Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI f ó l k t í s k a t ó n l i s t s t j ö r n u s p á h ö n n u n m a t u r h e i l s a SJ Ó N VA RP SD AG SK RÁ IN 20 . j an úa r – 2 6. ja nú ar » er blóðh eit Ásgerður Júníusd óttir: Fjölskylda n sameinast í listinni Kynþokka fyllstu ka rlarnir Loðfeldir í vetrark ulda 01 bir ta-fors íða 1 7.1.200 6 16. 45 Pa ge 1 24% 43% Fr é tt a b la › i› Fr é tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Atvinnublað Morgunblaðsins Allt-atvinna. á sunnudegi Atvinnuleitin hefst í Fréttablaðinu! LESTUR MEÐAL 25-49 ÁRA Sími: 550 5000 FÖSTUDAGUR 20. janúar 2006 — 19. tölublað — 6. árgangur Útsala í BT Rauði þráðurinn rakinn María Reyndal leikstýrir leikhópi sem skipaður er Íslendingum af erlendu bergi brotnir og stefnir á að setja leikrit á fjalirnar í haust. FÓLK 50 Fríhöfnin Ísland Rauðvín er meinhollur drykkur, segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sem telur að hjartasjúkdómum myndi fækka væri fríverslun innleidd á Íslandi því þá myndi verð á rauðvíni lækka svo að ekki sé minnst á matvöruna. Í DAG 26 Líf og list Kjarvals Hvaða sess hefur þessi frægasti myndlistarmað- ur þjóðarinnar í íslensku menningar- lífi? Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir málþingi um Kjarval á laugardaginn. MENNING 34 ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR Fjölskyldan sameinast í listinni loðfeldir heilsa FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG ÍRIS DAVÍÐSDÓTTIR: Kaupir mikið á netinu matur tilboð Í MIÐJU BLAÐSINS NOKKUÐ BJART Einkum þó með suður- og suðausturströndinni. Stöku él á landinu norðaustanverðu og þykknar smá saman upp suðvestan til síðdegis. Yfirleitt vægt frost en hlýnandi veður í kvöld og á morgun. VEÐUR 4 VINNUMARKAÐUR Lettneska starfs- mannaleigan TMTK segir að íslensk lög og kjarasamningar gildi ekki um rúmenska rafsuðu- menn sem hafa verið sendir til starfa hjá Altak á Hellisheiði held- ur gildi lettnesk kjör þótt þeir séu starfandi hér á landi. Þetta kemur fram í svari TMTK við fyrirspurn samráðsnefndar verkalýðshreyf- ingar og atvinnurekenda og er fyrsta dæmið af þessu tagi hér á landi. „Við viðurkennum ekki þessa hugsun. Hér gilda íslenskir kjarasamningar og íslensk lög,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. Túlkun TMTK er í samræmi við túlkun lettneska fyrirtækis- ins Laval sem tók að sér byggingu skóla í Vaxholm í Svíþjóð. Laval flutti mannskap með sér frá Lett- landi og hugðist hafa hann á lett- neskum kjörum en því hafnaði sænsk verkalýðshreyfing. TMTK segir að Rúmenarnir fái 1.500 evrur eða sem jafngildir rúmlega 120 þúsund krónum á mánuði. Til viðbótar fái þeir gist- ingu, mat og bónus auk þess sem flug sé greitt fyrir þá á vinnustað og heim aftur, alls að verðmæti um 1.400 evrur. Samkvæmt þessu greiði TMTK hverjum starfsmanni um 250 þúsund krónur en Gunnar Þorsteinsson, forstjóri Altaks, vill ekki gefa upp hvað hann greiðir TMTK fyrir mennina. Gunnar segir að Rúmenunum hafi liðið vel á Íslandi og þeir hafi alltaf haft næga peninga. Ellefu menn hafi starfað hjá Altak á vegum TMTK og kveðst Gunnar hafa sótt um og fengið atvinnu- og dvalarleyfi fyrir sjö þeirra. Þeir muni því ekki lengur starfa hjá honum í gegnum starfsmannaleig- una. Það segist hann hafa gert til að einfalda málin og vegna þess að hann vilji ekki vera í blöðunum. Hann kveðst vinna með verkalýðs- hreyfingunni í þessum málum. „Vandamálið er að það er ekki hægt að fá iðnaðarmenn á Íslandi í dag.“ Gunnar á von á sendinefnd frá TMTK til fundar við sig í lok janúar. Hann veit ekki hvað þeir vilja ræða en segir: „Þeir urðu brjálaðir þegar ég hirti kallana af þeim en ég hef reynt að hamra á því við þá að stofna fyrirtæki hér og fara að íslenskum lögum.