Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 42
20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Þóranna Finnbogadóttir
Kristnibraut 77, Reykjavík,
sem lést á Landspítala Landakoti, laugardaginn
14. janúar, verður jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju,
Austur-Eyjafjöllum, laugardaginn 21. janúar kl. 11.00.
Eyjólfur Torfi Geirsson Þóra Sigríður Einarsdóttir
Kristín Geirsdóttir Ólafur Hróbjartsson
Tryggvi E. Geirsson Dagný Ingólfsdóttir
Kolbrún Geirsdóttir Guðmundur Sigurðsson
Þórhildur R. Geirsdóttir
Magnús Þór Geirsson Margrét Erna Þorgeirsdóttir
Axel Geirsson Ásgerður S. Gissurardóttir
Finnbogi Geirsson Dalrós Jónasdóttir
Gauðlaug Geirsdóttir Þórarinn Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
AUDREY HEPBURN (1929-
1993) LÉST ÞENNAN DAG.
„Ég fæddist með gríð-
arlega þörf fyrir ástúð,
og hræðilega þörf til að
veita hana.“
Audrey Hepburn var fyrirsæta,
leikkona og mannvinur.
Á þessum degi árið
1841, í miðju ópíum-
stríðinu svokallaða milli
Kínverja og Breta, afsöl-
uðu þeir fyrrnefndu sér
völdum á eyjunni Hong
Kong til Breta með und-
irritun Chuenpi-sáttmál-
ans. Þetta var gert til að
finna lausn á deilunni
milli þjóðanna og sem
tilraun til að koma á
friði.
Bretar höfðu ráðist
inn í Kína árið 1839 til
að bæla niður andstöðu gegn
afskiptum þeirra af efnahag og
stjórnmálum landsins. Eitt fyrsta
verk Breta var að hernema Kong
Kong, strjálbýla eyju út af strönd
suðausturhluta Kína. Opíumstríð-
inu lauk formlega árið 1842 við
undirritun Nanking-samkomu-
lagsins.
Hin nýja nýlenda
Breta blómstraði sem
miðstöð verslunar milli
austurs og vesturs. Árið
1898 fengu Bretar áfram-
haldandi stjórn yfir borg-
inni í 99 ár til viðbótar.
Í september 1984, eftir
áralangar samningavið-
ræður, var komist að því
samkomulagi að Bretar
skyldu afhenda Kínverj-
um yfirráð yfir Hong
Kong árið 1997 gegn því
að kapitalísku kerfi borgar-
innar yrði haldið við.
Þann 1. júlí 1997 var Hong
Kong afhent Kínverjum við frið-
samlega athöfn.
ÞETTA GERÐIST > 20. JANÚAR 1841
Hong Kong undir stjórn Breta
HONG KONG Í DAG
AFMÆLI
Pjetur St. Arason
kennari er 39 ára.
Þórhallur Sigurðsson
(Laddi) leikari er 59
ára.
Gísli Valur Einarsson, hótelhaldari
í Vestmannaeyjum, er 63 ára
Jón Hjartarson leikari
er 64 ára.
Baldur Jónsson, prófessor í
íslensku, er 76 ára.
MERKISATBURÐIR
1936 Georg V Englandskonungur
andast.
1957 Vilhjálmur Einarsson er
kosinn íþróttamaður ársins.
Þetta var í fyrsta sinn sem
kjörið fór fram.
1958 Söngvarinn Elvis Presley
fær herkvaðningu.
1961 John F. Kennedy er svarinn í
embætti Bandaríkjaforseta.
Hann var yngsti maðurinn
til að gegna því embætti.
1991 Skíðaskálinn í Hveradölum
brennur til kaldra kola.
1996 Jasser Arafat er kosinn
leiðtogi Palestínu.
1999 Undirritað er samkomulag
menntamálaráðuneytisins
og Microsoft um íslenskun
á Windows 98.
ANDLÁT
Guðrún Briem Björnsson lést
á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund mánudaginn 16. janúar.
Sigurður Jónsson, Álfaskeiði 127,
Hafnarfirði, lést á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi mánudaginn
16. janúar.
Ormur Guðjón Ormsson rafvirkja-
meistari, Framnesvegi 20, Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja þriðjudaginn 17. janúar.
Skúli Kristjónsson, frá Svigna-
skarði, Egilsgötu 19, Borgarnesi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn
17. janúar.
JARÐARFARIR
11.00 Rúnar Vincent Jensson
verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju.
13.00 Bjarni Pálsson sjómaður,
Hrafnistu, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Áskirkju í
Reykjavík.
13.00 Pétur Gauti Hermannsson,
Holtsbúð 42, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju.
13.00 Pétur Sigurðsson, Geitlandi
8, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju.
13.30 Arnvið Hansen (Alli),
Dalvík, verður jarðsunginn
frá Dalvíkurkirkju.
14.00 Aðalbjörn Jónsson, Vest-
urgötu 36, Keflavík, áður
til heimilis á Hólavöllum,
Garði, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
14.00 Hólmfríður Héðinsdóttir,
Dalbraut 27, Akranesi,
verður jarðsungin frá Akra-
neskirkju.
14.00 Jóhannes Kristinn Árna-
son, Suðurengi 33, Selfossi,
áður bóndi á Moldnúpi,
verður jarðsunginn frá
Ásólfsskálakirkju.
14.00 Jóna Jakobína Jónsdóttir,
Vogum, Mývatnssveit,
Langholtsvegi 139, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá
Reykjahlíðarkirkju.
14.00 Víkingur Guðmundsson,
Grænhóli, Akureyri, verður
jarðsunginn frá Glerárkirkju.
15.00 Ásgeir Þór Ásgeirsson,
Vífilsgötu 6, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju.
