Tíminn - 13.02.1977, Blaðsíða 40
SfS-HNKJIt
SUNDAHÖFN
fyrirgóéan mai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
HREVFILL
S(mi 8 55 22
-
Höfnin hefur gert
okkur lífið leitt
— en nú verður unnið að hafnarmannvirkjum í sumar
Ekki er þó búið að tryggja nægjanlegt fjórmagn, en við
höfum góða von, segir Kristjón Magnússon sveitarstjóri
Vopna-
fjörður
MÖ-Reykjavík — Sendi-
nefndir víös vegar aö af
landinu koma til Reykja-
víkur til að reka erindi viö
opinberar stofnanir í höf-
uðborginni. Ganga þær þar
frá Heródesi til Pílatusar,
hafa stundum erindi sem
erfiöi, stundum ekki. En
hvaö sem öðru líöur þurfa
þær yfirleitt aö eyða í þess-
ar ferðir löngum tíma og
mikilli fyrirhöfn.
Ein slik sendinefnd leit viö ð
ritstjórn Tfmans nú i vikunni, cn
hana skipa forráöamenn frá
Vopnafiröi. Aöallega voru þeir a6
reka erindi vegna hafnarinnar, og
þeirra von er aö geta meö sinni
ferö fengið 50 millj. kr. lánsfjár-
fyrirgreiöslu til þess aö unnt veröi
á næsta sumri aö ljúka nauðsyn-
legum framkvæmdum viö höfn-
ina. Fjárveiting til þessa verks á
fjárlögum og framlag heima-
manna mun á árinu nema um 50
millj. kr., en eins og fyrr sagði,
vantar aöra eins upphæö til þess
aö ljúka þvi sem nauösynlegast er
taliö.
Lengi gert þeim
lifiö leitt
Höfnin hefur lengi gert okkur
lifiö leitt, sagöi Kristján Magnús-
son sveitarstjóri. Oft höfum viö
veriö i vandræöum meö togarann,
og iðulega hefur hann oröiö aö
flýja vegna veðurs. En langt er til
næstu öruggu hafnar, svo ástand-
iö er enn verra vegna þess.
Þá hefur oft komið fyrir, aö viö
höfum misst af loönu vegna þess
aö ófært hefur veriö aö landa
vegna veöurs og loönuskipin hafa
oröiö aö sigla mun lengra meö
aflann. Von okkar er sú, aö okkur-
takist þá aö fá 100 millj. kr. til
framkvæmda i sumar og þá verö-
ur ástandiö allt annaö næsta vet-
ur. Nauösynlegasta framkvæmd-
in er aö gera garö þvert frá landi
og bita á hann stálþil. Siöar er
nauösynlegt aö gera frekari úr-
bætur á hafnaraöstööunni.
Utgerö og fiskvinnsla
sameinuð undir einn hatt
A siösta ári voru útgeröar- og
fiskvinnslufyrirtæki á Vopnafiröi
sameinuö i eitt fyrirtæki. Sveitar-
félagiö á stóran hlut i þessu fyrir-
tæki, en einnig eiga einstaklingar,
kaupfélagiö og verkalýösfélagiö i
Vopnafiröi hlut i þvi.
Kristján sagði, að langt væri
komiö að safna viöbótarhlutafé,
og hafa einstaklingar keypt
hlutabréf fyrir um 8 millj. kr.
Einnig hafa hreppurinn og kaup-
félagiö aukiö hlutafjáreign sina
verulega.
Aður var Tangi hf., sem geröi
togarann út, og Fiskvinnslan
h.f.,sem rak frystihúsiö og salt-
fiskverkunina og Sildarverk-
smiöja Vopnafjaröar hvert um
sig sjálfstæö fyrirtæki, en nú eftir
sameininguna heitir fyrirtækið
Tangi hf.
Vinna við frystihús-
bygginguna hafin á ný
Frystihúsiö á Vopnafiröi hefur
veriö i uppbyggingu um skeiö, en
fyrir ári stöðvaöist vinna viö þær
framkvæmdir. Nú hefur vinna
hafizt á nýjan leik, og ef tekst aö
útvega nægjanlegt fjármagn, er
ráögert aö framkvæmdum veröi
lokiö á þessu ári.
Meöal þess, sem veriö er aö
byggja, er frystiklefar, vinnslu-
salur og tækjasalur. Þegar hefur
hráefnisgeymsla verið tekin i
notkun, en vélasalur veröur
áfram i gamla húsinu. Undir nýju
viöbyggingunni veröur saltfisk-
verkun.