“ ghs Segir lettnesk lög gilda um starfsfólk Lettneska starfsmannaleigan TMTK, sem hefur leigt rúmenska starfsmenn til Altaks, telur að íslensk lög og kjarasamningar gildi ekki fyrir starfsmennina heldur lettnesk lög. Forstjóri Altaks segist hafa ráðið mennina sem launamenn til að einfalda málin. VEÐRIÐ Í DAG LÖGREGLAN Stúlka innan við tví- tugt lést í umferðarslysi sem varð á Hnífsdalsvegi, milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur, á fimmta tím- anum í gær. Hún var ein í bifreið sem rann út af veginum og hafnaði á hvolfi í sjónum á stað sem nefn- ist Eyrarmannalending. Löng og aflíðandi beygja er á staðnum þar sem bíllinn fór útaf. Stúlkan var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin. Í fyrstu var ekki hægt að úti- loka að hún hefði ekki verið ein í bílnum. Leituðu björgunarsveit- armenn því með strandlengjunni við erfiðar aðstæður í um tvær klukkustundir þar til búið var að ganga úr skugga um að stúlkan hefði verið ein á ferð. Lögreglan á Ísafirði rannsakar tildrög slyssins. Hún segir veðrið hafa verið með ágætum en mikil hálka hafi verið á veginum. - gag Bifreið endaði úti í sjó: Stúlka lést við Hnífsdal FRÁ SLYSSTAÐ Stúlka innan við tvítugt var flutt á sjúkrahús eftir að bifreið hennar endaði úti í sjó. Þar var hún úrskurðuð látin. Hér sést þegar bifreiðin sem stúlkan ók var hífð upp úr sjónum. FRÉTTABLAÐIÐ/BH LÖGREGLA Lögregla í forgangs- akstri lenti í hörðum árekstri við fólksbíl á mótum Nýbýlavegs og Dalvegs í Kópavogi um klukkan þrjú í gær. Lögreglumennirnir tveir voru fluttir á slysadeild til skoðunar með meiðsl á hálsi og hnjám. Öku- maður fólksbílsins slasaðist ekki, en bíll hans kastaðist við árekst- urinn á sendibíl. Lögreglan var á leið á Blá- fjallasvæðið þar sem orðið hafði slys, en tveir beinbrotnuðu í brekk- unum þar í gær. - gag Með blikkandi ljós í árekstri: Lögreglumenn á slysadeild ÍSRAEL, AP Fimmtán manns særðust þegar palestínskur maður sprengdi sig í loft upp við skyndibitasöluturn í Tel Aviv, höfuðborg Ísraels, í gær. Ástæða árásarinnar er talin vera tilraun til að koma frekara ójafn- vægi á í landinu, en palestínsku þingkosningarnar verða haldnar á miðvikudag. Herskáu palestínsku samtökin Islamic Jihad hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárásinni, en flokks- menn þeirra ætla sér að sniðganga kosningarnar. Stjórnvöld í Palest- ínu hafa fordæmt verknaðinn. - smk Sjálfsmorðsárás í Tel Aviv: Einn lést og 15 særðust HERSKÁIR PALESTÍNUBÚAR Mikill órói er nú í Palestínu, en vika er til kosninga í Ísrael. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLA Ríkislögreglustjóri rannsakar hvort fyrrum starfs- maður Glasafrjóvgunardeildar Landspítalans hafi látið skjól- stæðinga deildarinnar greiða um of svo skipti milljónum króna á árunum 2002 til 2004. Jóhannes Pálmason, yfirlög- fræðingur Landspítala-háskóla- sjúkrahúss, segir að misræmi hafi komið upp í bókhaldi deild- arinnar við reglubundið eftirlit á fjármálasviði sjúkrahússins. „Það varð til þess að hafin var rannsókn innanhúss sem síðan leiddi til þess að ríkisendur- skoðun kannaði málið. Í fram- haldi af þeirri skoðun var ákveðið að senda málið til lögreglu.“ Jóhannes segir að málið hafi verið kært til lögreglunnar fyrir ári síðan. Rannsókn hennar sé hins vegar á frumstigi. „Það eru annir á þeim bænum og ekkert við því að segja.“ Hann segir að ríflega eitt hundrað bréf hafi verið send skjólstæðingum eftir áramót þar sem óskað var leyfis til að afhenda lögreglunni nöfn þeirra, til að hægt væri að rann- saka málið. „Spítalinn fór þá leið til að halda trúnaði við fólkið.“ Jóhannes segir marga skjól- stæðinganna hafa svarað kalli spítalans og gefið leyfi til að lög- reglan hefði við þá samband. Jóhannes vill ekki gefa upp hve háar fjárhæðir starfsmað- urinn er grunaður um að hafa dregið að meðaltali frá hverjum. Hann segist ekki geta upplýst hvort starfsmaðurinn hafi verið einn að verki. Glasafrjóvgunardeild spítal- ans hefur verið lokað og starf- semin er komin í einkarekstur. - gag Ríkislögreglustjóri rannsakar fjárdrátt á Glasafrjóvgunardeild Landspítalans: Milljóna fjárdráttur í rannsókn Tap gegn Frökkum Frakkar bundu enda á sextán leikja sigurgöngu Viggós Sig- urðssonar þegar löndin mættust fyrir framan troðfulla Laugardals- höll. Frakkar unnu sanngjarnan sigur, 27-31. ÍÞRÓTTIR 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.