Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 19. janúar 2006 25
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.137 -1,87% Fjöldi viðskipta: 1.150
Velta: 9.193 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 55,00 -2,90% ... Atorka 6,65 -3,60% ... Bakkavör 54,20
-3,20% ... Dagsbrún 5,76 -0,90% ... FL Group 22,40 -3,00% ... Flaga 4,20 -0,20% ... Íslandsbanki
20,20 -3,40% ... KB banki 835,00 -0,60% ... Kögun 65,80 -1,90% ... Landsbankinn 27,80 -2,10%
... Marel 70,00 -1,30% ... Mosaic Fashions 18,00 -2,70% ... SÍF 4,12 -0,70% ... Straumur-Burðarás
18,00 -1,60% ... Össur 111,00 -1,80%
MESTA HÆKKUN
Atlantic Petroleum +34,56%
MESTA LÆKKUN
Atorka -3,62%
Bakkavör -3,21%
FL Group -3,03%
Umsjón: nánar á visir.is
Ný
tt!
+ Staðgreiðsluverð
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til allt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu-
dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu.
– HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
Spurðu um ENNE
M
M
/
S
ÍA
Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000
Hlutabréf í Kauphöllinni lækkuðu
þó nokkuð í gær í kjölfar mark-
aðshruns á verðbréfamarkaðnum
í Tokýó. Þannig hafði úrvalsvísi-
talan lækkað um tæp fjögur pró-
sent klukkustundu eftir opnun
markaða en þá tók lækkunin að
ganga til baka.
Mest lækkuðu bréf í FL Group
eða um 3,5 prósent. Eina félagið
sem hækkaði að ráði var Atlantic
Petroleum sem stökk upp um 20
prósent.
Úrvalsvísitalan stóð í 6.253
stigum í upphafi dags en lækkaði
um meira en 200 stig þar til hún
tók að rétta sig við á nýjan leik.
Um hádegisbil nam gildi hennar
6.130 stigum.
„Eðlilegt er að tala um leið-
réttingu þar sem hækkanir hafa
verið nær látlausar frá áramót-
um. Vísitalan hafði hækkað um
þrettán prósent frá áramótum og
því er ekki ólíklegt að fjárfest-
ar hafi tekið út hagnað,“ segir
Greining Íslandsbanka um dag-
inn í gær.
Þetta var aðeins í annað skipt-
ið á árinu sem vísitalan lækkar á
milli daga.
- eþa
Leiðrétting í Kauphöllinni
Atorka hefur eignast tæp 97 pró-
sent hlutabréfa í Jarðborunum en
yfirtökutilboði fyrrnefnda félags-
ins í það síðarnefnda lauk á mánu-
daginn. Atkvæðisréttur Atorku er
meiri en sem nemur eignarhlutn-
um vegna eigin bréfa Jarðborana.
Stjórn Jarðborana mun innan
skamms óska eftir því við Kauphöll
Íslands að félagið verði afskráð.
- eþa
Atorka eignast
Jarðboranir
Stjórn Samtaka atvinnulífsins
hefur ákveðið að ráða Vilhjálm
Egilsson í stöðu framkvæmda-
stjóra samtak-
anna, í stað Ara
Edwald sem
senn tekur við
stöðu forstjóra
365 miðla.
Vilhjálmur,
sem er með
d o k t o r s p r ó f
í hagfræði,
hefur gegnt
stöðu ráðu-
neytisstjóra í
sjávarútvegs-
r á ð u n e y t i nu
frá ársbyrjun
2004. Áður starfaði hann meðal
annars fyrir Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn á árunum 2003-2004, sem
framkvæmdastjóri Verzlunarráðs
Íslands á árunum 1987-2003, sat á
Alþingi á árunum 1991-2003 og
starfaði hjá Vinnuveitendasam-
bandi Íslands, eins af forverum
Samtaka atvinnulífsins, á árunum
1982-1987. - hh
Vilhjálmur
Egilsson til SA
VILHJÁLMUR EGILSSON
NÝR FRAMKVÆMDA-
STJÓRI SAMTAKA
ATVINNULÍFSINS.
HLUTABRÉF LÆKKUÐU Eftir miklar hækkanir
undanfarið lækkuðu hlutabréf eftir fréttir af
hruni í Japan.
Íslensk erfðagreining hefur
keypt líftæknifyrirtækið Urði
Verðandi Skuld af Iceland Gen-
omics Corporation Inc. á sem
nemur 350 milljónum íslenskra
króna. Kaupverðið var greitt með
hlutabréfum í deCODE genetics,
en þau nema um einu prósenti af
heildarfjölda hluta í deCODE.
Greint var frá kaupunum í
gær en markmiðið með þeim er
sagt vera að efla rannsóknir á
erfðafræði krabbameina sem
vonast er til að leiði til aukins
skilnings á líffræðilegum orsök-
um þeirra og nýrra aðferða til
að greina og meðhöndla krabba-
mein. - óká
DeCode
kaupir UVS
Tölur miðast við 14:51