Fréttablaðið - 19.01.2006, Qupperneq 53
FIMMTUDAGUR 19. janúar 2006 37
VEITINGASTAÐURINN
Hver og hvar:
Ósushi er í Lækjargötu
2, annarri hæð.
Hvernig er stemningin?
Léttur og nútímalegur staður í
anda svipaðra sushi-staða í stór-
borgum, og er staðsettur á annarri
hæð í bókabúðinni Iðu. Maturinn
hringsólar á færibandi framhjá
sætunum eins og gjarnan er venja
á japönskum skyndibitastöð-
um. Þetta skapar skemmtilega
buffetstemningu þar sem gestir
geta valið það sem þeim sýnist
girnilegast á færibandinu.
Matseðillinn:
Hér er að finna klassískt sushi og
sashimi, aðra japanska rétti eins og
teriyaki og misosúpu sem er búin
til úr sojabaunum og þangi. Það er
geysilega mikið úrval af sushi, bæði
með hvítum fiski, laxi og túnfiski
og svo með reyktri önd, hvalkjöti
eða smokkfiski, ásamt nori-rúllum
fylltum með fiski eða grænmeti.
Fiskurinn er dásamlega ferskur og
auðvitað borinn fram með fersku
engifer, japanskri sojasósu og
wasabi. Einnig er hægt að fá aðra
rétti sem eru ekki með hrámeti, og
eftirrétti eins og creme brulée.
Vinsælast:
Sushi-ið er langvinsælast ásamt
misosúpu í forrétt að japönskum
sið. Laxatartar er sérstaklega gott
og einnig rækju-futomaki.
Réttur dagsins:
Oft er boðið upp á salöt, súpur
eða samlokur í hádeginu, allt ein-
staklega frumlegt og bragðgott.
Gott að vita:
Sushi þýðir „með hrísgrjónum“ á
japönsku og sushibitar eru borð-
aðir í Japan með fingrunum. Láttu
fiskinn snúa niður þegar þú dýfir
honum í sojasósuna. Notaðu hins
vegar prjóna á sashimi, en það er
hrár fiskur án hrísgrjóna.
Verð: Diskarnir með mismunandi
réttum á kosta frá 200 krónum upp
í 500 krónur og því er verð á máltíð
mjög mismunandi eftir því hversu
svangur þú ert.
Færiband í
Tókýó-stíl
ÓSUSHI
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Undanfarin ár hafa verið hagstæð
ítalskri víngerð ef undan er skilið
hið erfiða ár 2002. Vínáhugamenn
bíða spenntir eftir því hvernig upp-
skera síðasta hausts kemur út en
veðurfar var einkar hagstætt. Árin
á undan, 2003 og 2004, voru mjög
góð á Ítalíu eins og fram kemur í
annarri grein hér á opnunni um vín
frá Suður-Ítalíu. Misjafnt er eftir
vínum og svæðum hvernig útkom-
an var en hún var oftast mjög góð
og í sumum tilfellum framúrskar-
andi. Sem dæmi má nefna að 2004-
árgangurinn af hinu kunna borðvíni
Santa Cristina þykir einn sá besti
frá upphafi. Til dæmis var vínið
valið vín vikunnar í Wine Spect-
ator og fékk hæstu einkunn fyrir
verð og gæði í biblíu ítalskra
vína, Gambero Rosso.
Fá rauðvín hafa verið jafn lengi
fáanleg á Íslandi og Santa
Cristina. Það hefur áratug-
um saman verið mest selda
vínið frá Toskana hérlendis.
Vínið hefur tekið miklum
breytingum í áranna rás
og er eitt besta dæmið um
hve þróunin í ítalskri vín-
gerð hefur verið mikil en
þar hefur Antinori greifi
verið brautryðjandi. Hann
breytti víninu á níunda
áratugnum, tók það úr tága-
flöskunni og gerði það þéttara
og kraftmeira. Síðar hóf hann
að blanda merlot-þrúgunni
við hina klassísku sangiov-
ese-þrúgu til að gera vínið
mýkra og meira aðlað-
andi. Þessar breytingar
hafa viðhaldið vinsæld-
um Santa Cristina og
hefur það hlotið fjölmörg
verðlaun og nánast verið
áskrifandi að titlinum
„bestu kaup“ í ítölskum
vínum. Vín sem hentar
með grillinu og með flest-
um pastaréttum þar sem
kjöt kemur við sögu. Einnig hent-
ar það með fiskréttum ef vínið er
aðeins kælt.
Antinori-fjölskyldan hefur ræktað
vín óslitið í sex aldir. Útflutningur
var hins vegar lítill er Piero Antin-
ori tók við en hann hefur gert fyrir-
tækið að alþjóðlegu stórveldi á sviði
vínframleiðslu. Undanfarin ár hefur
framganga dætranna Allegra, Albi-
era og Alessia vakið mikla athygli
en þær hafa sýnt mikla hæfileika í
víngerð.
Verð í Vínbúðum 1.090 kr.
Fæst einnig í hálfflöskum á 590 kr. ANTINORI SYSTURNAR
SANTA CRISTINA:
2004 árgangurinn sá besti frá upphafi?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IS
P
31
01
7
0
1/
20
06
www.postur.is
Fljúgandi hálka?
Á veturna er allra veðra von. Við hjá Póstinum beinum þeim
vinsamlegu tilmælum til þín að halda aðgangi greiðum að húsinu
þegar snjóar og strá salti eða sandi á hálkubletti. Aðstoð þín og
tillitssemi auðvelda okkur að koma póstinum til þín hratt og
örugglega hvernig sem viðrar.
Með fyrirfram þökk.