Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 50
 20. janúar 2006 FÖSTUDAGUR38 Hljómsveitin Fræ, með Pál Ragnar Pálsson, gítar- leikara Maus, og þá Heimi Björnsson og Sigurð Krist- in Sigtryggsson úr Skyttun- um innanborðs, er að leggja lokahönd á sína fyrstu plötu. Freyr Bjarnason ræddi við Palla um þetta nýja verkefni. Platan er væntanleg með vor- inu en lagið Freðinn fáviti fer í útvarpsspilun á næstunni og verða það fyrstu tónarnir sem fá að hljóma opinberlega með Fræi. Spiluðu saman á Súðavík „Við í Maus og Skytturnar spiluðum saman fyrir löngu síðan. Við hittumst fyrst þegar við spil- uðum saman á menntaskólaballi á Súðavík og upp úr því komu pæl- ingar um það hvort við myndu gera lag saman, en það varð ekkert úr því,“ segir Palli. „Síðan gerðist það síðasta sumar að ég kíkti til þeirra í stúdíó og prófaði að spila yfir eitthvað sem þeir voru að gera. Þá fundum við ákveðið sánd sem við vorum að fíla og ákváðum að gera sjálfstæða plötu. Þeir biðu þá með það sem þeir voru að gera. Þannig að grunnurinn að plötunni var lagður á nokkrum dögum í lok júlí,“ segir hann. Mr. Silla til aðstoðar Palli lýsir tónlistinni sem bræð- ingi af hinu og þessu. „Þetta er frekar mikið popp, sem vill svo til að er rappað í. Þarna er ég með mínar pælingar og þeir með sínar,“ segir hann, en rappið er álíka áberandi og hefðbundinn söngur á plötunni. Nokkrir gestasöngvarar voru fengnir til aðstoðar og lagði Mr. Silla þar mest að mörkum. „Hún kom inn sem gestur en endaði á því að syngja í rúmlega helmingn- um á plötunni og er orðin hálf- gerður meðlimur núna. Hennar hluti var stærri en við bjuggumst við,“ segir Palli. Auk Mr. Silla syngur Raggi Kjartans úr Trabant í einu lagi og Anna Katrín úr Idol í tveimur lögum. Einnig koma við sögu á plötunni barnakór og strengjakvintett. Byrjað á öfugum enda Fræ er um þessar mundir að æfa lögin til að geta spilað þau á tón- leikum, þó svo að engir tónleik- ar hafi enn verið ákveðnir. „Við byrjuðum eiginlega á öfugum endanum. Við byrjuðum á að gera plötuna og erum núna að fara að æfa lögin. Hlutverkaskiptingin er þannig að Heimir sér alfarið um rapp og alla texta, Siggi tekur allt upp og gerir bít í tölvunni og ég spila á hljóðfæri og sem megn- ið af hljómagöngum og melódíu. Það virkar vel að svona gæjar hittist bara í hljóðveri og taki upp saman,“ segir Palli. Rappsveitin Skytturnar, sem er upphaflega frá Akureyri, gaf út plötuna Illgresið árið 2003 sem fékk mjög góðar viðtökur. Ekkert hefur þó heyrst í Skyttunum lengi en ný plata mun þó vera í bígerð sem er væntanleg síðar á árinu. Þess má þó geta að Siggi gaf út plötuna Activity undir listamanns- nafninu Sadjei á síðasta ári. Maus er enn í pásu á meðan flestir liðsmenn sveitarinnar einbeita sér að öðrum verkefn- um. Auk hljómsveitar Palla, Fræ, er söngvarinn Birgir Örn Steinarsson að vinna að sólóplötu í London undir listamannsnafninu Bigital og trommarinn Daníel Þor- steinsson er í 90´s hljómsveitinni Sometime. Síðasta plata Maus, Musick, kom út árið 2003 og hlaut prýðilegar viðtökur rétt eins og platan frá Skyttunum. Þeir sem vilja kynnast Fræi nánar er bent á heimasíðuna Myspace.com/eydileggjumokkur. Skytturnar eru jafnframt með slóðina Myspace.com/skytturnar. freyr@frettabladid.is Plata tilbúin frá Palla og Skyttunum tveimur FRÆ Hljómsveitin Fræ ásamt fjórða meðlimnum Mr. Silla sem syngur í rúmlega helmingi laganna á plötunni. Lagið Freðinn fáviti fer í spilun í útvarpi á næstunni. MYND/STEINAR ÓLI JÓNSSON Hljómsveitin Jakobínarína er undir smásjánni hjá breska hljómplötufyrirtækinu Rough Trade og gæti skrifað undir samning við það á næstunni. Mikið hefur verið talað um sveitina undanfarin misseri bæði hérlendis og í erlend- um tónlistartímaritum, þó svo að hún eigi enn eftir að gera sína fyrstu plötu. Segir Heimir Eggertsson, gítarleikari hljóm- sveitarinnar, að nokkur hljóm- plötufyrirtæki hafi sýnt áhuga á sveitinni en áhugi Rough Trade hafi verið mestur. Á meðal þeirra listamanna sem eru á mála hjá fyrirtækinu eru Emilíana Torrini, The Strokes, Arcade Fire, Babyshambles og Antony and the Johnsons. Jakobínarína, sem er á mála hjá 12 Tónum, spilar á tónlistarhátíðinni South by Southwest í Texas um miðan mars ásamt Þóri. „Við erum alveg gríð- arlega spenntir. Þetta er svo fáránlega gaman. Við höfum aldrei áður farið út að spila og þetta verður algjört ævintýri fyrir okkur,“ segir Heimir. Jakobínarína ætlar að reyna að gefa út smáskífu áður en hún spil- ar á hátíðinni. Þar verða lögin Power To The Lonely, His Lyrics Are Disastrous, ásamt einu til viðbótar. Breiðskífa er fyrirhuguð í sumar og hefjast upptökur í vor. Næst spilar sveitin á forvarnartónleikum á Nasa annað kvöld þar sem Egó kemur einnig fram. Undir smásjánni hjá Rough Trade > Popptextinn „I hear stories from the chamber How christ was born into a manger And like some ragged stranger Died upon the cross And might I say it seems so fitting in its way He was a carpenter by trade Or at least that‘s what I‘m told“ Nick Cave syngur á kaldhæð- inn hátt um dauða Krists í laginu The Mercy Seat. Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI Richard Ashcroft: Keys to the World, Nick Cave and the Bad Seeds: The Road to God Knows Where -DVD, Ryan Adams: 29 og The Fiery Furn- aces: Rehearsing My Choir. 1. DR. MR & MR HANDSOMEKOKALOCA 2. COLDPLAYTALK 3. AMPOPMY DELUSIONS 4. BC CAMPLIGHTBLOOD AND PEANUT BUTTER 5. AVENGED SEVENFOLDBAT COUNTRY 6. BLINK 182NOT NOW 7. MY CHEMICAL ROMANCETHE GHOST OF YOU 8. BLOC PARTYHELICOPTER 9. VAXYOUR HAIR IS STUPID 10. SYSTEM OF A DOWNHYPNOTIZE X-LISTINN TOPP 10 LISTI X-INS 977 DR MR & MR HANDSOME Hljómsveitin Dr Mr & Mr Handsome er á toppi X-listans með lagið Kokaloca. Axl Rose, söngvari Guns n´Ros- es, skaut óvænt upp kollinum í útgáfupartíi rokksveitarinnar Korn í Hollywood á dögunum. Þar var hann spurður út í plötuna l a n g þ r á ð u , Chinese Dem- ocracy, sem enn er ekki komin út, tíu árum eftir að upptökur hófust. Hann segir að 32 ný lög séu í vinnslu og að 26 þeirra séu nánast tilbú- in. „Fólk fær að heyra tónlistina á þessu ári,“ sagði Rose. „Ég er að reyna að gera eitthvað öðru- vísi. Sumar útsetningarnar eru líkar Queen. Sumt fólk á eftir að segja að þetta hljómi ekkert eins og Axl Rose og ekkert eins og Guns n´Roses. En þú hefur örugg- lega gaman af nokkrum lögum þarna,“ sagði hann. Þrettán af lögunum 26 verða á Chinese Democracy, þar á meðal Better, There Was a Time og The Blues. Rose segir ólíklegt að upp- haflegir meðlimir Guns n´Roses komi saman á nýjan leik en gefur til kynna að farin verði tónleika- ferð með nýrri uppstillingu á næstunni. ■ 32 ný lög í vinnslu AXL ROSE Söngvari Guns n´Roses lofar nýjum lögum á næst- unni frá sveitinni. > Plata vikunnar Singapore Sling: Taste the Blood of Singapore Sling „Dimmt, drungalegt og afar, afar svalt.“ VG MAGNÚS GUÐJÓNSSON, FORSTÖÐUMAÐUR HES Bað bréfbera í Keflavík að njósna um íbúa ,,ólöglegt,” segir forstjóri Persónuverndar Ól l t,” DV2x15-lesin 19.1.2006 20:53 Page 1 tonlist@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.