Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 4
4 19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
Atkvæðagreiðsla hafin Utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla í annarri umferð
forsetakosninganna í Finnlandi hófst í
gær og stendur hún í viku. Kosningarnar
fara fram þarnæsta sunnudag.
FINNLAND
LANDBÚNAÐUR Svipað magn af kjöti
var framleitt hér á landi á síðasta
ári og árið á undan samkvæmt
bráðabirgðatölum Bændasamtaka
Íslands.
Heildarsala jókst þó lítillega, um
2,8 prósent, sem svarar til að hver
íbúi landsins hafi innbyrt tæplega
80 kíló af kjöti. Var lambakjötið vin-
sælast sem fyrr en sala á alifugla-
kjöti jókst um tæp fimmtán prósent
og seldist næstmest. Samdráttur
varð í sölu á svína- og nautakjöti.
- aöe
KJÖTVÖRUR SELJAST VEL Hver Íslendingur
innbyrti um 80 kíló af kjöti á síðasta ári.
Kjötneysla Íslendinga eykst:
Lambakjötið
vinsælast
KJARAMÁL Trúnaðarmenn á leik-
skólum Kópavogs hafa skorað
á bæjaryfirvöld í Kópavogi að
umbuna starfsmönnum leikskóla
sinna fyrir vel unnin störf.
Er farið fram á að launakjör
þeirra verði leiðrétt á fyrirhug-
aðri launamálaráðstefnu sveitar-
félaganna á föstudaginn kemur
með þeim hætti að eftirsóknar-
vert verði á ný að starfa í leikskól-
um bæjarins. - aöe
Leikskólakennarar í Kópavogi:
Skorað á
bæjarstjórn
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 18.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 61,28 61,58
Sterlingspund 108,35 108,87
Evra 74,26 74,68
Dönsk króna 9,953 10,011
Norsk króna 9,145 9,199
Sænsk króna 7,953 7,999
Japanskt jen 0,5322 0,5354
SDR 88,9 89,42
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
103,9022
STJÓRNMÁL Engin gögn um afstöðu
ESA, eftirlitsstofnunar EFTA,
hafa verið lögð fram á Alþingi
með frumvarpi um breytingar á
rekstrarformi Ríkisútvarpsins.
Mörður Árnason, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, sagði
við upphaf þingfundar í gær að
menntamálanefnd Alþingis hefði
ekki fengið aðgang að samskipt-
um menntamála- og fjármála-
ráðuneytisins við ESA varðandi
rekstrarform Ríkisútvarpsins
þrátt fyrir að hafa beðið um þau
margoft.
„Ég tel að ekki sé hægt að ræða
málið nema fá gögnin í hendur,“
sagði Mörður.
Nokkrir þingmenn tóku undir
kröfu Marðar. Kolbrún Hall-
dórsdóttir, hjá vinstri grænum,
sagði það tortryggilegt að liggja
á gögnunum. Þingmenn yrðu að
geta metið málefni Ríkisútvarps-
ins á sömu forsendum og ríkis-
stjórnin.
Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
og formaður menntamálanefnd-
ar, kvaðst einnig hafa beðið um
gögnin fyrir hönd nefndarinn-
ar. Fundur hefði verið í vikunni
hjá ESA þar sem málefni Rík-
isútvarpsins hefðu verið rædd.
„Þessi gögn berast og það fyrr en
síðar,“ sagði Sigurður Kári. - jh
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON, FORMAÐ-
UR MENNTAMÁLANEFNDAR Hann hefur
einnig beðið um gögnin og segir þau
berast von bráðar.
Alþingismenn fá ekki enn gögn eftirlitsstofnunar EFTA um Ríkisútvarpið:
Skortir gögn með frumvarpi
SLYSFARIR „Mér líður furðu
vel þessa stundina, miðað við
aðstæður,“ sagði Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs, þar sem hann lá á hjarta-
og lungnaskurðdeild Landspítal-
ans við Hringbraut í gær.
Steingrímur braut þrettán rif-
bein og viðbein að auki í bílslys-
inu við Húnaver og eru áverkarn-
ir sérstaklega alvarlegir vinstra
megin á brjóstholi. Hann telur
sig heppinn að hafa sloppið eins
vel og raun
ber vitni. „Ég
held að það sé
lán í óláni að
ég eyðilagði
ekki mikil-
væg líffæri í
slysinu. Það
hefur eflaust
hjálpað eitt-
hvað til að ég
var ágætlega
á mig kominn
líkamlega.“
Tómas Guðbjartsson, læknir
á Landspítalanum, segir líðan
Steingríms vera eftir atvikum
góða. „Steingrímur ber sig vel.
