Fréttablaðið - 19.01.2006, Page 50
34 19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
DESIRE TO SEE Nútímalist frá Finnlandi
14.1.-5.3.2006
Norræna húsið, Reykjavík
www.nordice.is
þriðjud. - sunnud. kl. 12.00-17.00
Christine Candolin
Tiina Karismaa
Marjukka Korhonen
Anu Osva
Anneli Sipiläinen
Finnska sendiráðið,
Reykjavík
www.finland.is
Ein af þeim myndum sem
beðið hefur verið með
hvað mestri eftirvæntingu
er Memoirs of a Geisha,
Endurminningar geishu.
Er það ekki síst fyrir þær
sakir að myndin er byggð á
samnefndri metsölubók eft-
ir bandaríska rithöfundinn
Arthur Golden.
Memoirs of a Geisha sló í gegn
um allan heim og þótti mönnum
ótrúlegt að hún skyldi hafa verið
skrifuð af „utanbæjarmanni“
en Golden er Bandaríkjamaður.
Það er engin tilviljun að bókin
skyldi rata á hvíta tjaldið enda
lætur Hollywood slíka bók ekki
ósnerta.
Það hafa hins vegar fæstir
búist við að Rob Marshall fengi
þetta margslungna verkefni.
Þrátt fyrir að síðasta mynd hans,
Chicago, hafi rakað til sín ósk-
arsverðlaunum voru margir sem
settu stórt spurningarmerki við
hann; Memoirs of a Geisha væri
eingöngu annað kvikmyndaverk-
efnið hans. Það kom raunar fáum
á óvart að Marshall skyldi skila
svona góðu verki hvað Chicago
varðar. Hann hafði reynsluna af
Broadway en hvað myndi hann
gera með þetta einstaka tæki-
færi sem ætti ekkert skylt við
söngleik?
Sjálfur segist leikstjórinn alltaf
hafa verið hrifnastur af kvik-
myndum sem gerast á fjarlægum
slóðum. Marshall er mikill aðdá-
andi leikstjórans Davids Lean,
sem gerði kvikmyndir á borð við
The Bridge on the River Kwai,
Lawrence of Arabia og Passage to
India, myndir sem allar eru sígild-
ar og eftirminnilegar fyrir glæsi-
leikann fremur en gæðin. „Þegar
ég hafði gert Chicago langaði mig
til að takast á við eitthvað alveg
nýtt. Þegar framleiðendur mynd-
arinnar höfðu samband við mig
og spurðu hvort ég treysti mér til
að festa þessa bók á filmu svaraði
ég umsvifalaust játandi,“ er haft
eftir Marshall sem viðurkenndi
að hann hefði verið fremur tauga-
óstyrkur er hann gaf svarið, enda
er framleiðandi myndarinnar
enginn annar en Steven Spiel-
berg. Marshall segist ekki síður
hafa hrifist af sögu stúlkunnar en
heimi geishunnar. „Það var ekki
síst ferðalag hennar sem hreif
mig og með hvaða augum hún sér
þessa veröld.“
Memoirs of a Geisha segir
sögu Sayuri sem níu ára gömul
er seld til hinnar miskunnarlausu
Hatsumomo sem þjálfar ungar
stúlkur til þess að verða geishur.
Sayuri verður fyrir barðinu á
afbrýðissemi kennara síns vegna
fegurðar sinnar og hæfileika en
er bjargað af Mameha. Sú kennir
hinni ungu Sayuri að þroska hæfi-
leika sína og kemur henni í kynni
við æðstu valdamenn japanska
keisaradæmisins.
Það vill svo skemmtilega til
að aðalleikonurnar tvær, Ziyi
Zhang og Michelle Yeoh, eru ekki
að leika saman í fyrsta skipti því
þær voru keppinautar í Crouch-
ing Tiger Hidden Dragon eftir
Ang Lee. Ken Watanabe leikur
einnig stórt hlutverk í myndinni
en hann sáu Íslendingar síðast í
Batman Begins. ■
FYRRVERANDI KEPPINAUTAR Ziyi Zhang og Michelle Yeoh voru andstæðingar í kvikmyndinni Crouching Tiger, Hidden Dragon og leika nú
saman í Memoirs of a Geisha.
Heimur listagyðjunnar
It‘s not true. Some have great
stories, pretty stories that take
place at lakes with boats and
friends and noodle salad. Just no
one in this car. But, a lot of peop-
le, that‘s their story. Good times,
noodle salad. What makes it so
hard is not that you had it bad,
but that you ŕe that pissed that so
many others had it good.
Lífspeki Melvin Udall er vissulega ekki allra og er
kannski full svört sýn á veruleikann en Jack Nicholson
fór á kostum í hlutverki sérvitringsins.
Roman Polanski má ekki stíga fæti á
bandaríska jörð því þá gæti hann verið
handtekinn fyrir að hafa haft samræði
við stúlku undir lögaldri á áttunda
áratugnum. Þótt hann sé útlægur hefur
hann fengið óskarsverðlaun og vestræn-
um leikurum þykir eftirsóknarvert að
starfa með honum.