15.00 Kjartan Guðmundur
Magnússon, Hlíðarhjalla
56, Kópavogi, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni.
Íslendingar sem búið hafa
í Edinborg um lengri eða
skemmri tíma koma saman
til „Burns kvöldverðar“ í
Kiwanissalnum við Engja-
teig í Reykjavík annað kvöld.
Robert Burns er þjóðskáld
Skota og minnast landar
hans og aðrir sem aðhyllast
skoska menningu fæðingar
hans en Burns fæddist 25.
janúar 1759.
„Hann hefur svip-
aða stöðu í Skotlandi og
Jónas Hallgrímsson meðal
okkar Íslendinga,“ segir
Guðrún Hólmsteinsdóttir
sem kemur að undirbún-
ingi kvöldverðarins ásamt
öðrum stjórnarmönnum.
Hún var í MBA námi í Edin-
borg fyrir nokkrum árum
og eiginmaður hennar í
meistaranámi í verkfræði.
Um Burns er það annars
að segja að ævi hans var
skrautleg eins og títt var
með skáld þess tíma, hann
lifði hratt, drakk og dufl-
aði og lést langt fyrir aldur
fram, aðeins 37 ára.
Um 300 manns eru í Edin-
borgarfélaginu og hefur
þorri þess fólks numið í
borginni. Skilyrði félagsað-
ildar eru þó ekki strangari en svo að í raun er nóg að
hafa áhuga á skoskri menn-
ingu til að vera gjaldgeng-
ur.
Burns-kvöldverðurinn
hefur verið haldinn hér
nokkur undangengin ár og
jafnan myndast góð stemn-
ing með skoskum brag en
Skotar þykja þjóða glað-
lyndastir og kunna þá list að
skemmta sér. Ekki er ólík-
legir að einhverjir karlanna
klæðist skotapilsum en
dulúð þeirra er margþekkt
enda hermir almannaróm-
ur að þeir séu jafnan naktir
undir pilsunum. Og auðvit-
að er boðið upp á þjóðarrétt-
inn haggis. „Haggis er ekki
ósvipað íslensku slátri en þó
bragðmeira,“ segir Guðrún.
Með því eru bornar fram
kartöflur og rófustappa.
„Svo hella sumir viskíi út
á til að brjóta fituna aðeins
niður en haggis er mjög
feitt.“ Tár af eðalviskí þykir
annars ómissandi með.
Burns hafði sérstakt
dálæti á haggis og gerði
réttinn ódauðlegan með
Óðnum til haggis. Er hann
vitaskuld fluttur við kvöld-
verðinn.
Guðrún unni hag sínum
í Edinborg vel en aðstæð-
ur þar eru um margt líkar
því sem við þekkjum hér.
„Við höfðum það mjög gott,
borgin er lítil, þar eru um
fimm hundruð þúsund íbúar
og þar ríkir svipuð veðrátta
og á Íslandi; rigning, rok og
skammdegi. Þar er þó snjó-
léttara en hér.“ Og hún ber
Skotunum líka vel söguna.
„Þeir eru mjög vinalegir og
líkir okkur að vissu leyti.
Þeir stunda reyndar afar
óhollt líferni, borða óhollan
mat og drekka talsvert.“
Skoski sekkjapípuleik-
arinn Duncan McKinnon
kemur til landsins til að
vera við kvöldverðinn en
hann var hér einnig í fyrra
og gerði stormandi lukku.
Nú hefur hann með sér
harmonikuleikara og munu
félagarnir leika skosk þjóð-
lög á hljóðfæri sín. Áhuga-
samir geta einnig hlýtt á
leik þeirra félaga á kránni
Dubliners í Hafnarstræti í
kvöld.
Burns-kvöldverðurinn
hefst klukkan 19 og er
aðgangseyrir 3.500 krónur.
SKÁLDIÐ ROBERT BURNS Skotar og
Skotlandsvinir minnast fæðingar
hans þessa dagana.
GUÐRÚN HÓLMSTEINSDÓTTIR Æltar að borða haggis með öðrum Skotlandsvinum annað kvöld og minnast fæðing-
ar Roberts Burns þjóðskálds Skota. Í bakgrunni er skoski fáninn.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
EDINBORGARFÉLAGIÐ: KVÖLDVERÐUR TIL HEIÐURS SKÁLDINU BURNS
Haggis, viskí og sekkjapípa
Laugardaginn 21. janúar
setur Arna Valsdóttir lista-
kona upp verk sitt Kvika í
Gallerí Boxi á Akureyri. Arna
hefur á síðustu árum þróað
innsetningarverk sem hún
kallar Ögn í lífrænni kviksjá,
en hún vinnur með einfaldan
tæknibúnað í tilteknu rými.
Sú tækni sem hún notar
byggir á því að skapa sama
umhverfi og er inni í kviksjá
líkt og margir léku sér með
sem börn, fyrir utan að Arna
þenur hana upp í stærra rými
sem manneskja getur gengið
inn í og verður hún þá um
leið ögnin og breytir þeirri
mynd sem sést.
Arna nam myndlist
við Grafíkdeild MHÍ og
við Video/Audiodeild Jan
van Eyck akademíuna í
Maastricht í Hollandi. Sýn-
ing hennar í Gallerí Boxi
opnar klukkan 16.
Ögnin í kviksjánni
SPEGLAINNSETNING Arna Valsdóttir opnar sýningu á verki sínu Kvika í
Gallerí Boxi á laugardag.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1920 Frederico Fellini
leikstjóri.
1896 George Burns
leikari.
1716 Carlos III kon-
ungur Spánar.
1873 Johannes V.
Jensen skáld og
rithöfundur.