að ljúka upp-
tökum á spurningaþáttum um Eurovision-söngvakeppnina en
ég og Heiða í Unun, eins og hún er oftast kölluð, stjórnum þeim
þáttum. Það var virkilega gaman að vinna við þessa þætti og við
hlógum mikið meðan á upptökum stóð.“
Hljómsveitin Botnleðja hefur ekki verið mikið starfandi upp
á síðkastið en bassaleikari sveitarinnar hefur búið í Barcelona á
Spáni síðustu mánuði. Haraldur Freyr segir hljómsveitina hvergi
nærri hætta og segir þá félaga ætla að byrja upptökur á nýjum
diski hið fyrsta. „Við munum koma saman á næstunni og þar
mun ég auðvitað slá í takt á trommunum. Við eigum mikið
efni núna sem við ætlum að taka upp sem fyrst. Það verður
kærkomið að byrja aftur eftir langt hlé og ég er viss um að við
munum koma frá okkur skemmtilegu efni.“
Haraldur Freyr er mikill áhugamaður
um fótbolta og spilar hann einu sinni í
viku í Reiðhöllinni, með félögum sínum.
Hann er mikill stuðningsmaður FH í
íslenska fótboltanum og er einn af aðal-
mönnum Hafnarfjarðarmafíunnar svoköll-
uðu, sem lætur vel í sér heyra á leikj-
um FH í Landsbankadeildinni. „Mér líst
ágætlega á FH-liðið fyrir næsta tímabil
en er þó hóflega bjartsýnni. Það er
erfitt að halda liði á toppnum ár eftir
ár. FH hefur orðið Íslandsmeistari í tvö
ár í röð og það er alveg ljóst að FH þarf
að hafa mikið fyrir því að vinna næsta
sumar.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HARALDUR FREYR GÍSLASON TROMMULEIKARI OG NEMI
Botnleðja byrjar að nýju af krafti
Unnið er að niðurrifi verksmiðju-
húsnæðis Lýsis við Grandaveg
í Reykjavík. Húsið var reist í
kringum 1940 og hýsti megin-
starfsemi Lýsis allar götur þar til
í fyrra er flutt var í nýtt húsnæði
í Örfirisey.
Í grennd við Lýsi, ofar við
Grandaveginn, var um árabil fisk-
verkun á vegum Bæjarútgerðar
Reykjavíkur. Þau hús voru rifin
fyrir um tuttugu árum og íbúðir
byggðar í staðinn. Síðan þá hefur
Lýsi staðið eitt og yfirgefið í tún-
fæti íbúðahverfis, við hlið húss
Jóns Loftssonar þar sem nokkrar
verslanir eru.
Íslenskir aðalverktakar keyptu
lóðina af Lýsi og er fyrirhugað
að á henni rísi þjónustuíbúðir
fyrir aldraða en að því verk-
efni koma Reykjavíkurborg og
Seltjarnarnes.
LÝSI VIÐ GRANDAVEG RIFIÐ Bygging þjón-
ustuíbúða fyrir aldraða rís á lóðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Áratuga gamalt verksmiðjuhúsnæði víkur fyrir hjúkrunarheimili fyrir aldraða:
Lýsi jafnað við jörðu
Keppir hann með
bolta?
„Garcia má fara að æfa með
okkur á allra næstu dögum,
hann fær að æfa með bolta
sem hann hefur ekki getað
gert að undanförnu.“
EINAR ÞORVARÐARSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI HSÍ, UM
LANDSLIÐSMANNINN GARCIA, NÍU
DÖGUM FYRIR EM. MORGUN-
BLAÐIÐ.
Hefur þetta ekki
heyrst áður?
„Það er nokkuð ljóst að
framgangurinn á þessu var
ekki með þeim hætti sem
hann hefði átt að vera.“
BERGUR ELÍAS ÁGÚSTSSON
BÆJARSTJÓRI Í VESTMANNAEYJUM
UM VEÐSETNINGU VATNSTANKA
BÆJARINS. FRÉTTABLAÐIÐ.
