Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 16
16 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR
SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan hvet-
ur konur í borginni Umeå til að
fara varlega á kvöldin og nótt-
unni, sérstaklega milli eitt og
þrjú um helgar þar sem óþekktur
nauðgari gengur laus. Maðurinn
gengur undir nafninu Hagamað-
urinn.
Maðurinn nauðgaði og reyndi
að myrða 51 árs konu í desember
síðastliðnum. Hann beit af henni
eyrað og reyndi að drekkja henni
í nærliggjandi á en konunni tókst
að verja sig með því að bíta hann
í höndina og sleppa.
Konan sá andlit hans og
segir að hann hafi kantað and-
lit og hræðileg augu. Hann er
talinn vera 20-30 ára, lítill og
grannvaxinn, aðeins um 170-175
sentimetrar að hæð, ljóshærður
og ljós á brún og brá. Hann var
dökkklæddur þegar hann réðst á
konuna. Teikningu með mynd af
honum hefur verið dreift.
Nýlega hefur fengist staðfest
með DNA-prófi að nauðgarinn
er óþekktur ofbeldismaður sem
lék lausum hala 1998-2001. Á því
tímabili réðst hann á átta konur
í Umeå í Svíþjóð. Hann er talinn
árásargjarn einfari.
Sænskir vefmiðlar segja að
lögreglunni hafi aldrei tekist að
finna manninn og skyndilega
hafi árásirnar hætt. Ekkert hefur
spurst til hans fyrr en nú að hann
kemur fílefldur aftur til leiks.
Yfirmaður lögreglunnar segir
að rannsóknargögnin frá árun-
um 1998-2001 komi sér vel því að
nú sé hægt að þrengja hringinn
og útiloka nokkra sem áður voru
grunaðir. - ghs
Hagamaðurinn nauðgar konum í Umeå í Svíþjóð eftir fimm ára hlé:
Árásargjarn einfari ógnar konum
SÆNSKA LÖGREGLAN Hagamaðurinn er kominn aftur á stjá og tekinn til við fyrri iðju en
hann nauðgaði og misþyrmdi alvarlega átta konum í Svíþjóð á árunum 1998-2001.
NORDICPHOTOS/AFP
GRÝLUKERTI Í AUSTURRÍKI Grýlukerti sem
slúta fram af húsþaki í Lofer nærri Salzburg
í Austurríki að bráðna í sólinni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HAMFARIR „Ég var að koma úr
vaktafríi og ætlaði að freista þess
að ganga yfir Hrafnseyrarheiði,
sem var ófær bílum eins og
svo oft áður, til að komast til
Þingeyrar og þaðan til Ísafjarðar
að ná fluginu suður,“ segir Jón
Örn Arnarson, tæknifræðingur við
Mjólkárvirkjun í Arnarfirði. Þessi
ferð sem hann lagði upp í í síðustu
viku fékk óvæntan endi en Jón Örn
lenti í snjóflóði á leiðinni og villtist
svo af leið.
„Ég heyrði þegar flóðið fór af
stað en það var myrkur svo það var
erfitt að athafna sig. Þetta bar líka
svo fljótt að svo ég hafði ekki einu
sinni tíma til að verða hræddur,“
segir hann.
Nýfallin fönn sem lá á harðfenni
fór af stað og tók Jón Örn. Hann
segist ekki hafa áttað sig á því
hversu langt hann barst með flóðinu.
„Þegar ég komst upp á heiðina taldi
ég mig á veginum til Dýrafjarðar
en þetta reyndist svo vera vegurinn
sem liggur í Arnarfjörð,“ segir
hann. Björgunarsveit var farin af
stað og það var vinnufélagi Jóns
Arnar sem mætti honum þreyttum
en ómeiddum í Manntapagili eftir
fjögurra tíma hrakningar.
Fjölskylda Jóns Arnar býr
í Reykjavík og freistar hann
þess að komast í hennar faðm í
vaktarfríum. - jse
Jón Örn Arnarson lenti í snjóflóði og villtist á Hrafnseyrarheiði:
Náði aldrei að verða hræddur
JÓN ÖRN ARNARSON Vinnur við Mjólk-
árvirkjun í Arnarfirði en fer suður í faðm
fjölskyldu sinnar í vaktarfríum sem hann
fær hálfsmánaðarlega.
SVÍÞJÓÐ Áfengisframleiðendur
á Norðurlöndum og í Eystra-
saltslöndunum hafa áhyggjur af
þeirri fyrirætlan Evrópusam-
bandsins að leyfa framleiðslu á
vodka úr hvaða landbúnaðaraf-
urð sem er, að sögn vefútgáfu
Dagens Nyheter.
Finnar, Pólverjar og Svíar
fylgja rússnesku skilgrein-
ingunni á vodka sem þýðir að
drykkurinn verður að vera
framleiddur úr korni eða kart-
öflum og hafa þeir mótmælt
breytingu á reglunum í þessa átt.
Verði reglunum breytt yrði til
dæmis hægt að framleiða vodka
úr banönum og bananahýði. - ghs
Áfengisframleiðslureglur ESB:
Bananavodka
hugsanlegt
Ástrali dæmdur Hæstiréttur Indó-
nesíu hefur dæmt ástralska stúlku í 20
ára fangelsi fyrir að smygla 4,2 kílóum
af maríjúana til Balí í maí síðastliðnum.
Dómurinn hefur vakið mikla reiði í
Ástralíu þar sem margir trúa að Schapelle
Corby sé saklaus, en flugvallarstarfsfólk
fann maríjúanað í farangri hennar.
INDÓNESÍA
SVÍÞJÓÐ Veiðimenn í norðurhluta
Svíþjóðar eru óánægðir vegna til-
lögu sem gerir ráð fyrir að sam-
eiginleg stjórn Sama, landeigenda
og sænska ríkisins stjórni skot- og
fiskveiðum á svæðinu.
Samtök veiðimanna telja að til-
lagan eigi ekkert erindi til þings-
ins. Þeir telja að gríðarleg skrif-
finnska verði í kringum veiðarnar
og veiðiréttinn og forræðið verði
bara flóknara í stað þess að verða
einfaldara. ■
Veiðilendur Sama:
Forræðið verð-
ur flóknara