Polanski er fæddur í París árið 1933 en
þremur árum síðar fluttist fjölskylda hans
til Kraká. Þegar nasistar hertóku landið
voru báðir foreldrar hans handteknir og
sendir í vinnubúðir. Móðir hans sneri
aldrei aftur og föður sinn hitti hann ekki
fyrr en eftir stríð. Í ævisögu sinni, Roman,
sem kom út árið 1984 sagði Polanski
að kvikmyndin væri flótti hans frá því
þunglyndi sem oft sótti að honum.
Polanski sló í gegn með myndinni Hnífur
í vatni eða Noz w Wodzie en eflaust
hefur ekki mörgum leikstjórum á þessum
tíma tekist að hneyksla formann pólska
kommúnistaflokksins og náð að hljóta
tilnefningu til óskarsverðlauna sama árið.
Polanski neitaði hins vegar að endurgera
myndina á ensku þrátt fyrir mörg gylli-
boð. Upp frá þessu hófst hins vegar mikil
frægðarför sem enn sér ekki fyrir endann
á en hefur verið þyrnum stráð. Polanski
missti eiginkonu sína, Sharon Tate, en
hún féll fyrir hendi glæpagengis Charles
Manson árið 1969 og gekk þá með barn
þeirra hjóna.
Það myndi enginn dirfast að efast um
hæfileika þessa Pólverja sem á að baki
myndir á borð við Chinatown, Tess,
Frantic að ógleymdri Pianist, hans allra
persónulegustu mynd. Það myndi heldur
enginn segja að Roman Polanski væri
allra.
Umdeildur snillingur
ROMAN POLANSKI Var sakfelldur fyrir að
hafa mök við stúlku undir lögaldri en hefur
iðkað sína list utan Bandaríkjanna með
góðum árangri.
Tíu ár eru síðan Colin Firth heillaði
hverja stúlkuna á fætur annarri
þegar sjónvarpsþáttaröðin Pride
& Prejudice var sýnd á RÚV. Þótt
ótrúlegt megi virðast hafa ekki
verið gerðar margar bíómyndir
eftir þessari klassísku sögu Jane
Austen og kannski er það af því
að enginn hefur getað séð neinn
annan en Firth í hlutverki Darcys.
Hroki og hleypidómar fjallar
fyrst og fremst um fyrstu ástina
og rómantíkina. Hún segir frá frú
Bennet sem er öll á iði eftir að
fréttist að ungur og ríkur hefðar-
maður að nafni Charles Bingley
ætli sér að setjast að í sveitinni.
Þótt það skorti fé er húsmóðirin
ákveðin í að koma einhverri af
fimm dætrum sínum á sjens, sama
hvað tautar og raular.
Áætlun hennar virðist vera
að ganga upp þegar herra Bing-
ley fellur fyrir elstu dótturinni,
Jane. Þegar systir Bingleys, sem
hefur orð á sér fyrir að vera skass,
býður Jane til sín ákveður móðirin
að taka málin í sínar hendur.Hún
sendir stúlkuna út í rigninguna
og verður hún að sjálfsögðu veik.
Þegar Elizabeth kemur til að
hjúkra systur sinni fellur Darcy
kylliflatur fyrir henni en ástin er
langt frá því að vera auðunnin.
Það er Keira Knightley sem
leikur hina íðilfögru Elizabeth
Bennet. Hún hefur fengið mikið
lof fyrir leik sinn og var meðal
annars tilnefnd til Golden Globe-
verðlaunanna. Matthew McFa-
dyen fer með hlutverk Darcys
en framleiðendur myndarinnar
höfðu hann alltaf í huga þegar
farið var af stað með verkefnið.
Þetta er að kalla hans fyrsta „stór-
mynd“ en einhverjir sjónvarps-
áhorfendur gætu kannast við hann
úr þáttaröðinni Spooks. Leikstjóri
er Joe Wright en hann leikstýrði
einmitt sjónvarpsmyndinni um
Karl II sem sýnd var á RÚV fyrir
skömmu. ■
Keira Knightley hefur fengið mikið lof fyrir
leik sinn í kvikmyndinni og var meðal ann-
ars tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna.
Ást og rómantík
bio@frettabladid.is
Fá ef einhver ævintýri eru jafn
vinsæl og Óliver Twist. Þótt ótrú-
legt megi virðast hefur þessi
sígilda saga Charles Dickens ekki
ratað á hvíta tjaldað nema tvisvar.
Fyrst með Alec Guiness í hlutverki
Fagins í kvikmyndaútgáfu Davids
Lean og svo tuttugu árum seinna
í söngleiknum Oliver eftir Carol
Reed. Nú er það sir Ben Kingsley
sem bregður sér í hlutverk glæpa-
foringjans sem rekur vasaþjófa-
gengi með harðri hendi í London
um miðja nítjándu öldina. ■
OLIVER TWIST Munaðarleysingin lendir í
klónum á glæpahyski og lærir að stela
sér til matar á þeim tíma þegar bilið milli
hinna ríku og fátæku var mikið.
Sígilt ævintýri