Fréttablaðið - 19.01.2006, Síða 42
19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Aðalbjörn Jónsson
Vesturgötu 36, Keflavík,
áður til heimilis að Hólavöllum, Garði, verður jarðsung-
inn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 20. janúar kl.
14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Kristný Rósinkarsdóttir
Ester Aðalbjörnsdóttir
Guðmundur Sigurðsson
Jón Aðalbjörnsson Aldís Árnadóttir
Haraldur Aðalbjörnsson Sigrún Harðardóttir
Jakobína Aðalbjörnsdóttir Björgvin Skarphéðinsson
Rósinkar Aðalbjörnsson Ólöf Guðrún Albertsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar
og afi
Pétur Gauti Hermannsson
Holtsbúð 42, Garðabæ
lést 12. janúar. Jarðsungið verður frá Langholtskirkju
föstudaginn 20. janúar kl. 13.00.
Guðríður Sveinsdóttir
Hildur Sólveig Pétursdóttir
Erla Þuríður Pétursdóttir
Pétur Geir Magnússon
Ástrós Magnúsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
María Kristjánsdóttir
Halldórsstöðum, Bárðardal,
Lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
15. janúar. Útför hennar fer fram frá Lundarbrekku-
kirkju laugardaginn 21. janúar kl.14.00.
Þórey Ketilsdóttir Sverrir Thorstensen
María Ketilsdóttir Ágúst Hilmarsson
Kristín Ketilsdóttir Sigurður Pálsson
Sigrún Ketilsdóttir Jörg Wohner
Ingvar Ketilsson Bergljót Þorsteinsdóttir
ömmu og langömmubörn.
ÓLAFUR THORS (1892-1964)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Án þjóðfrelsis geta
Íslendingar eigi dafnað,
fremur en gróður jarðar
án yls og sólar.“
Ólafur Thors var atkvæðamikill
stjórnmálamaður. Hann gegndi
meðal annars embætti forsætis-
ráðherra árin 1942, 1944-1947,
1949-1950, 1953-1956 og 1959-
1963.
MERKISATBURÐIR
1903 Þýski togarinn Friedrich
Albert strandar á Skeiðarár-
sandi. Áhöfnin kemst öll í
land en hrekst um sandinn
í tvær vikur og þrír menn
farast.
1915 Þjóðverjar gera fyrstu loftár-
ásina á Bretland úr tveimur
Zeppelín-loftbelgjum í fyrri
heimsstyrjöldinni.
1942 Átta menn verða úti þegar
sjötíu manna sveit breskra
hermanna lendir í hrakn-
ingum í fjallgöngu á leið frá
Reyðarfirði til Eskifjarðar.
1957 Kristján Eldjárn þjóðminja-
vörður ver doktorsritgerð
sína um kuml og haugfé í
heiðnum sið á Íslandi.
1983 Gestapóforinginn Klaus Bar-
bie er handtekinn í Bólivíu.
1993 Tékkland og Slóvakía fá
inngöngu í Sameinuðu
þjóðirnar.
Á þessum degi árið 1966 var
Indira Gandhi, einkadóttir fyrsta
forsætisráðherra Indlands Jawah-
arlal Nehru, valin sem leiðtogi
Indlands. Talsverð barátta hafði
þá verið milli hennar og Morarji
Desai, fyrrverandi fjármálaráð-
herra landsins.
Mikill fjöldi fólks hafði safnast
utan við þinghúsið meðan valið
stóð yfir og fagnaði Indiru gífur-
lega þegar hún hélt á fund for-
setans. Indira hafði aðeins stað-
fest framboð sitt fjórum dögum
fyrr þegar ellefu leiðtogar sextán
fylkja Indlands höfðu látið í ljós
vilja sinn til að styðja hana.
Indira sigraði í almennum
kosningum árið 1967 og 1971.
Hún var við stjórnvölinn meðan
á deilunni við Pakistan stóð árið
1971 en árið 1975 var hún dæmd
fyrir spillingu og bannað að gegna
embætti í sex ár. Hún brást við
með því að neita að segja af sér
og lýsti fyrir neyðarástandi í land-
inu sem varði í tvö ár.
Hún tapaði fyrir gamla keppi-
naut sínum Morarji Desai í kosn-
ingum árið 1977 en tók á ný við
völdum þegar stjórn hans féll
tveimur árum síðar.
Árið 1984 fyrirskipaði hún árás
á gullna hofið í Amritsar til að reka
burt uppreisnarmenn sikha sem
börðust fyrir sjálfstæði Punjab-
héraðs. Tveimur mánuðum síðar
var hún ráðin af dögum af lífvörð-
um sínum sem voru sikhar.
ÞETTA GERÐIST > 19. JANÚAR 1966
Indira Gandhi verður leiðtogi Indlands
INDIRA GANDHI
ANDLÁT
Kjartan Guðmundur Magnús-
son, Hlíðarhjalla 56, Kópavogi,
lést á heimili sínu föstudaginn 13.
janúar.
Sigrún Pétursdóttir, Kristnibraut
83, Reykjavík, lést á Landspítal-
anum við Hringbraut föstudaginn
13. janúar.
Ásta Andersen, Garðavegi 11,
Keflavík, áður Njarðvíkurbraut
13, Innri-Njarðvík, andaðist á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 15. janúar.
Hólmfríður Héðinsdóttir,
Dalbraut 27, Akranesi, lést á
Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt
sunnudagsins 15. janúar.
Bragi Gunnarsson, Tunguseli 10,
Reykjavík, lést á Landspítala Hring-
braut mánudaginn 16. janúar.
JARÐARFARIR
11.00 Minningarathöfn um Jónu
Jakobínu Jónsdóttur,
Vogum, Mývatnssveit, Lang-
holtsvegi 139, Reykjavík,
verður í Langholtskirkju.
13.00 Sigríður Ólafsdóttir, frá
Bergvík, Lágholti 6, Mos-
fellsbæ, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju.
AFMÆLI
Einar Þór Daníelsson
knattspyrnumaður er
36 ára.
Adolf Hjörvar
Berndsen, fyrrverandi
þingmaður, er 47 ára.
Hilmar Oddsson
kvikmyndaleikstjóri er
49 ára.
Jón Gunnlaugur
Jónasson læknir er
fimmtugur.
Sigurður Rúnar Jóns-
son, Diddi fiðla, tónlist-
armaður er 56 ára.
Óttar Felix Hauksson
athafnaskáld er 56 ára.
Árni B. Tryggvason
leikari er 82 ára.
„Mér leiðist allt sem er týpískt og var
því að velta fyrir mér að bjóða góðum
vinum upp á kartöflur, soðna ýsu,
tómatsósu og tólg í kvöldmat,“ segir
Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður
sem heldur upp á 35 ára afmæli sitt í
dag. „Ég held að það sé ekki hægt að
bjóða fólki upp á neitt betra en venju-
legan íslenskan mat eins og hæfir í
janúar,“ segir Sigurður sem hefur áður
boðið í slík óvenjulega venjuleg matar-
boð. Það hafi gert góða lukku enda allir
búnir að kýla vömbina í bak og fyrir
um hátíðarnar.
Sigurður Bogi kallar sjálfan sig
örlagablaðamann enda hóf hann störf
sem blaðamaður aðeins sextán ára
gamall á bæjarblöðum í heimabyggð
sinni á Selfossi. Hann hefur starfað
síðan á ýmsum miðlum, meðal annars
Degi, Dagblaðinu og Tímanum. Síðast-
liðin tvö ár hefur Sigurður unnið sjálf-
stætt. „Ég hef verið á hliðarlínunni hjá
almannatengslafyrirtækinu Athygli,
hef skrifað fyrir Fróða, Bændablaðið,
Frjálsa verslun og hin og þessi fyrir-
tæki,“ segir Sigurður og líkar ljómandi
vel. „Það er visst frelsi sem fylgir þessu
en líka mikil ögun. Kannski er megin-
kosturinn sá að verkefnin eru ákaflega
fjölbreytt og maður veit aldrei hvað
dagurinn ber í skauti sér,“ segir Sigurð-
ur sem finnst fjölbreytnin jafnvel meiri
nú en hann upplifði meðan hann starf-
aði á ritstjórnum hinna ýmsu blaða.
Áhugamál Sigurðar eru töluvert
samofin vinnu hans. „Ég hef gaman
af því að ferðast, fara um landið og
taka myndir. Ég hef gaman af grúski
og bókum og því að hitta skemmtilegt
fólk,“ segir Sigurður og finnst vinnan
bæði beint og óbeint yfir og allt um
kring í sínu lífi.
„Maður er alltaf í nálægð við þessi
viðfangsefni hvort sem er í starfi eða
leik og skilin á milli þessara tveggja
eru ákaflega óglögg,“ segir Sigurður
sem yfirleitt tekur stórar ákvarðanir
á örskotsstundu. Hvort sem það er að
fara út í að vinna sjálfstætt eða flytja
til Akureyrar þar sem hann bjó í sjö ár.
„Mér finnst gott að vera ekki mikið að
væflast yfir hlutunum heldur geri ég
þetta líkt og að smella fingri, og yfir-
leitt er það skemmtilegast,“ segir Sig-
urður Bogi og hlakkar til að gæða sér á
soðningunni í kvöld.
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BLAÐAMAÐUR: ER 35 ÁRA Í DAG
Býður upp á soðningu með
kartöflum og tómatsósu
ÖRLAGABLAÐAMAÐUR Sigurður Bogi hefur starfað við blaðamennsku frá sextán ára aldri. Hann segir vinnuna yfir og allt um kring í sínu lífi.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stjórnendur á Öldrunarheim-
ilum Akureyrar héldu í síð-
ustu viku samsæti til heiðurs
þeim sex sjúkraliðum sem þar
starfa og voru að ljúka fram-
haldsnámi í öldrunarhjúkr-
un. Námið er framhald af
hefðbundnu námi sjúkraliða,
ætlað þeim sem hjúkra öldr-
uðum í samræmi við mark-
mið hjúkrunar og nýjar hug-
myndir í öldrunarfræðum.
Jafnframt á námið að auka
sjálfstæði og ábyrgð sjúkra-
liða í störfum sínum innan
og utan stofnana. Námið er
tveggja anna bóknám og átta
vikna verknám á stofnunum.
Konurnar sex voru þær
fyrstu á Öldrunarheimilum
Akureyrar sem útskrifast úr
slíku námi.
Sex útskrifast í
öldrunarhjúkrun
SÉRHÆFÐAR Í ÖLDR-
UNARHJÚKRUN Birna
Ingólfsdóttir, Hulda
Birna Frímannsdóttir,
Jana Arnórsdóttir,
Jóna Guðmundsdóttir,
Margrét Vestmann og
Þorgerður Þorgilsdóttir
starfa allar við hjúkrun
aldraðra.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1809 Edgar Allan
Poe skáld.
1736 James Watt upp-
finningamaður, fann
upp eimreiðina.
Guðrún Briem Björnsson lést
á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund mánudaginn 16. janúar.
Ólöf Bjartmarsdóttir lést á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli mánudaginn
16. janúar.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.