Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 26
[ ]
20%-80%
Hlíðarsmára 11 • Kóp • S: 517 6460 • Laugavegur 66, 2. hæð • S: 578 6460
Opið mán. - fös. 11-18, lau. 11-15 • www.belladonna.is
T í s k u v ö r u v e r s l u n i n
Útsalan
í fullum gangi
Erum að taka upp nýjar vörur
Tryne buxurnar
komnar
G l æ s i b æ • S í m i 5 8 8 4 8 4 8
Útsölustaðir: apótek og snyrtivöruverslanir.
Fáðu þínar eigin
neglur sterkari með
Trind Naglastyrkinum.
Nú kaupauki 4,5 ml Nail Balsam fylgir
er flutt á Laugaveg 56.
Útsala og fjöldi opnunartilboða!
Verið velkomin.
Laugaveg 56.
Góðir skór eru málið núna. Það er ekkert sniðugt að
vera í þunnum strigaskóm, sama hversu flottir þeir eru,
þegar allt er á kafi í snjó eða slabbi.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir er búin
að vera í Edinborg síðan í byrjun
desember þar sem sambýlismaður
hennar spilar fótbolta. Hún segir
að í Edinborg séu margar flottar
verslanir en íslenskar verslanir
séu samt almennt flottari.
Ásdís hefur gaman af því að
versla í Edinborg. „Það er alveg
haugur af búðum hérna og mjög
auðvelt að versla. Það er bæði
ódýrara hérna en heima og meira
úrval,“ segir hún. Ásdís segir samt
að íslenskar verslanir fylgi tískunni
betur en verslanirnar í Edinborg.
„Ísland er þróaðara í tískunni. Það
er hægt að finna búðir hérna sem
eru komnar alveg jafn langt og búð-
irnar heima eða lengra í tískunni.
Þessar venjulegu búðir á aðalversl-
unargötunni hérna eru hins vegar
ekki jafn flottar og búðirnar á
Íslandi.“ Ásdís segir að Íslendingar
hafi mikinn metnað þegar kemur
að tísku. „Þegar maður er í öðrum
löndum sér maður einn og einn
sem er vel klæddur en heima eru
flest allir flott klæddir. Það pæla
allir í útlitinu heima en það er ekki
svoleiðis hérna.“
Ásdís finnur samt alltaf eitt-
hvað sem henni líkar. „Ég keypti
mér til dæmis bleika retróskyrtu
og stígvél í gær. Skyrtan er mjög
töff og stígvélin eru há og svört og
brett niður að ofan,“ segir hún.
Það sem Ásdís segir að sé
ómissandi í fataskápinn þessa dag-
ana eru hlýrabolir. „Það er gott að
eiga hlýraboli í alls konar litum og
gerðum. Ég nota hlýraboli rosa-
lega mikið innan undir annað og
með öðru og þarf að eiga alveg tíu
stykki.“
Ásdís er líka mjög hrif-
in af höfuðfötum, treflum og
vettlingum. „Ég á alveg lager af
þessu öllu svo ég get auðveldlega
skipt um stíl. Það er mjög gott að
eiga einhverja flotta svarta kápu
sem gengur bæði spari og hvers-
dags og breyta svo til með því að
nota mismunandi höfuðföt eða
trefla og vettlinga.“
emilia@frettabladid.is
Allir flottir á Íslandi
Ásdís Rán segir að verslanir á Íslandi séu almennt flottari en verslanir í Edinborg.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM