Fréttablaðið - 19.01.2006, Side 52
52 28. janúar 2005 FÖSTUDAGURFIMMTUDAGUR 19. janúar 2006 36
maturogvin@frettabladid.is
Veitingastaðir sem setja
heilsuna í öndvegi njóta
vaxandi vinsælda hér á
landi. Nýverið opnaði í Stór-
höfða 17 heilsustaðurinn
Aftur til náttúru sem hefur
á boðstólnum fjöldann allan
af lífrænt ræktuðum og
vistvænum vörum.
Fyrir þá sem ekki vita hvað lífrænt
ræktað er og hvað er vistvænt má
nefna sem dæmi að lífrænt ræktað
grænmeti hefur ekki verið úðað
með skordýraeitri og vistvæn egg
eru fengin frá hænum sem fá að
spípgspora úti í náttúrunni. Mikil
áhersla er jafnframt lögð á hrein-
leika og hollustu afurða.
„Fólk er orðið miklu meira með-
vitað um hvað það er að láta ofan í
sig og hvað það vill bjóða börnun-
um sínum upp á, sem betur fer,“
segir Hildur Hilmarsdóttir, einn
af eigendum staðarins. „Hérna
erum við til dæmis með í hádeg-
inu súpu og salatbar og speltbrauð
ásamt rétti dagsins. Við erum líka
með grænmetisböku og crépes
með hýðishrísgrjónum og sykur-
lausar kökur,“ segir hún.
Hildur segist hafa fengið áhuga
á heilsuréttum fyrir þremur árum
út af móður sinni, Matthildi Þor-
láksdóttur, sem lærði náttúru-
lækningar í Þýskalandi og er með
stofu í sama húsi og veitinga-
staðurinn er. Auk Hildar starfa
á staðnum systir hennar Helena,
Ásdís Gunnlaugsdóttir og Sólborg,
systir Matthildar. Þetta er því
sannkallað fjölskyldufyrirtæki.
Vörurnar flytja þær stöllur inn
frá Þýskalandi, en auk matarins
bjóða þær m.a. upp á lífrænar
bleiur.
Hér gefur Hildur uppskrift að
sykurlausri eplaköku
freyr@frettabladid.is
Sykurlaus eplakaka Hildar
Á NÝJA STAÐNUM Frá vinstri: Hildur, systir hennar Helena og Ásdís lukkulegar á nýja veit-
ingastaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Ég held ég verði að segja rauðvín. Og ef
rauðvín er ekki matur, þá kampavín.
Fyrsta minningin um mat?
Held að það hafi verið ostur sem hafði
fyrir röð óheppilegra tilviljana legið í sól-
bakaðri gluggakistu of lengi, varð seigur
og hálfkæstur. Afleiðingarnar urðu áratugs
hlé á ostaneyslu.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Bestu máltíðirnar hafa fallið í skuggann
af konunni minni sem ég hef snætt þær
með.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur?
Þegar það sem ekki er hægt að borða
með góðu móti er hakkað og troðið inn í
görn og kallað bjúgu þá segi ég stopp.
Leyndarmál úr ísskápnum?
Ljósið slokknar þegar maður lokar.
Hvað borðar þú þegar þú þarft að láta
þér líða betur?
Magnyl eða lakkrís.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Kampa-
vín. Það er aldrei að vita hvenær brestur
á með stórkostlegum atburðum. Kári
er alltaf að finna ný meingen, íslenskir
auðjöfrar verða stöðugt ríkari og fylgi
Framsóknarflokksins minnkar.
Uppáhaldsveitingastaðurinn?
Le Nain í París en þar eru bara dvergar
sem þjóna til borðs. Eini maðurinn í
fullri stærð er kokkurinn
en hann er samt frekar
smávaxinn.
Ef þú yrðir fastur
á eyðieyju, hvaða
rétt myndir þú taka
með þér?
Eitthvað sem hægt
væri að búa til bát úr,
til dæmis risastóra önd.
Hvað er það
skrítnasta sem
þú hefur borðað?
Sandur, en það
er svolítið langt
síðan.