Miðað við aðstæður held ég að
hann hafi sloppið vel frá slysinu.“
Umfangsmikil björgunarað-
gerð lögreglu, á Sauðárkróki og
Blönduósi, og Landhelgisgæsl-
unnar heppnaðist vel og sagðist
Steingrímur þakklátur öllu því
fólki sem að björguninni kom.
„Ég vil fá að nota tækifærið og
þakka öllum þeim sem hjálpuðu
til við björgunina. Allt frá starfs-
manni Neyðarlínunnar sem tal-
aði við mig meðan ég var hálf
utangátta og vöruflutningabíl-
stjóranum sem var fyrsti maður
á slysstað, til allra þeirra sem að
sjúkraflutningum og læknastörf-
um komu.“
Steingrímur sagðist alltaf
hafa það að reglu að vera vel
búinn þegar hann keyrir lands-
hluta á milli. „Á þeim 35 árum
sem ég hef verið bílstjóri hef ég
aldrei lent í tjóni sem trygging-
arfélag hefur þurft að bæta. Ég
hef alltaf reynt að vera ágætlega
klæddur á meðan ég ferðast. Þótt
það sé hiti inni í bílnum þá getur
það reynst dýrkeypt að vera á
stuttermabol með funheita mið-
stöð. Ég hafði úlpu mér við hlið
í bílnum sem ég gat dregið yfir
mig. Svo var síminn skammt frá
og það skipti sköpum.“
magnush@frettabladid.is
Traustur bíll og hlý föt
björguðu Steingrími J.
Steingrímur J. Sigfússon bar sig vel í gær þrátt fyrir að vera með þrettán brotin rifbein. Steingrímur var á
vel búnum bíl og í hlýjum fatnaði sem hann segir hafa skipt sköpum.
BJÖRGUN „Aðkoman að slysinu
var nú ekki falleg. Steingrímur
var mikið slasaður og ég reyndi
að hlúa að honum eins og ég gat,“
sagði Ragnar Páll Jónsson, vöru-
flutningabílstjóri hjá fyrirtæk-
inu Ragnari og Ásgeiri, en hann
var á norðurleið
þegar annar bíl-
stjóri stoppaði
hann og sagði
honum að huga
að bílljósum
sem sást í þar
sem Steingrím-
ur lenti út af
veginum.
Þetta er ekki
í fyrsta skipti
sem Ragnar
kemur að bíl-
slysi. „Ég hef áður komið að bíl-
slysi og reyndi því að bera mig
rétt að við aðstoðina. Lögregla
og sjúkralið komu fljótt á vett-
vang og tóku við stjórninni.“
Ragnar segist hafa gert sér
grein fyrir því að um alvar-
legt slys væri að ræða þar sem
sterkbyggð jeppabifreið Stein-
gríms var gjörónýt þegar hann
kom að. „Ég sá strax að bíllinn
var illa farinn og gerði mér
grein fyrir því að um alvarlegt
slys var að ræða. En það er gott
að vita til þess að þetta fór betur
en á horfðist í fyrstu.“
- mh
Ragnar kom að slysinu:
Aðkoman var
virkilega slæm
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Á LANDSPÍTALANUM Steingrímur bar sig vel þar sem hann lá á
Landspítalanum við Hringbraut í gær. Á myndinni sést í bókina Hesturinn sem Steingrímur
fékk að gjöf frá Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÓMAS GUÐBJARTS-
SON LÆKNIR
RAGNAR PÁLL
JÓNSSON Ragnar
kom að Stein-
grími á slysstað.
Árekstur í Garðabæ Ökumaður
kenndi smávægilegra eimsla eftir að
jeppa var ekið inn í hlið fólksbíls sem
hann ók. Óhappið varð á Víðistaðavegi í
Garðabæ í gærmorgun. Draga þurfti mik-
ið skemmdan fólksbílinn burt. Ökumenn-
irnir leituðu ekki til læknis.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Fimmtán árekstrar í Reykjavík
Fimmtán ákeyrslur og árekstrar urðu
síðasta sólarhring í Reykjavík. Lögreglan
segir það ekki meira en vanalega en
töluvert hafi verið um atvik þar sem
ökumenn hafi stungið af eftir að hafa
ekið utan í aðra bíla.
Tveir stútar undir stýri Maður á
miðjum aldri var tekinn grunaður um
ölvun við akstur á Breiðholtsbraut í
Reykjavík í gærmorgun. Var hann á leið í
áfengisverslun að sækja meira í sarpinn
þegar lögreglan stöðvaði för hans. Annar
var tekinn í fyrrinótt einnig grunaður um
ölvun við akstur.