Þegar öil viöbyggingin veröur
komin I notkun, veröur nauðsyn-
legt aö vinna a.m.k. 4000 til 5000
lestir af fiski á ári til þess aö
reksturinn beri sig.
Næsta mál okkar er þvi að út-
vega okkur annað togskip, sagöi
Kristján, enda hefur alltaf veriö
ráö fyrir þvi gert aö auka hér hrá-
efnisöflun, frá þvi sem nú er.
Miklar framkvæmdir
á síðasta sumri
Verulegar byggingarfram-
kvæmdir voru á Vopnafirði á
siöastliönu sumri. Þar er heilsu-
gæzlustöb i byggingu og varö hún
fokheld og verður vinnu viö hana
haldiö áfram á þessu ári. Ráögert
er, aö húsiö verði tilbúið undir
tréverk á þessu ári.
Þá var byrjað á byggingu sex
Ibúöa húss, en þar veröur dvalar-
heimili fyrir aldraöa. 1 húsinu
verða fjórar einstaklingslbúöir,
og tvær hjónaibúöir. Húsiö er nú
nær þvi fokhelt, og er hugur i fólki
aö vinna viö þaö af fullum krafti á
þessu ári.
Dvalarheimiliö er byggt á veg-
um Elliheimilissjóös Kvenfélags
Vopnafjaröar og Vopnafjaröar-
hrepps.
Á slöasta ári var hafin bygging
á 9 einbýlishúsum i þorpinu, og i
sveitinni var byrjaö á aö byggja
fjórar •ibúðir. Hins vegar var
heldur minna um útihúsabygg-
ingar I sveitinni en oft áöur.
tJtlit er fyrir, aö áfram veröi
kraftur i byggingum á Vopna-
firöi, og nýlega var lóðum undir
10 fbúöir úthlutaö þar. Fjórar af
þeim ibúöum veröa I ráöhúsi, en
sex einbýlishús veröa byggö. Þá
Vopnafjöröur. A mynd-
inni sést vel yfir hafnar
svæöiö.
hefur áöur veriö úthlutaö tveim
lóöum undir einbýlishús,' sem
byggingarframkvæmdir eru ekki
hafnar á.
Talsvert unnið
aö vegagerð
Talsvert var unniö aö vegagerð
f Vopnafiröi á siöasta sumri sagöi
Kristján. M.a. var unniö i vegin-
um milli Torfastaöaskóla og
þorpsins og þriggja km langur
vegur var byggöur uppi á Vopna-
fjaröarheiöi. Þá var hluti af veg-
inum á Svinabakkanesi austan
Hofsár endurbyggöur. Ekkert
hefur þó enn verið boriö ofan i
þessa vegkafla af unnu efni, og
eru þeir þvi hrjúfir og slæmir yf-
irferöar.
Annars þarf aö gera stórátak i
vegamálum f Vopnafirði, þvi þar
eru vegir verstir á Austurlandi,
en aldrei hefur sá landshluti feng-
iö hól fyrir að hafa upp á góöa
vegi aö bjóba. Segir þaö sig þvi
sjálft, að lélegir hljóta þeir aö
vera i Vopnafiröi.
Tryggja þarf rekstrar-
stöðu Flugfélags Austur-
lands
Samgöngur á landi til Vopna-
fjaröar eru oft erfiöar á vetrum
og algerlega ófært þangab lang-
timum saman. Þvi veröur aö
treysta mjög mikiö á flugsam-
göngur. Flugfélag Noröurlands
flýgur þangaö fjórum sinnum i
viku frá Akureyri og Flugfélag
Austurlands tvisvar i viku frá
Egilsstööum.
Segja má, aö þessar flugsam-
göngur séu llfæð fjaröarins. En
nú eru ýmsar blikur á lofti meö
framtiö Flugfélags Austurlands
og tryggja veröur rekstur þess
meö einhverju móti, sagöi
Kristján. Ekki er meö orðum
hægt aö lýsa þýöingu þess fyrir
Frh. á bls. 39
Sendinefnd Vopnfirölnga á ferö f ReykjavDc til aö útvega fjármagn til hafnarframkvæmda. Taliö f.v.
Hreinn Sveinsson hreppsnefndarmaöur og rafveitustjóri, Alexander Arnason hreppsnefndarmaöur og
rafvirkjameistari, Kristján Magnússon sveitarstjóri og Steingrfmur Sæmundsson form. hafnarnefndar
og bflstjóri. Timamynd Gunnar.
PALLI OG PESI