Fréttablaðið - 19.01.2006, Qupperneq 57
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti 70
Sími 553 0003
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
Fiskbúðin Árbjörg
Hringbraut 119
Sími 552 5070
Rauðmagi
59 kr.stk.
Hrogn, línuýsa, þorskflök,
lúðusneiðar, lúðuflök,
rauðsprettuflök, lax
FRÉTTIR AF FÓLKI
Óskarsverðlaunaleikkonan Hilary Swank neitar að gefa
hjónaband sitt upp
á bátinn. Tilkynnt
var um skilnað
hennar og Chad
Lowe á dögunum
en Swank hætti
með Lowe
seint á
síðasta ári
og eyddi
jólunum
án hans.
„Þetta er
ekki búið, við erum ekki skilin,“ sagði
Swank. „Við höfum verið saman í 13
ár og ástin er enn til staðar. Við erum
ennþá gift.“ Hafa þau leitað aðstoðar
hjá hjónabandsráðgjafa undanfarið í
von um að bjarga hjónabandinu.
Leikarinn Joaquin Phoenix tap-aði veðmáli við vin sinn Ryan
Philippe þegar hann vann Golden
Globe-verðlaunin fyrir hlutverk sitt
í Walk the Line. Þurfti Phoenix að
punga út rúmum 13 þúsund krón-
um af því að hann hafði enga trú á
að hann myndi hljóta verðlaunin.
Philippe er kvæntur Reese
Witherspoon sem fer með hitt
aðalhlutverkið í myndinni.
Fjórtán ára hjónaband
söngkonunnar
Whitney Houston
og Bobbys Brown
stendur víst á
brauðfótum
um þessar
mundir og
eru þau
að íhuga
skilnað.
Brown sást
nýverið
daðra við
hóp feg-
urðardísa
baksviðs
á tónleikum í Connecticut. Þegar hann
var spurður út í eiginkonuna sagðist
hann vera að skilja við hana og því
mætti hann alveg daðra eins og hann
vildi.
Leikarinn Harrison Ford hefur gefið þeim Steven Spielberg og George
Lucas tveggja ára frest til að byrja á
fjórðu myndinni um fornleifafræðing-
inn Indiana Jones. Ford, sem er 63 ára,
segist ekki nenna að bíða lengur eftir
því að byrja á myndinni. „Ég hef ekki
verið svona jákvæður vegna framvindu
myndarinnar í langan tíma. En ef hún
verður ekki gerð á næstu tveimur árum
ættum við bara að gleyma henni,“
sagði Ford.
Tónlistarmaðurinn Morrissey,
sem áður var í hljómsveitinni The
Smiths, gefur út nýja plötu 3. apríl
sem nefnist Ringleader of the
Tormentors.
Tveimur vikum seinna fer
Morrisey í tónleikaferð um Bret-
land þar sem hann mun halda 29
tónleika. Síðasta plata Morrissey,
You Are the Quarry, kom út árið
2004 og fékk mjög góðar viðtökur.
Þar áður hafði hann ekki gefið út
plötu í sjö ár, allt síðan Maladju-
sted kom út. Fékk hún slæm við-
brögð gagnrýnenda.
Ný plata í
apríl
MORRISSEY Tónlistarmaðurinn virti gefur út
nýja plötu í apríl.