Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 55
ENGAR MÁLAMIÐLANIR, NJÓTUM LÍFSINS TIL FULLS!
Árslistakvöld Breakbeat.is verð-
ur haldið í þriðja sinn á Nasa í
kvöld. Heiðursgestur er Paul
Harding, betur þekktur sem El
Hornet, þriðjungur áströlsku
hljómsveitarinnar Pendulum.
Pendulum skaust upp á stjörn-
uhimin drum & bass-heimsins
árið 2003 með laginu Vault. Síð-
asta ár var gjöfult fyrir Pendul-
um sem sendi frá sér fjölda laga
sem náðu vinsældum víða um ver-
öld auk sinnar fyrstu breiðskífu,
Hold Your Colour, sem fengið
hefur mjög góðar viðtökur.
Hér á Íslandi er Pendulum
sennilega þekktust fyrir end-
urhljóðblöndun sína af gamla
Prodigy-slagaranum „Voodoo
People“ sem hefur hljómað tölu-
vert á öldum ljósvakans undan-
farið og nýja lagið „Slam“.
Kvöldið hefst á útsendingu
á árslista Breakbeat.is á X-inu
97.7 í beinni frá NASA. Þar renna
plötusnúðar Breakbeat.is yfir það
markverðasta sem drum & bass
heimurinn hafði upp á að bjóða á
árinu sem var að líða. Eftir það
verður slegið upp balli með El
Hornet. Upphitun verður í hönd-
um Kalla, Lella og Gunna Ewok
frá Breakbeat.is. Forsala á kvöld-
ið fer fram í Þrumunni og kostar
miðinn 1000 krónur en 1500 við
dyrnar. ■
Hornet spilar
á árslistakvöldi
EL HORNET Meðlimur Pendulum treður upp á árslistakvöldi Breakbeat.is í kvöld.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Halle Berry segist langa svo mikið í barn að hún muni
sennilega eignast eitt stykki
með manninum sem verður í
lífi hennar þegar hún verður
fertug nú í ágúst. „Ef ég
verð ekki í föstu sambandi
spyr ég sennilega þann sem
ég er að hitta hvort hann vilji
eignast barn með mér,“ sagði
Halle í viðtali hjá Opruh Winfrey.
Jamie Burke, nýi gæinn henn-ar Kate Moss, virðist ekki
hafa verið hættur með hinni
kærustunni sinni þegar hann
var myndaður í kossaflensi
með Moss. Jessie Leonard
var meðan á þessu
stóð heima í íbúðinni
þeirra, en þau höfðu
verið saman í tvö ár. „Við
héldum að þau myndu giftast en nú er
hann með Moss, við trúum þessu varla,“
sagði ættingi Jessie. „Jamie er alltaf að
reyna að hringja í hana til að biðjast
afsökunar en hún vill ekki tala við
hann.“
Victoria Beckham er þessa dag-ana að skrifa barnabók sem
kemur út í tengslum við barnaföt
sem hún hyggst bæta í fatalínu
sína. Victoria er afar ánægð með
fatalínuna og sagði í viðtali við ítalskt
tímarit: „Fólk elskar að klæða sig eins og
ég. Því ekki að græða á því?“
Leikkonan Kate Beckinsale átti upphaflega að vera stjarna
hryllingsmyndarinnar The Ring
en fékk ekki hlutverkið því
framleiðendunum fannst hún
ekki nógu móðurleg. Leik-
konan á sex ára dóttur, Lily,
með fyrrverandi kærastanum
sínum, Michael Sheen.
„Þau báðu mig um að
leika í The Ring en hættu
svo við því þeim fannst ég
ekki líta út fyrir að vera
móðir. Samt á ég barn
en ekki Naomi Watts,“
sagði hún, greinilega
svolítið súr.