Fréttablaðið - 19.01.2006, Side 58
42 19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
16 17 18 19 20 21 22
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
20.00 Ísland og Frakkland
mætast í æfingaleik í handbolta í
Laugardalshöllinni.
19.15 Skallagrímur og Keflavík
mætast í Iceland Express-deild karla
í körfubolta í Borgarnesi.
19.15 Fjölnir og Haukar mætast í
Iceland Express-deild karla í körfu-
bolta í Grafarvogi.
19.15 Grindavík og Þór Ak. mæt-
ast í Iceland Express-deild karla í
körfubolta í Grindavík.
19.15 Njarðvík og KR mætast í
Iceland Express-deild karla í körfu-
bolta í Njarðvík.
19.15 Snæfell og ÍR mætast í
Iceland Express-deild karla í körfu-
bolta á Stykkishólmi.
■ ■ SJÓNVARP
18.00 Íþróttaspjallið á Sýn.
18.12 Sportið á Sýn.
20.00 Landsleikur í handbolta
á Rúv. Bein útsending frá leik
Íslendinga og Frakka.
20.30 Sterkasti maður heims
á Sýn. Boris Haraldsson tók þátt í
þessari keppni sem fram fór í Kína á
síðasta ári.
21.00 NFL-tilþrif á Sýn.
Handboltamaðurinn Logi Geirsson er
frægur fyrir að fara sínar eigin leiðir.
Það er nokkuð þekkt að Logi notar
töluvert af hárvörum og sjaldan lætur
hann sjá sig nema með vænan skammt
af geli. Nú er Logi að þróa nýja tegund
af hárvörum sem hann vill meina að sé
nokkuð góð blanda af vaxi og geli.
„Ég er búinn að vera að mixa þetta í
svolítinn tíma. Ég ákvað að fara út í
að gera góða blöndu af geli þar sem
maður kaupir nú einn til tvo brúsa
af hárvörum í hverjum mánuði. Mér
datt þetta í hug þar sem maður er
þekktur fyrir að vera með gel í hárinu
að staðaldri.“ Spurður hvort þetta
hafi komið vel út segir Logi að sumar
blöndurnar hafi virkað mjög vel en
aðrar ekki. „Ég keypti mér sérstakan
blandara fyrir þetta og talaði
við nokkra einstaklinga sem
vita um hvað þeir eru að tala
og hef síðan verið að þróa
þessa blöndu upp frá því. Þetta
er allt að koma og ég er bara
nokkuð spenntur yfir
þessu. Ég er að minnsta
kosti byrjaður að nota
mitt eigið efni og það
virkar nokkuð vel,“
segir Logi en hann
klippir jafnan hárið
á sér sjálfur þar sem
hann treystir engum
utanaðkomandi til að
fara höndum um ljósu
lokkana.
Þegar hann er spurður hvort
hann stefni á markaðssetningu á efn-
unum segir hann það koma vel til
greina. „Hver veit, það er aldrei að
vita. Hver vill ekki vera vatnsgreidd-
ur með gott gel? Maður er búinn að
vera að nýta meiðslatímann
í hitt og þetta og ég er
nú ekki einn af þeim
sem er þekktur fyrir að
fá þessar venjulegu
hugmyndir þannig
að ég ákvað bara að
láta slag standa og
prófa þetta. Þetta
hefur nú eiginlega
komið nokkuð vel
út, jafnvel betur en ég
þorði að vona,“ segir Logi
að lokum.
LOGI GEIRSSON HANDBOLTAKAPPI: NOTAR MEIÐSLAFRÍIÐ Í AÐ ÞRÓA NÝJA BLÖNDU AF HÁRGELI
„Hver vill ekki vera með gott gel?“
Sinisa Kekic hjá Grindavík er augljós-lega ekki dauður úr öllum æðum
og er ennþá í fínu
formi þrátt fyrir að vera
orðinn 36 ára gamall.
Hann gerði sér lítið fyrir
í fyrrakvöld og skoraði
fernu fyrir Grindavík í
æfingaleik gegn Reyni
Sandgerði. Kekic skoraði
öll mörkin í fyrri hálfleik en Grindavík
sigraði leikinn 5-1.
Bjarni Guðjónsson, leikmaður Plymouth á Englandi, hafnaði
tilboði frá belgíska úrvalsdeildarliðinu
Lokeren sem vildi fá hann í sínar raðir
áður en leikmannaglugginn lokast í lok
mánaðarins. Að sögn Bjarna var tilboð
Lokeren einfaldlega ekki nægilega gott
og mun hann því að öllum líkindum
vera áfram í herbúðum Plymouth
til loka tímabilsins, en þá rennur
samningur hans við félagið út.
