Fréttablaðið - 19.01.2006, Side 62
19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Tónlist Það er alltaf eitthvað nýtt í spil-
aranum hjá mér vinnunnar vegna, mis-
gott eins og gengur og gerist. Hljóm-
sveitin Æla og platan þeirra „Sýnum
tillitssemi, ég er frávik“ er nokkuð sem
útgefendur ættu að sjá sóma sinn í að
gefa út. Þetta er frábær plata. Það sama
gildir um hljómsveitina Reykjavík! Svo
viðurkenni ég að ég er „sucker“ fyrir fullt
af því sem þykir móðins í dag: Arcade
Fire, Sufjan Stevens, Animal Collecti-
ve, The Decemberists, The Television
Personalities og svo er ég líka að fíla
plötuna hans Sigga Ármann betur og
betur.
Bók Þær eru nokkrar á náttborðinu
mínu en varla er búið að lesa nema
svona 50 síður í hverri. Þetta eru
Kleifarvatn, Psychotic
Reactions eftir Lester
Bangs, Eleven Minutes
eftir Paulo Coelho,
Saga Rolling Stones
og nú síðast byrjaði
ég á ævisögu John
Lennon.
Bíómynd Horfði á Jón
Odd og Jón Bjarna á
DVD. Merkilegt hvað
sú mynd hefur elst
vel. Á köflum virkilega
illa leikin en samt
yndisleg.
Borg Ég gæti nefnt
fullt af svölum stöðum en mér bara líkar
ágætlega í Reykjavík.
En ég hef líka miklar
taugar til Kaupmanna-
hafnar þar sem ég bjó
bæði sem barn og
svo aftur sem ungur
maður. Annars leitar
hugurinn nú alltaf
eitthvað út og ég gæti
hugsað mér að búa
víða erlendis þótt
maður eigi eflaust eftir
að enda sem gamall
maður hérna heima.
Búð Ég er ekki það
svalur að ég geti nefnt
einhverja ofursvala
búð sem ég elska meira en aðra. En
ég fann mig vel í hjálpræðishernum í
London á síðasta ári og þegar maður
er staddur þar er líka gott að fara í
Select-A-Disc og kaupa sér plötur. Hérna
heima er alltaf gott að fara í heimsókn í
Gallerí humar eða frægð! þar sem plötu-
búð Smekkleysu er til húsa. Þar er alltaf
tekið á móti manni með faðmlögum og
heitu kaffi.
Verkefnið Fyrst og fremst er ég að vinna
að nýrri plötu með félögum mínum í
Jan Mayen. Við erum þessa dagana að
gera smá demo af því efni sem komið
er en annars ætlum við að taka upp
fljótlega og gefa út fyrri part sumars. Ég
er ansi hræddur um þessi plata verði
með því besta sem heyrst hefur, en
hvað veit ég?
AÐ MÍNU SKAPI ÁGÚST BOGASON, GÍTARLEIKARI JAN MAYEN OG ÚTVARPSMAÐUR Á RÁS 2.
Bonnie „Prince“ Billy, Kaupmannahöfn og Select-A-Disc
HRÓSIÐ
...fær Halldór Ásgrímsson fyrir
að láta slag standa og koma í
þáttinn til Strákanna.
Hjónanámskeið sr. Þórhalls Heim-
issonar í Hafnarfjarðarkirkju hafa
slegið í gegn en ellefu ár eru síðan
pörum og hjónum gafst kostur á að
sækja þau í fyrsta sinn. Að sögn
Þórhalls hefur aðsóknin verið allt
að því lygileg. „Þetta er í raun
alveg ótrúlegt og námskeiðin eru
alltaf jafn vel sótt,“ segir hann en
uppbókað er í þau námskeið sem í
boði eru núna og geta áhugasamir
fyrst skráð sig í ágúst. „Það þýðir
því ekkert að hringja eða senda
tölvupóst, það er alveg fullt,“ segir
Þórhallur en bætir við að hann sé
alltaf að reyna fjölga þátttakendum
á hvert námskeið þó að það sé mjög
erfitt þegar hann er bara einn.
