Tíminn - 13.02.1977, Page 8
6
Sunnudagur 13. febrúar 1977
Doktorsritgerð um
íslenzkar kvöldvökur
Nemendur í
Hamrahlíðar-
skóla frumsýna
,,Drekann"
F.I. ReykjavDc — t kvöld frum-
sýna nemendur i Menntaskól-
anum viö Hamrahliö i hátiöasal
sinum leikritiö „Drekann” eftir
rússneska höfundinn Schwarz.
Leikstjóri er Þórey Siguröar-
dóttir, en leikendur eru i kringum
30.
„Drekinn”, sem mikill
ævintýrablær er yfir, hefur
stjórnað borg nokkurri I heil 400
ár. Hetja skýtur upp kollinum og
endalokin eru góö.
„Drekinn” var flutt hér i út-
varp fyrir all mörgum árum og
sviösetning þess hefur veriö gerö
bæöi i Austurriki og Sviss nýlega.
Hátiöasalurinn i Hamrahliö
getur tekiö allt aö 400 manns i
sæti, og hagnaöur af sýningum, ef
einhver verður, mun renna i
Nemendasjóö skólans.
Magnús Gislason.
15. febrdar ver Magnús Gislason,
fil. lic., doktorsritgerö sfna um is-
lenzkar kvöldvökur> I háskóian-
umfUppsölum. Fjallar ritgerö
hans, eins og nafniö ber meö sér,
um hiö sérislenzka menningar-
fyrirbæri, er stóö meö blóma viöa
um sveitir Islands frá þvi á siöari
hiuta nitjándu aldar og fram á
tuttugustu öld.
Andmælandi Magnúsar veröur
Börje Hanssen, dósent i Stokk-
hólmi.
Rakið er gildi kvöldvökunnar
fyrir islenzkt menningarlif og
þjööli'f, og auk þess lýst hvers-
dagslifi sveitafólks um siöustu
aldamót og gerö grein fyrir þeim
breytingum, sem siðan uröu á
þjóöfélaginu og lifsháttum fólks
og leiddu loks til þess, aö kvöld-
vökurnar hurfujir sögunni.
Formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Álftfirðinga:
„MEÐLIMIR VORU BÚNIR AÐ FÁ
NÓG AF EINSTRENGISLEGRI STJÓRN
Athugasemd frá for-
manni Verkalýös- og sjómanna-
félags Alf tfiröinga, Súöavik,
vegna ummæla fyrrverandi for-
manns félagsins.
Ég undirritaöur vil taka fram
eftirfarandi vegna áöurnefndra
ummæla:
1. Kosningar til stjórnar Verka-
lýðs- og sjómannafélags Alftfirö-
inga Súöavik hinn 3.2. 1977 voru
algjörlega ópólitiskar. Meölimir
félagsins virtust hafa fengiö nóg
af hinni mjög svo einstrengings-
legu stjórn. Þó keyröi úr hófi
fram, er lagt var til af fyrrver-
andi stjórn, aö hafa félagsgjöld
0.70 prósent af brúttótekjum, sem
heföi i raun þýtt hækkun um 700
prósent fyrir einstaka félags-
menn.
2. Þaö skýtur skökku viö aö
verkalýðsfélag, er vinnur aö
hagsmunum verklýösins skuli
taka upp sömu stefnu og stjórn-
völd, er þau innheimta skatt. Þaö
er aö taka prósentur af brúttó-
tekjum, þannig aö þeir sem hafa
stærstu fjölskylduna á framfæri
sinu og sjá sóma sinn I aö sjá
henni farboröa, neyöast til aö
vinna mikiö og bera þvi hæstu
gjöldin.
3. Þaö er leitttil þess aö vita, aö
fyrrverandi formaöur Verkalýös-
og sjómannafélags Alftfiröinga,
Súöavik, skuli vera þaö litilfjör-
legur persónuleiki, aö hann kunni
ekki aó taka ósigri. Hann ber
skömm sina á borö fyrir alþjóð,
ekki nóg meö þaö, hann lætur svo
litiö aö ætla alla verkamenn og -
konur viö frystihúsiö Frosta hf
Súöavlk handbendi atvinnurek-
enda á staönum. Svo klykkir hann
út meö þvi aö ata auri menn, sem
eru algjörlega óviökomandi, I þvi
skyni aö fegra sjálfan sig. Þaö
finnst undirrituöum hámark litil-
mennskunnar.
4. Þar sem undirritaöur hefur
ekki verið dreginn i dilk neins
stjórnmálaflokks enn sem komiö
er, er honum meinlega viö aö
reynt sé aö setja á hann pólitiskt
brennimark. Varðandi athuga-
Frh. á bls. 39
Nýkomin
mjög falleg gluggatjaldaefni i breidd 275
til 280 cm.
Einnig blúndustórris og straufriir matar-
og kaffidúkar.
Sendum i póstkröfu um allt land.
Vefnaðarvöruverzlun V.B.K.
Vesturgötu 4, simi 13386.
Rafmagnsveitur
ríkisins auglýsa
laust til umsóknar starf vélgæslumanns
að Laxárvatnsvirkjun við Blönduós. Laun
eru skv. kjarasamningum rikisstarfs-
manna 1 fl. B-ll.
Umsóknir er greini menntun, aldur og
fyrri störf sendist starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Reykjavik
Fóstrur
Starf forstöðukonu leikskóia Sauðárkróks-
bæjar er laust til umsóknar. Starfið veitist
frá 1. mai 1977.
Upplýsingar um starfiö veitir formaöur dagheimilis-
nefndar, Stefán Pedersen, I sima 5147.
Umsóknir berist bæjarstjóra fyrir 10. aprll n.k.
Dagheimilisnefnd.
BILASYNING
í sýnlngarsal Bílasölunnar Brautar
Skeifunni 11
BILAR SEM SÝNDIR ERU:
I DAG FRA
KL. 13-19
DATSUN
180 B ný gerð
160 ódýr gæðabíll
120 Y 4ra dyra ný gerð
120 Y sjálfskiptur, góð kaup
Pick-Up níðsterkur og lipur
SUBARU
undrabíllinn
með drifi á
öllum hjólum
i>7-wn:i
INGVAR HELGASON
Vonarlondi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1
SUBARU