Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 12
12 19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
�����������������������������
��������
������������������
�������������������
���������������
������������������
���������
�
��������
����
TILLÖGUR UM JARÐGÖNG MILLI ÍSAFJARÐAR OG BOLUNGARVÍKUR
Steinþór Bragason verkfræðingur kynnti eftirfarandi tillögur á fundi íbúa og sveitarstjórnar-
manna við norðanvert Ísafjarðardjúp.
Lengd í Áætlaður kostn-
Tillaga kílómetrum aður í milljörðum
1. Gegnum Óshyrnu í fyrsta áfanga, nyrsti áfanginn,
og síðar tvenn önnur göng um Óshlíð í áföngum* 1,2 1,0
2. Frá Skarfaskeri við Hnífsdal að Fremriós við Bolungarvík 5,7 3,4
3. Úr Hnífsdal í Syðridal 2,3 2,2
4. Úr Múlalandi í Syðridal 6,0 3,6
5. Úr Tungudal í Syðridal 5,3 3,1
6. Úr Syðridal að Gatnamótum Suðureyrar-
og Flateyrarafleggjara í Vestfjarðargöngum 6,1 3,9
7. Úr Syðridal að Suðureyrarafleggjara í Vestfjarðargöngum 5,2 3,2
* Sú tillaga sem Vegagerðin er að kanna. Lengd og kostnaður m.v. 1. áfanga.
SAMGÖNGUR Íbúar og sveitar-
stjórnarmenn sem sátu fund í
Bolungarvík á laugardag um sam-
göngur milli þéttbýlisstaða á norð-
anverðum Vestfjörðum skoruðu á
samgönguyfirvöld, þingmenn og
ráðherra að beita sér fyrir því með
öllum ráðum að tryggja varanlega
lausn í samgöngumálum á svæð-
inu. Í ályktun fundarins segir að
tryggja verði öruggar samgöngur
milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur
og svo milli Ísafjarðar og Súða-
víkur svo líta megi á svæðið sem
heildstætt atvinnu- og þjónustu-
svæði.
Fyrirhugað var að Sturla Böðv-
arsson yrði viðstaddur en af því
varð ekki þar sem ekki var hægt
að lenda á Ísafjarðarflugvelli.
Ríkisstjórnin samþykkti í
september síðastliðnum að Vega-
gerðin skyldi hefja undirbúning
að jarðgangagerð í janúar, það er
að segja í þessum mánuði, svo að
framkvæmdir gætu hafist næsta
haust. Í tillögunni fellst að gerð
verði 1.220 metra löng göng milli
Einbúa og Hrafnakletta, eða
gegnum Óshyrnu, og síðar verði
hugsanlega bætt við fleirum
göngum á leiðinni. Harpa Gríms-
dóttir, forstöðumaður Snjóflóða-
setursins á Ísafirði, kynnti nið-
urstöðu skýrslu sem hún hefur
unnið en þar kemur fram að fyr-
irhuguð göng gegnum Óshyrnu
tækju aðeins 60 prósent af áhætt-
unni sem fylgir því að aka þessa
leið daglega.
„Það sem nær allir voru sam-
mála um á þessum fundi var að
þeir vildu heildræna lausn en
ekki margar skyndilausnir,“ segir
Pálína Vagnsdóttir sem fer fyrir
hópi áhugafólks um málefnið. Um
1500 hafa skrifað undir þá kröfu
hópsins um að ein göng verði lögð
frá Syðridal við Bolungarvík og í
Vestfjarðargöng.
Steinþór Bragason, verkfræð-
ingur og áhugamaður um bætt-
ar samgöngur á svæðinu, kynnti
nokkrar jarðgangatillögur á fund-
inum en hafði einnig í farteskinu
skóflu með vestfjarðakjálkann
útskorinn á skóflublaðið en hann
hugðist gefa samgönguráðherra
gripinn til að halda honum við
efnið.
Vegagerðin hóf í þessum
mánuði rannsóknir á berginu
við Óshlíð vegna fyrirhugaðrar
gangagerðar. jse@frettabladid.is
Vilja göngin
frá Syðridal
Fyrirhuguð gangagerð um Óshyrnu minnkar áhætt-
una við að aka til Bolungarvíkur um 60 prósent.
Heimamenn krefja yfirvöld um heildarlausn.
DANMÖRK Danskur læknir á fang-
elsisdóm yfir höfði sér fyrir að
hafa í maí 2004 gengið fram hjá
meðvitundarlausum og deyjandi
manni á götu, að sögn Berlingske
Tidende. Maðurinn fékk hjarta-
áfall sem dró hann til dauða.
Þetta er í fyrsta sinn sem réttað
er í máli sem þessu, en samkvæmt
dönskum lögum ber öllum dönsk-
um borgurum skylda til að hjálpa
til eftir fremsta megni komi þeir
að einhverjum í lífshættu. Málið
er talið alvarlegra þar sem hinn
ákærði er læknir.
Verði læknirinn fundinn sekur
á hann yfir höfði sér allt að tveggja
ára fangelsisdóm. ■
Mál gegn dönskum lækni:
Sinnti ekki
hjartveikum
DANMÖRK Íbúasamtök Kristjaníu
í Kaupmannahöfn íhuga máls-
höfðun á hendur ríkinu í kjölfar
ákvörðunar um framtíðarskipulag
svæðisins. Hluti núverandi byggð-
ar stendur á gömlum virkisgarði
sem yfirvöld hyggjast endurreisa.
Því þarf að rífa eða flytja fimmtíu
og þrjú hús á svæðinu. Aðrir íbúar
svæðisins fá að búa áfram í húsum
sínum næstu 18 mánuði en þurfa
að þeim tíma loknum að greiða
leigu. Íbúum Kristjaníu var kynnt
þessi ákvörðun stuttu fyrir jól.
Íbúar „fríríkisins“ Kristjaníu
hyggjast stefna ríkinu vegna
þessarar ákvörðunar að sögn
talsmanns þeirra í dagblaðinu
Politiken. Segir hann að fyrirvar-
inn sé of skammur og ekki liggi
fyrir hvernig málum verði hátt-
að í framtíðinni. Til dæmis hafi
ekkert komið fram um hversu há
leigan verði eða hverjum verði
heimilt að búa á svæðinu.
Í júní 2004 náðist þverpólitísk
samstaða fyrir því á danska þing-
inu að breyta skipulagi byggðar-
innar í Kristjaníu. - ks
Íbúar Kristjaníu ætla að stefna danska ríkinu:
Fimmtíu hús rifin
KRISTJANÍA Íbúarnir telja fyrirvarann of
skamman og ekki komi fram hverjir megi
búa á svæðinu.
FÓLKSFJÖLDI Íbúar í Reykjavík eru
nú af tæplega 120 mismunandi
þjóðernum samkvæmt tölum
Hagstofunnar og segir það sína
sögu um þær breytingar sem átt
hafa sér stað í margbreytileika
íslensks samfélags á undanförn-
um árum.
Langflestir eru með íslenskt
ríkisfang en Pólverjar eru
næstfjölmennastir eða um 430.
Filippseyingar eru þriðji fjöl-
mennasti hópurinn eða um 400
manns, þar næst koma Danir
sem eru um 370. Um 330 manns í
Reykjavík koma frá ríkjum fyrr-
um Júgúslavíu og Bandaríkja-
menn losa rétt um 300 manns.
Síðan koma Taílendingar sem
eru um 270, Litháar sem eru um
250, Þjóðverjar eru ríflega 200
og Víetnamar eru sömuleiðis um
200 manns.
Í mörgum tilfellum eru ekki
margir einstaklingar að baki
hverju þjóðerni, þannig eru þeir
þjóðernishópar sem tíu eða færri
teljast til alls um helmingur
heildarfjöldans eða um 60. Og
þar af eru þeir sem einungis einn
tilheyrir um 20.
Til samanburðar við þessar
tölur eru Kópavogsbúar alls af
rúmlega 60 mismunandi þjóðern-
um og Akureyringar af um 40.
- ssal
Fjölbreytileiki íslensks samfélags fer vaxandi:
Þjóðerni í Reykjavík um 120
FRÁ FUNDI UM INNFLYTJENDAMÁL Í
ALÞJÓÐAHÚSI Samsetning íslensk samfé-
lags verður æ fjölbreyttari og nú eru íbúar
Reykjavíkur alls af um 120 mismunandi
þjóðernum.