Hjónanámskeiðin eru ekki ein-
göngu hugsað fyrir pör sem þegar
eiga í einhverjum vandræðum í
sambúðinni heldur eru þau einnig
fyrir pör og hjón sem vilja styrkja
samband sitt. „Þetta er jákvætt
námskeið sem hjálpar fólki að
skoða sjálft sig,“ segir Þórhallur
sem telur vinsældirnar stafi af
því að ekki sé verið að segja fólki
hvernig það eigi að haga sér heldur
er verið að hjálpa því að finna sína
eigin leið en bætir við að þetta sé
langt í frá létt verk. „Það er aldrei
auðvelt að ganga í gegnum slíka
sjálfskoðun en þetta hjálpar fólki
að horfast í augu við sjálft sig,“
segir hann.
Alls hafa nú um 7.500 manns
sótt hjónanámskeiðin og segir Þór-
hallur þetta vera fólk á öllum aldri
úr öllum stéttum af öllu landinu.
„Þó hafa samkynhneigðir verið
eitthvað feimnir við að koma en
þeir eru að sjálfsögðu velkomnir,“
segir Þórhallur. - fgg
SR. ÞÓRHALLUR HEIMISSON Hjónanám-
skeiðin hans hafa slegið í gegn hjá lands-
mönnum og um 7.500 manns hafa sótt
þau á síðustu ellefu árum.
Uppbókað á hjónanámskeiðin
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nú hefur verið ákveðið hvaða átta lög hefja
leikinn á fyrsta undan-
úrslitakvöldi Eurovision-
keppninnar hér á landi
sem verður í beinni
útsendingu á Rúv 21.
janúar. Alls munu
fjögur lög komast
áfram í úrslitin
sem verða haldin
þann 18. febrúar.
Undankeppnirnar
verða þrjár og
því munu tólf
lög keppa til
úrslita í síma-
kosningu.
Fyrsta kvöldið syngja Þóra Gísladóttir og Edgar S. Atlason lag Ómars Ragn-
arssonar, Stundin, staðurinn, Regína Ósk
syngur lag Trausta Bjarnasonar, Þér við
hlið, Íris Kristinsdóttir syngur eigið lag
sem nefnist Ég sé, Matthías Matthías-
son syngur lagið Sést
það ekki á mér? eftir
Sigurð Örn Jónsson,
Friðrik Ómar syngur
Það sem verður eftir
Hallgrím Óskarsson,
Gunnar Ólason úr
Skítamóral syngur
lagið María
eftir Roland
Hartwell, Mar-
íanna Más-
dóttir syngur
lag Ingva Þórs
Kormáksson-
ar, Í faðmi þér,
og loks syngur
Davíð Þ. Olgeirsson eigið lag sem nefn-
ist Strengjadans.
Það bætist enn í frægðarhóp spurn-ingaþáttarins Meistarans sem er á
dagskrá Stöðvar 2. Kristján Guy Burgess,
fyrrverandi fréttastjóri DV, tekur sæti
Paolos Turchi, sem forfallaðist á síðustu
stundu. Er Kristján nýkominn heim úr
meistaranámi í alþjóðastjórnmálum og
þjóðarrétti. Kristján er reyndar vanari
því að vera hinum megin við borðið og
spyrja menn spjörunum úr, en frægt er
þegar hann rak sjálfan
Árna Johnsen á gat
í frægu fréttavið-
tali. Kristján mun
etja kappi við
Hauk Harðarson í
síðustu viðureign
fyrstu umferðar
2.febrúar.
-fgg
SÚR HVALUR
OG RENGI
HARÐFISKUR
OG HÁKARL
opið laugardaga 10-14.
LÁRÉTT 2 slátra 6 samþykki 8 besti
árangur 9 þrá 11 guð 12 ófriður 14
rákir 16 ætíð 17 flýti 18 flana 20 í röð
21 þekkja leið.