Eric Cantona, franska goðsögnin hjá Man. Utd. segist ekki vera hrifinn
af núverandi leikstíl Rauðu djöflanna.
Hann segist áhyggju-
fullur um framtíð
liðsins nú þegar
Glazer-feðgar hafa náð
meirihluta í félaginu og
Roy Keane er horfinn
á braut. „Það er ekki
sama jafnvægið og
áður og það gæti verið
að dauði George Best hafi verið byrjunin
á dauða heils félags,“ segir Cantona.
Thierry Henry, sóknarmaður Arsenal, hefur biðlað til forráðamanna Arsen-
al um að festa kaup á táningnum Theo
Walcott, en fjölmörg lið eru á höttunum
á eftir hinum 16 ára gamla framherja
Southampton sem þykir eitt mesta efni
landsins. „Hann yrði styrkur fyrir liðið.
Ungur og tæknilegur strákur sem elskar
að spila fótbolta. Ég hef séð til hans og
hrifist,“ segir Henry.
Daníel Hjaltason, sóknarmaður Vík-ings, verður hugsanlega áfram hjá
félaginu á næstu leiktíð en í viðtali, sem
birt er á heimasíðu stuðningsmanna
liðsins, sagði hann frá því að hann og
Magnús Gylfason þjálfari væru langt
komnir í viðræðum sín á milli. „Þetta
mun allt koma í ljós von bráðar en það
er ennþá inni í myndinni að spila fyrir
annað lið,“ segir Daníel en hann hefur
m.a. verið orðaður við Leikni.
Garðari Jóhannssyni, sóknarmanni úr KR, hefur verið boðið til reynslu
hjá enska 1. deildarfélaginu Millwall í
annað sinn á skömmum tíma. Hinn 25
ára gamli Garðar var
í síðustu viku hjá
Millwall en ferðin
var tilkomin vegna
nýlegs samstarfs-
samnings á milli KR
og enska félagsins.
Sá möguleiki er fyrir
hendi að Garðar
verði lánaður til Millwall til sumars.
Varnarmaðurinn Hlynur Birgsson hefur ákveðið að spila eitt ár til
viðbótar með Þór Ak. í 1. deild karla í
knattspyrnu. Gengið var frá samningum
þess efnis í gær og eftir því sem greint
er á heimasíðu Þórs er Hlynur í mjög
góðu formi þrátt fyrir að verða 38 ára
gamall á sunnudaginn og er búist við
því að hann verði áfram lykilmaður
liðsins í sumar.
ÚR SPORTINU
������������������������
����������������
�����������������
������������������������
�������������������������
��������������������������������
������������������������������
HANDBOLTI „Landslið Frakka er
ógnarsterkt og eitt af þeim liðum
sem er líklegast til að standa uppi
sem sigurvegari á EM í Sviss,“
segir Viggó Sigurðsson, þjálfari
íslenska landsliðsins, sem tekur
á móti franska liðinu í síðustu
æfingaleikjunum fyrir EM í kvöld
og á sunnudag. Viggó telur að um
mikla prófraun sé að ræða fyrir
íslenska liðið.
„Við sjáum fyrst raunveru-
lega hvar við stöndum eftir þessa
leiki.“ Eins og flestum ætti að
vera kunnugt hefur Ísland ekki
tapað í síðustu 16 leikjum sínum
og eru margir farnir að spá liðinu
góðu gengi á EM. Eins og venju-
lega gerir þjóðin miklar vænting-
ar til strákanna sinna – væntingar
sem Viggó telur af hinu góða. „Það
liggur í þjóðarsálinni að við erum
metnaðarfull þjóð og við förum
ekki út í nein verkefni nema að
vera með stór markmið og ég held
að það breytist ekkert núna. Við
erum alveg óhræddir að heyra það
að fólk ætlast til mikils af okkur,“
segir Viggó en hans fyrsta mark-
mið með lið sitt er að koma því upp
úr undanriðlinum. „Og þá vonandi
með fjögur stig í farteskinu.“
Einar Hólmgeirsson er sammála
Viggó með það að staða mála mun
skýrast svolítið eftir þessa leiki
við Frakka. „Ef við komumst nokk-
uð klakklaust í gegnum þá leiki og
sleppum við meiðsli þá er ég bara
mjög bjartsýnn fyrir mótið. Viggó
er búinn að vera með okkur í rúm-
lega ár núna og mér finnst það
skína svolítið í gegn hjá hópnum að
andinn er góður og sjálfstraustið
er meira en oft áður.“
Undir orð Einar tekur Ólafur
Stefánsson fyrirliði íslenska liðs-
ins. „Ástandið á liðinu er mjög
gott. Ég get auðvitað einungis talað
fyrir mig en mér finnst strákarnir
vera í frábæru standi. Ég sjálfur er
til dæmis í miklu betra formi held-
ur en fyrir mótið í Túnis í fyrra.,“
segir Ólafur.
Umgjörðin fyrir leik kvöldsins
verður með glæsilegasta móti og
er stefnt að því að smala sem flest-
um áhorfendum saman í endur-
bættri Laugardalshöll. Á staðnum
verða væntanlega fjöldi gamalla
landsliðsmanna þar sem HSÍ hefur
ákveðið að bjóða öllum þeim sem
leikið hafa yfir 100 landsleiki fyrir
Íslands hönd á völlinn.
tomas@frettabladid.is
Frakkar eru ógnarsterkir
Íslenska landsliðið í handbolta mætir gríðarlega öflugu liði Frakka í æfingaleik
í kvöld sem landsliðsþjálfarinn telur líklegt til að standa uppi sem Evrópumeist-
ari í næsta mánuði. Stefnt er að því að fylla Laugardalshöllina í kvöld.
GRÍÐARLEGA ÖFLUGIR Franska liðið hefur yfir gríðarlegri breidd að ráða og getur nánast
stillt upp tveimur jafngóðum mönnum í hverja stöðu. Hér sést skyttan Daniel Narcisse
bókstaflega valta yfir Þjóðverjann Wolker Zerbe í viðureign liðanna á ÓL í Aþenu síðasta
sumar. Hann verður í Laugardalshöllinni í kvöld og á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Iceland Express-deild kvenna:
GRINDAVÍK - ÍS 84-66
KR - HAUKAR 40-109
Enska bikarkeppnin:
EVERTON - MILLWALL 1-0
1-0 Tim Cahill (72).
MAN. UTD - BURTON ALBION 5-0
1-0 Louis Saha (7.), 2-0 Giuseppe Rossi (23.), 3-0
Kieran Richardsson (52.), 4-0 Ryan Giggs (68.),
5-0 Giuseppe Rossi (91.).
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
> Brynjar með persónulegt met
Brynjar Þór Björnsson, körfuboltamaður
úr KR, setti persónulegt met þegar hann
skoraði 62 stig gegn liði FSU í viður-
eign liðanna í drengjaflokki í fyrradag.
Leikurinn endaði með 105-73 sigri KR
sem þýðir að Brynjar
skoraði rétt tæpan
þriðjung stiga
KR. Brynjar Þór
var með frábæra
nýtingu í leiknum
og skoraði
meðal annars
11 þriggja
stiga körfur úr
17 tilraunum
þar sem þrjú
síðustu skotin
geiguðu. Brynjar
Þór hafði áður
skorað mest
48 stig í einum
leik.
ERFITT VERKEFNI Viggó Sigurðsson og
Bergsveinn Bergsveinss þurfa að láta
lærisveina sína hitta á toppleik ef þeir ætla
að vinna Frakka.
Ísland í 95. sæti
Íslenska landsliðið í knattspyrnu er í
95. sæti á nýútgefnum styrkleikalista
Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Ísland
hefur fallið um eitt sæti frá því í síðasta
mánuði en nokkuð er síðan liðið lék
sinn síðasta leik. Það er Brasilía sem
situr sem fyrr í efsta sæti listans.
FÓTBOLTI Manchester United átti
ekki í miklum vandræðum með
að innsigla sigur gegn utan-
deildarliðinu Burton Albion í
lokaleik þriðju umferðar ensku
bikarkeppninar í gærkvöldi.
Man. Utd. sigraði 5-0 þar sem
þeir Louis Saha, Guiseppe Rossi,
Kieron Richardsson og Ryan
Giggs skoruðu mörkin en þrátt
fyrir tapið börðust leikmenn
Burton eins ljón allan leikinn og
uppskáru þeir duglegt lófaklapp
frá stuðningsmönnum beggja
liða í leikslok.
Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd., stillti ekki upp sínu
sterkasta liði í leiknum og leyfði
skærustu stjörnum sínum að
hvíla sig. Það virtist í upphafi
hafa verið rangur leikur hjá
skotanum þar sem Burton var
síst lakari aðilinn. En smám
saman náðu þeir rauðklæddu
undirtökunum og eftir að liðið
hafði náð að brjóta ísinn var sig-
urinn aldrei í hættu. - vig
Burton náði ekki að búa til kraftaverk í gærkvöld:
Skyldusigur hjá Man. Utd.
MARKI FAGNAÐ Louis Saha, Ole Gunnar
Solskjaer og Guiseppe Rossi fagna marki
þess fyrstnefnda í leiknum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY