Fréttablaðið - 19.01.2006, Side 31
][
Ekki er alltaf nauðsynlegt að
ferðast langar vegalengdir eða
gista margar nætur til að eiga
gott ferðalag.
Á Stokkseyri má finna góða afþrey-
ingu, bæði til skemmtunar og fyrir
bragðlaukana. Dagsferð þangað
býður upp á marga möguleika og
Eyrarbakki er ekki langt undan.
Hægt er að byrja daginn á því
að fara í skemmtilega safnaferð á
Veiðisafnið þar sem sjá má stærsta
safn uppstoppaðra veiðidýra hér-
lendis. Safnið er lokað í janúar en
opið um helgar í febrúar.
Við Fjöruborðið er fyrir löngu
orðinn þekktur veitingastaður
enda ekki af verri endanum. Einn-
ig er á þessum slóðum Ingólfsskáli
við Ingólfsfjall en þar má fá vík-
ingastemninguna beint í æð. Betra
er að hringja á undan sér á þessa
veitingastaði til að athuga með
borðapantanir og opnunartíma.
Á Stokkseyri má einnig finna
Draugasetrið sem vakið hefur
mikla lukku.
Þeir sem vilja bíða með dags-
ferðina fram á vor geta þá bætt
við einni skemmtilegri kajakferð
á sunnlenskum vötnum eða ramm-
íslenskri hestaferð.
Dagsferð til Stokkseyrar
Við Fjöruborðið er veitingastaður á Stokkseyri sem býður upp á góðan mat eftir skemmti-
lega dagsferð um Suðurland.
Sjóstangveiði á Vestfjörðum
nýtur mikilla vinsælda og nú
þegar hefur fyrirtækið Fjord
Fishing fengið um 700 bókanir
fyrir næsta sumar.
Fyrirtækið Fjord Fishing á
Tálknafirði selur sjóstangveiði-
mönnum veiðiferðir út frá Vest-
fjörðum. Mikil ásókn hefur verið
í veiðiferðirnar og fyrir næsta
sumar hafa um 700 manns bókað
sig í ferðir frá Súðavík og Tálkna-
firði. Maí, júní og ágúst eru nú
þegar uppbókaðir.
Þykja þetta góðar fréttir fyrir
ferðaþjónustuna á Vestfjörðum
þar sem búast má við fleiri gisti-
nóttum og auknum straumi ferða-
manna. Fyrirtækið Angelreisen
frá Hamborg hefur unnið með
sveitarstjórnum á Vestfjörðum
að því að fá fleiri þýska sjóstang-
veiðimenn til Vestfjarða, en
löngum hefur reynst erfitt að fá
erlenda ferðamenn til að ferðast
svo langt vestur á land.
Sjóstangveiðin er því vítamín-
sprauta fyrir vestfirskan ferða-
iðnað og bætir enn við þá flóru
sem Íslendingar geta nýtt sér í
sumarleyfum sínum til dægra-
styttingar. Þetta er fyrsta ár Fjord
Fish og má segja að starfsemin
lofi góðu.
Sjóstangveiðin vinsæl
Ferðamenn geta nú farið í sjóstangveiði frá Súðavík og Tálknafirði á vegum Fjord Fishing.
Starfsemi fyrirtækisins fer vel af stað og hafa nú þegar borist um 700 bókanir fyrir næsta
sumar.
Ferðalög þurfa ekki endilega að vera raunveruleg. Margir hafa
gaman af því að loka augunum á þægilegum stað og ferðast í
huganum til framandi landa.
Rent.is er á leið í markaðsher-
ferð til að kynna starfsemi vefs-
ins í ferðaiðnaði víða um heim.
Á rent.is má auglýsa húsnæði til
leigu hvort sem er fyrir erlenda
eða íslenska ferðamenn.
Rent.is er heimasíða þar sem má
finna auglýsingar fyrir leiguhús-
næði bæði erlendis og innanlands.
Þar geta bæði aðilar í gistiþjónustu
auglýst starfsemi sína sem og ein-
staklingar auglýst eftir skamm-
tímaleigu víða um heim.
Guðrún Halldórsdóttir og Hanna
Lilja Valsdóttir, eigendur rent.is,
stefna á að markaðssetja síðuna
meðal ferðaþjónustuaðila víða um
heim. Báðar hafa þær starfað lengi
í ferðageiranum og ætla meðal ann-
ars að nýta sér sambönd við tengi-
liði erlendis við markaðssetning-
una. Nú þegar hafa þær komið sér í
samband við leigumiðlun á Spáni og
víða annars staðar í Evrópu. Athygl-
inni verður fyrst beint að Íslandi
og reynt verður að ná sem flestum
gistiaðilum inn á síðuna.
Guðrún segir lengi hafa vantað
vettvang fyrir aðila sem bjóða
minni gistingu eða einkagistingu til
að auglýsa starfsemi sína. „Margir
sem reka einkagistingu eða vilja
fara í slíkan rekstur vita jafnvel
ekki hvert þeir eiga að snúa sér
þegar þeir hefja starfsemi auk þess
að hafa ekki efni á að fara út í dýra
markaðssetningu,“ segir Guðrún.
„Okkur finnst hafa vantað fleiri
gistimöguleika á markaðinum, sér-
staklega á sumrin þegar hótelin
anna ekki eftirspurn.“
Á rent.is geta allir þeir sem selja
gistingu auglýst sig sér að kostn-
aðarlausu. Þetta á við þá sem vilja
leigja út sumarbústaði, íbúðir, ein-
býlishús eða herbergi og geta gisti-
heimili og bændagistingar einnig
skráð sig á vefinn ásamt fleirum.
Finnist leigjandi gegnum síðuna
verður tekin þóknun fyrir. Skilyrð-
ið er að húsnæðið sé með húsgögn-
um og að leigjandi hafi tilskilin
réttindi sem fást hjá viðkomandi
sveitarfélagi.
„Við vonumst til að rent.is verði
vettvangur, bæði fyrir innlenda
og erlenda ferðamenn, sem eru að
leita sér að skammtímaleigu,“ segir
Guðrún. „Hvort sem það er einhver
frá Akureyri sem er á leið í helgar-
ferð til Reykjavíkur eða öfugt. Eða
erlendir ferðamenn á leið til Íslands
eða Íslendingar á leið út fyrir land-
steinana.“
Vonandi auðveldar þetta smærri
gistiaðilum innkomu á ferðamark-
aðinn á Íslandi. Aukinn ferðamanna-
straumur, aukning í gistinóttum og
auknar vefbókanir ferðamanna
sýna að grundvöllur er fyrir slíkri
starfsemi. johannas@frettabladid.is
Rent.is fer í heimsreisu
Aukinn straumur ferðamanna til Íslands sýnir að nóg framboð er fyrir smærri gistiaðila til
að taka virkari þátt í ferðaiðnaðinum hérlendis.