LÓÐRÉTT 1 útihús 3 hljóm 4 skeði 5
óhreinka 7 áköf þrá 10 knæpa 13
kæla 15 glufa 16 haf 19 bardagi.
Lausn.
LÁRÉTT: 2 lóga, 6 já, 8 met, 9 ósk, 11
ra, 12 stríð, 14 rásir, 16 sí, 17 asa, 18
æða, 20 tu, 21 rata.
LÓÐRÉTT: 1 fjós, 3 óm, 4 gerðist, 5 ata,
7 ástríða, 10 krá, 13 ísa, 15 rauf, 16 sær,
19 at.
Tónlistamaðurinn Ray Davies
heldur tónleika í Laugardalshöll
föstudaginn fjórtánda apríl. Verð-
ur þetta í fjórða sinn sem þessi
fyrrverandi leiðtogi rokkgrúpp-
unnar The Kinks kemur hingað til
lands, en hann hélt eftirminnilega
tónleika árið 2000 fyrir troðfullu
húsi. Aðeins verður um þessa
einu tónleika að ræða en Davies
kemur hingað ásamt hljómsveit
og mun flytja gömul lög í bland
við ný. Hann gefur út sína fyrstu
sólóskífu í febrúar.
The Kinks er talin vera ein-
hver áhrifamesta hljómsveit
síðari tíma en hún spilaði hér á
landi árið 1965 í Austurbæjar-
bíói og aftur árið 1970. Þá var
reyndar einn ákafasti aðdáandi
hljómsveitarinnar ekki fæddur en
hann hefur ekki látið ungan aldur
stöðva sig heldur segir aðdáunina
fara vaxandi með hverju ári.
Skarphéðinn Traustason, rúm-
lega tvítugur bæjarstarfsmaður,
var í óða önn að skafa gangstéttir
og tæma polla þegar Fréttablað-
ið náði tali af honum. „Heima hjá
mér voru ekki til neinar Bítla-
plötur heldur bara Kinksplötur
svo að þeir urðu mínir „bítlar“,“
útskýrir Skarphéðinn þegar
hann er krafinn skýringar á
þessum áhuga og kennir foreldr-
um sínum alfarið um. „Ég hlust-
aði fyrst á gömlu plöturnar en
hef síðan bætt mér upp það sem
á vantaði og á núna allt safnið,“
bætir hann við. Ferill The Kinks
er einn sá allra lengsti í rokksög-
unni en þeir störfuðu samfellt í
yfir þrjátíu ár. „Þeir stöðnuðu
aldrei og voru sífellt að leita á ný
mið,“ segir Skarphéðinn og bætir
við að stundum hafi þeir verið
elskaðir en hljómsveitin hafi
einnig kynnst óvild í sinn garð.
„Þeir afrekuðu það meðal ann-
ars að vera „cult“-hljómsveit hjá
Andy Warhol,“ bætir hann við og
býr augljóslega yfir miklum fróð-
leik um bresku risana. „Þeir hafa
haft mikil áhrif á bæði metal og
brittpopp,“ segir hann.
Skarphéðinn var mættur í
Laugardalshöllina fyrir sex árum
þegar Ray spilaði þar og ætlaði
að sjá hann í London þremur
árum síðar. „Þeim tónleikum var
hins vegar frestað eftir að hann
var skotinn í mjöðmina í New
Orleans,“ segir hann, en Davies
ætlaði að handsama þjóf sem
rændi veski kærustunnar hans.
„Reyndar er nýja platan hans
tileinkuð New Orleans vegna
flóðanna sem þar urðu enda
er Davies mikill áhugamaður
um djassinn og borgina,“ segir
Skarphéðinn.
freyrgigja@frettabladid.is
SKARPHÉÐINN TRAUSTASON: THE KINKS VORU MÍNIR BÍTLAR
Aðdáunin vex með árunum
SKARPHÉÐINN TRAUSTASON
Er einlægur aðdáandi The Kinks
en forsprakki hljómsveitarinnar
Ray Davies heldur tónleika hér
landi um miðjan apríl.
FRÉTTALBAÐIÐ / VALLI
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9