Fréttablaðið - 19.01.2006, Side 28
[ ]
Starfsfólk Krabbameinsskrár-
innar í Skógarhlíð fer reglulega
í hádegisverð út í Norræna
húsið og skiptir út listaverkum
í leiðinni.
„Það eru mörg ár síðan við hófum
þennan sið að fara út í Norræna
húsið að fá okkur að borða og velja
okkur verk á artótekinu þar,“ segir
Kristín Björnsdóttir, einn af starfs-
mönnum krabbameinsskráningar-
innar. Hún vann áður á skrifstofu
Norræna hússins og kynntist því þá
að hægt er að leigja sér listaverk
hjá bókasafni hússins. „Þarna er
heilmikið úrval grafíkverka eftir
norræna listamenn. Maður kaupir
sér skírteini fyrir lítið fé og getur
síðan fengið fjögur listaverk út á
hvert skírteini og haft þau í tvo
mánuði. Ég kynntist því þegar ég
var í Norræna húsinu að mörg
fyrirtæki og einstaklingar nota
sér þessa þjónustu. Meðal annars
gerði ég það sjálf. Ég byrjaði svo
hér hjá Krabbameinsfélaginu 1988
og fljótlega eftir það datt mér í hug
að gaman væri fyrir okkur að prófa
þessi myndalán og þau hafa orðið
að hefð,“ segir Kristín og getur
þess að nýlega hafi skilafresturinn
verið lengdur úr tveimur upp í þrjá
mánuði. En skyldi ekki vera erfitt
fyrir hópinn að ná samkomulagi um
hvaða verk á að velja hverju sinni?
„Nei, það tekur ekki langan tíma.
Við höfum fyrst svona fimm mynd-
ir í takinu og náum alltaf góðri lend-
ingu,“ segir hún brosandi og bætir
við: „Það gerir vinnustaðinn miklu
skemmtilegri að vera alltaf með
nýja list á veggjunum til að virða
fyrir sér.“ gun@frettabladid.is
Skipta um listaverk á
veggjunum reglulega
Starfsfólk Krabbameinsskrárinnar við listaverk sem það fékk að láni hjá Norræna húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BORÐ FYR IR TVO
K R I N G L A N
ÚTSALA
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
20% AFSLÁTTUR
AF VÖLDUM VÖRUM
Í HÖGANES STELLINU
Vandaðar
og gjaf
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
Pottablóm geta lífgað upp á heimilið. Það getur verið skemmti-
legt að fjárfesta í eins og einu blómi nú þegar dagarnir eru farnir að
lengjast til þess að minna sig á að veturinn tekur enda.
Á heimasíðunni www.be-jane.
com má finna leiðbeiningar
um ýmis verk sem falla til á
heimilinu. Síðan er einföld í
notkun og kennir lesendum sín-
um hvernig best sé að bera sig
að í stórum jafnt sem smáum
framkvæmdum.
Fyrir þá sem vilja verða handlagn-
ir heimilismenn eða handlagnar
heimiliskonur ættu að skoða síðun
www.be-jane.com. Þar inni má
finna upplýsingar um í raun allt
sem viðkemur heimilinu, upplýs-
ingar um hvernig á að framkvæma
hlutina sjálfur og ýmsar ráðlegg-
ingar og almennan fróðleik.
Að síðunni standa tvær konur
sem eru báðar æði klárar í því
að laga dittinn og dattinn heima
við. Þær deila svo visku sinni til
að bjarga hjálparlausu heimilis-
fólki sem starir á pensla og skrúf-
járn án þess að vita hvað skal til
bragðs taka.
Sem dæmi um hvað má finna á
þessari síðu er að hægt er að sjá
í gegnum sýndarveruleika leið-
beiningar um hvernig á að setja
upp vask (ásamt mörgu öðru).
Auk þess að myndir rúlli sem
sýna vaskuppsetninguna að þá
heyrist í lítilli rödd sem leiðir þig
í gegnum ferlið.
Dálkurinn þeirra „do it your
self“ eða „gerðu það sjálf/sjálf-
ur“ hefur vakið miklar vinsæld-
ir. Þar svara Be Jane-stöllurnar
spurningum frá lesendum og
gefa ráð um hvernig leysa megi
ýmis vandamál sem tengjast
heimilinu á auðveldan máta. Til
dæmis mæltu þær með því að
setja smá sósulit í vatnskassann
á klósettinu gruni þig að kassinn
leki. Bíddu í rúman hálftíma eftir
að sósuliturinn er kominn í. Ef
vatnið í skálinni breytir svo um
lit þá er um leka að ræða. Svo ein-
falt er það.
Framkvæmdaglaðir ættu að
kynna sér þessa síðu, en líka þeir
sem ekkert kunna fyrir sér. ■
www.be-jane.com
bjargar málunum
Á heimasíðunni www.be-jane.com má finna leiðbeiningar um hvernig á að mála veggi
eða innréttingar. Þar má finna ráðleggingar um hvernig best er að laga ýmsar bilanir í pípu-
eða raflögnum, endurinnrétta heimilið og margt fleira.
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9