„Ég er nú ekki sjálfstæðiskona en
auðvitað finnst mér agalegt að heyra
að konur séu ekki jafn sterkar í pólitík
og karlmennirnir,“ segir Þórey Edda
Elísdóttir stangarstökkvari um úrslit
kosninga í prófkjöri sjálfstæðismanna
í Garðabæ. Þar náði engin kona kosn-
ingu í fjögur efstu sætin.
Þórey Edda segist að vísu ekki hafa
fylgst mikið með prófkjörinu í Garða-
bæ en finnst vont að heyra að konur
séu að gefa svona mikið eftir.
Upp hefur komið sú hugmynd að
einhver karlanna í efstu sætunum gefi
sæti sitt eftir fyrir konu. Þórey Eddu líst
tæplega á þá hugmynd. „Það er erfitt
því það var jú fólkið sem valdi þetta
og kosningar eru einu sinni þannig að
meirihlutinn ræður,“ segir hún.
SJÓNARHÓLL
ENGIN KONA Í FJÓRUM EFSTU
SÆTUM Í PRÓFKJÖRI SJÁLF-
STÆÐISMANNA Í GARÐABÆ
Agalegt að
heyra
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Þorgrímur Kristmundsson,
rennismíðameistari, söngv-
ari og munnhörpuleikari
í Vinabandinu, leikur á
heimasmíðað hljóðfæri
með hljómsveitinni. Hann
smíðaði munnhörpuna sína
sjálfur og segir hljóminn í
henni mjög góðan.
„Þjóðverjar smíða heimsins
bestu munnhörpur og þær eru
gerðar úr silfri,“ segir Þorgrím-
ur sem kominn er á níræðisaldur.
Slíkar munnhörpur kosta sitt eða
um og yfir fimm hundruð þúsund
krónur. „Ég hafði ekki efni á því
og smíðaði mína því sjálfur með
hjálp fagmanna,“ segir hann.
Þorgrímur hefur smíðað þrjár
munnhörpur um ævina, þá fyrstu
úr kopar en form hennar var
ekki rétt. „Þá smíðaði ég aðra úr
kopar og hún kom ágætlega út
en hljómaði þó ekki eins og silf-
urmunnharpa. Ég vil aðeins það
besta og fékk mér því silfur enda
vil ég hafa þetta almennilegt.“
Og almennilegt er það, hljómur-
inn er mjög góður og Þorgrímur
alsæll með hljóðfærið sitt.
Hann keypti efnið frá hljóð-
færaframleiðandanum Hohner
en þar á bæ er byggt á reynsl-
unni; Hohner hefur framleitt
hljóðfæri frá 1857. „Ég keypti
raddplöturnar og fjaðrirnar og
setti munnhörpuna saman. Þetta
er mikið nákvæmnisverk og það
má bara skeika hundraðasta
parti úr millimetra svo hljóm-
urinn verði ekki falskur,“ segir
Þorgrímur sem vitaskuld byggði
á menntun sinni og kunnáttu
þegar hann setti munnhörpuna
saman. Rennismíðameistari til
áratuga kann jú ýmislegt fyrir
sér.
Þorgrímur er músíkalskur
og hefur leikið á munnhörpu frá
blautu barnsbeini. Hann lék líka
á harmoniku og var að eigin sögn
með harmonikudellu en seldi
nikkuna sína til að fjármagna
munnhörpusmíðina. Og tónlistin
er líf og yndi Þorgríms eftir að
hann hætti að vinna. „Við í Vina-
bandinu förum vítt og breitt um
borgina og spilum fyrir eldri
borgara til að lífga upp á þá.
Það hefur verið mín aðalvinna
undanfarin ár.“ bjorn@frettabladid.is
ÞORGRÍMUR KRISTMUNDSSON MUNNHÖRPULEIKARI Fann hinn eina sanna hljóm í silfur-
munnhörpunni sinni. Hann seldi harmonikuna sína til að fjármagna munnhörpusmíðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þorgrímur í Vinabandinu smíðar
munnhörpurnar sínar sjálfur
SILFURMUNNHARPAN Nýtt út úr búð kostar
svona hljóðfæri um hálfa milljón króna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FEIMIN EN FARIN AÐ VENJAST SVIÐSLJÓSIN
UI I I I I
ÍSDROTTNINGIN DORRIT
Í VIÐTALI VIÐ TIMES
Djásn
og dýrmæti
Íslendinga