MATGÆÐINGURINN: SIGTRYGGUR MAGNASON, RITHÖFUNDUR OG HUGMYNDASMIÐUR
Á alltaf kampavín í ísskápnum
Léttvín gengur frem-
ur illa með þorram-
atnum af mörgum
ástæðum. Bjór og
snafs eiga betur við
eins og margir hafa
reynt. Faxe býður
upp á tvo bjóra sem
virka vel með þor-
ramatnum. Annars
vegar Faxe 10%
sem hefur komið
mörgum á óvart
fyrir það hversu
óvenju mildur
hann er miðað við
styrkleika. Engu
að síður má finna
að hér er á ferðinni
kraftakarl sem kall-
ar ekki allt ömmu
sína og þaðan af síður
þorramatinn. Má segja
að hér sé á ferð-
inni bjór sem er
allt í senn, bjór
og snafs í einum
teyg. Hinn
bjórinn er Faxe
Festbock 7,7%,
dökkur lager
en bragðmikill
og fer því vel
með sterkum
og lyktandi mat.
Þetta er bjór
sem deyr ekki
í munni þrátt
fyrir feitan mat
sem þorrafæðið
er.
Verð í Vín-
búðum í 50 cl
dósum: Faxe
10% 399 kr. og
FAXE:
Þorrabjórarnir sterkir
> Að lepja úr skel..
..getur verið unaðslegt.
Ostrur eru lostæti og
auk þess kynörvandi.
Vín frá Puglia-héraði á syðsta
odda Ítalíu hafa náð miklum vin-
sældum á Norðurlöndum allra
síðustu ár. Fjöldamörg vín hafa
komið fram á sjónarsviðið en það
vín sem lengstum hefur dregið
vagninn og mestra
vinsælda notið
heitir A Mano. Hér
á landi hefur það
verið mjög vinsælt
enda traust og gott
vín á hagstæðu
verði. Nú er kom-
inn nýr árgangur
í Vínbúðirnar og
þykir hann sá allra
besti hingað til.
„Árið 2003 sprakk
út í höndunum
á okkur,“ segir
maðurinn á bak við A Mano,
ameríski víngerðarmaðurinn
Mark S. Shannon. Hann fluttist
til Puglia fyrir nokkrum árum
og ákvað í samstarfi við konu
sína Elvezia að hefja vínrækt.
Á undraskömmum
tíma hafa vín þeirra
vakið heimsat-
hygli. Ekki síður
vekur athygli
að Ameríkani
skuli gera inn-
rás í ítalska vín-
menningu þar
sem hefðin er
sterk og menn
ekki mikið fyrir
að láta ein-
hverja útlend-
inga segja sér
fyrir verkum. En heima-
menn tóku Shannon í sátt
um leið og þeir smökk-
uðu á hinum frábæru
vínum þeirra hjóna sem
hafa unnið til fjölda
verðlauna síðustu ár. Auk
A Mano fást önnur vín
frá þeim hér á landi,
Promessa Rosso Sal-
ento og Promessa
Negroamaro.
Verð í Vínbúðum:
Promessa Rosso
Salento kostar 990
kr. í flösku en 3.590
kr. í 3 lítra kassa.
Promessa Negroam-
aro og Amano kosta
1.090 kr.
A MANO OG PROMESSA:
Nýi árgangurinn framúrskarandi
2 vistvæn egg
3/4 dl olía (ekki ólífuolía)
1 dl agave-sýróp
1 1/2-2 dl lífrænt fínmalað speltmjöl
1 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
2 lífræn epli
3 msk agave-sýróp
kanill eftir smekk
Eplin eru skorin í bita og þeim velt upp úr þremur mat-
skeiðum af agave-sýrópi. Kanilnum er síðan stráð yfir.
Öllu hinu er blandað saman og hellt í form. Því næst eru
eplin sett yfir deigið og kakan bökuð í um 45 mínútur við
160 gráður. Best er að setja álpappír yfir formið áður en
því er skellt í ofninn.
Vanillukrem:
120 gr lífrænt smjörlíki frá Rapúnzel
1 dl agave-sýróp
1 tsk lífrænt vanilluduft
1/2 dl sojarjómi
Örlítið lífrænt kartöflumjöl til að þykkja kremið
Vanillukreminu er síðan hellt yfir kökuna þegar hún er
orðin volg.
Hildur mælir ekki með því að nokkuð sé drukkið, hvorki
með borgaranum né eplakökunni. Ekki skal drekka með
mat, heldur fyrir og eftir matinn, því vatn eða aðrir drykkir
þynna meltingarvökvann þannig að maturinn nær ekki að
meltast nógu vel.
SYKURLAUS EPLAKAKA
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar