Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 4
4 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR
�
�
��
��
�
�
�
��
�
��
�
��
�
�
�� �������
�����������
�����������
��������������������������
���������������������
�����������������������������
���������������
�� ����������������������������
PAKISTAN, AP Eldflaugaárás banda-
ríska hersins á lítið landamæra-
þorp í Pakistan fyrir helgi hefur
orðið kveikjan að fjölmennum
mótmælum víðsvegar um landið.
Að minnsta kosti 18 óbreyttir borg-
arar létu lífið í árásinni, en pakist-
önsk yfirvöld herma að einnig hafi
fjórir eða fimm erlendir meðlimir
al-Kaída-hryðjuverkasamtakanna
fallið þar og í gær voru birtar
upplýsingar um hvaða menn þetta
voru.
Minnst 10.000 herskáir músli-
mar hafa flykkst út á götur víða
um Pakistan, mótmælt árásinni
hástöfum og fordæmt bæði Banda-
ríkin sem og forseta Pakistans,
Pervez Musharraf, fyrir samvinnu
hans við Bandaríkin. Tvær mót-
mælagöngur hafa verið boðaðar í
dag. Allar eru göngurnar sagðar
hafa farið friðsamlega fram, þótt
ýmsir séu orðljótir í garð Banda-
ríkjanna.
Pakistönsk yfirvöld segja árás-
ina hafa verið ætlaða næstæðsta
manni al-Kaída, Ayman al-Zawa-
hri, sem ekki var á staðnum þegar
árásin var gerð. Hinir föllnu eru
taldir vera sprengju- og eiturefna-
sérfræðingurinn Midhat Mursi al-
Sayid Umar, sem bandarísk yfir-
völd höfðu sett fimm milljónir dala
til höfuðs, Abu Obaidah al-Masri,
yfirmaður samtakanna í Kúnar-
héraðinu í Afganistan og Abdul
Rehman al-Maghribi, sem talinn
er vera tengdasonur al-Zawahri og
sem sagður er hafa veitt arabísk-
um blaðamönnum upplýsingar um
hryðjuverkasamtökin.
Auk þeirra telja sumir að yfir-
maður samtakanna við landamæri
Pakistans og Afganistans, Khalid
Habib, hafi fallið í árásinni.
Lík mannanna hafa ekki fund-
ist, en pakistönsk yfirvöld telja að
stuðningsmenn hafi fjarlægt þau í
skjóli myrkurs skömmu eftir árás-
ina með það í huga að grafa líkin
svo ekki væri hægt að bera kennsl
á þau.
Innanríkisráðherra Pakist-
ans, Aftab Sherpao, taldi líklegt
að eftirlýstur múslimaklerkur
sem styður talibana hafi fjarlægt
líkin. Klerksins, Maulana Faqir
Mohammed, er nú ákaft leitað.
Sherpao var í New York ásamt for-
sætisráðherra Pakistans, Shaukat
Aziz, sem er í opinberri heimsókn
í Bandaríkjunum.
Pakistönsk yfirvöld hafa for-
dæmt árásina og halda því fram að
þeim hafi ekki verið tilkynnt um
hana fyrirfram.
smk@frettabladid.is
Reiði í garð Bandaríkjanna
Fjölmenn en friðsamleg mótmæli gegn Bandaríkjunum voru í pakistönskum borgum í gær í tilefni af
flugskeytaárás sem varð 18 óbreyttum Pakistönum að bana. Pakistönsk yfirvöld segja árásina hafa verið
ætlaða Ayman al-Zawahri, sem ekki var á staðnum. Nokkrir al-Kaídaliðar eru einnig sagðir hafa fallið.
ÁRÁS FORDÆMD Fylgismenn múslimaflokksins Jamat-i-islami brenna líkneski Bush Bandaríkjaforseta á fjölmennum mótmælafundi í Peshawar í Pakistan í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL „Dómara verður heimilt
að dæma mann til greiðslu miska-
bóta og við mat á fjárhæð bótanna
verður lagt til grundvallar að þær
hafi verulega þýðingu fyrir þann
sem dæmdur er,“ segir Sigurður
Kári Kristjánsson sem í gær lagði
fram frumvarp til breytinga á
hegningalögum og skaðabótalögum.
Sautján aðrir þingmenn Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks flytja
frumvarpið með Sigurði Kára.
Frumvarpið boðaði hann nýver-
ið í tengslum við DV-málið, en þar
var því haldið fram að tengsl væru
á milli nafn- og myndbirtingar
blaðsins og þess að maður svipti sig
lífi á Ísafirði.
„Viðbót í frumvarpinu er sú að ef
meingerð er sett fram í ágóðaskyni
eða ef viðkomandi hefur lagt sig
fram um að koma henni á framfæri
skuli það verða til hækkunar bóta-
fjárhæðar. Enda komi það einnig
til lækkunar ef viðkomandi hefur
reynt að bæta fyrir brot sitt,“ segir
Sigurður Kári.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að markmið flutningsmanna
sé að auka friðhelgi einkalífsins
og auka skaðabótarétt þeirra sem
sæta aðför gegn æru og persónu.
Sigurður Kári segir að gert sé
ráð fyrir að refsing sé jafn þung
og því þurfi að taka mið af fjárhag
þess dæmda. - jh
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON Þingmað-
urinn segir að við mat á fjárhæð bótanna
verði lagt til grundvallar að þær hafi veru-
lega þýðingu fyrir þann sem dæmdur er.
Átján þingmenn stjórnarflokkanna flytja frumvarp um aukinn skaðabótarétt:
Kallar eftir ábyrgð á orðum
BRUSSEL, AP Fiskveiðiþjóðir Evr-
ópusambandsins gera ekki nóg til
að sjá til þess að aflatakmörkun-
um sé framfylgt. Vegna þessa er
þorskstofninn í Norðursjó kom-
inn á barm algers hruns. Þetta
er meðal þess sem fram kemur í
nýrri úttekt framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins á fiskveiði-
málum í lögsögu þess, en slík
skýrsla er gefin út árlega.
Í skýrslunni segir að Írar og
Spánverjar hafi á árinu 2004 gert
sig seka um grófustu brotin á afla-
takmörkunum. ■
ESB-skýrsla um fiskveiði:
Aflatakmark-
anir ekki virtar
FISKVEIÐAR ESB Spænskir sjómenn inn-
byrða afla sinn. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLA Átta bíla árekstur varð
við Gullinbrú í Grafarvogi um
fjögurleytið í gær. Einn öku-
mannanna í bílunum átta fann til
eymsla í hálsi og baki eftir árekst-
urinn og var fluttur á sjúkrahús
til skoðunar.
Bílarnir voru allir ökufærir
eftir áreksturinn utan einn sem
var fluttur burt með dráttarbíl.
Lögreglan telur að slysið, sem
varð við norðurenda brúarinnar,
hafi orðið sökum hálku á vegin-
um.
Lögreglan fékk tilkynningar
um 27 áreksta frá morgni til
kvölds í gær, miðað við fimmtán
árekstra daginn áður. - gag
Átta bíla árekstur á Gullinbrú:
Einn fann til í
baki og hálsi
RÍKISÚTVARP Stjórnarandstæðing-
ar í menntamálanefnd Alþingis
neituðu í gær að fjalla um gögn
Eftirlitsstofnunar EFTA um mál-
efni Ríkisútvarpsins sem bundnar
væru trúnaði. „Upplýsingarnar
eru enn bundar trúnaði hjá ESA
og óheimilt að opinbera gögnin
meðan þau eru enn til meðferðar,“
segir Sigurður Kári Kristjánsson,
formaður nefndarinnar.
Fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar í nefndinni sættust ekki á
trúnaðarskylduna en frumvarp
um Ríkisútvarpið verður rætt á
Alþingi í næstu viku. - jh
RÚV í menntamálanefnd:
Trúnaður ríkir
um gögn ESA
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 19.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 61,78 62,08
Sterlingspund 108,60 109,12
Evra 74,26 74,68
Dönsk króna 10,00 10,029
Norsk króna 9,15 9,177
Sænsk króna 7,994 8,017
Japanskt jen 0,5361 0,5377
SDR 88,45 89,72
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
103,9022