Tíminn - 13.02.1977, Síða 10
10
ISLAND
Styðjum landann i baráttunni lim heims-
meistaratitilinn i handbolta með nærveru
okkar i Austurriki
8 daga ferð 27. febrúar
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
SKÍDAFERD
Nú er snjór í Tíról
8 daga skiðaferð til Austurrikis
27. febrúar.
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
Árshátíð Barðstrend-
ingafélagsins í Rvík
verður haldin i Domus Medica iaugardaginn 19. febrúar
og hefst með borðhaldi kl. 19.
Hátiðin sett, ávarp, Guðmundur Guðjónsson óperusöngv-
ari syngur með undirleik Skúla Halldórssonar tónskálds,
Jörundur Guðmundsson fer með gamanmái. Dans.
Aðgöngumiðar og borðapantanir I Domus Medica mið-
vikudaginn 16. og fimmtudaginn 17. febrúar kl. 17-19.
Fjölmennum með gesti.
Stjórnin.
Getum afgreitt nokkur sumarhús og
saunaklefa fyrir sumarið
BYGGIR *Vf
Grensásvegi 12 — Simi 1-72-20
Wmhm
Sunnudagur 13. febrúar 1977
Tekur líklega
leyndarmálið
með sér í gröfina
Morðingi Trotskis Ramon Mercader (t.h.). Myndin er tekin áriö 1953.
ALLT frá þvi að Leon Trotski
var myrtur, hafa verið uppi
miklar getgátur um tildrög
morösins. Hafa ýmsir, þar á
meðal trótsklistar, viljað
meina, aö þetta hafi verið gert
að undirlagi Stalins. En sá
eini, sem veit hvaö raunveru-
lega gerðist, þegir þunnu
hljóði. Hann lifir rólegu llfi I
Moskvu á eftirlaunum frá sov-
ézka ríkinu, ásamt konu sinni
Rogeliu, sem er mexlkanskrar
ættar. Hans rétta nafn er
Ramon Mercader, I Mexlkó
gekk hann undir nafninu
Jacques Mornard og Trotski
þekkti hann sem Frank Jack-
son.
Það litla, sem menn hafa
getað fundið út um llf hans I
Moskvu, er komiö frá bróður
hans, Luis Mercader, þó að
hann láti ekki mikið eftir sér
hafa. Hann segir, aö mikið
hafi verið skrifað um þá bræð-
ur, en megniö af þvl sé hreinn
uppspuni.
Ramon er nú sextíu og
tveggja ára gamall. Sextán ár
eru liðin frá þvl hann kom til
Moskvu frá Mexlkó, þar sem
hann hafði afplánaö tuttugu
ára fangelsisdóm fyrir moröið
á Leon Trotskl. Eftir að hann
var látinn laus, dvaldi hann
um tima I Tékkóslóvaklu, en
hefur hin seinni ár að mestu
haldiö sig I Moskvu. Hann tal-
ar rússnesku, en þó ekki lýta-
laust, og börn hans eru sov-
ézkir ríkisborgarar.
Ramon hefur verið yfir-
heyröur meira en flestir aðrir
menn. Aöeins sálfræöingarnir
eyddu hvorki meira né minna
en nlu hundruö klukkustund-
um viö aö rannsaka sálarlif
hans. Blaðamaður náöi eitt
sinn tali af honum I Prag, en
Leon Trotski
— hann var myrtur með Isöxi.
hann vildi ekki tala um neitt,
sem gerzt haföi fyrir tuttug-
asta ágúst 1940, þegar hann
drap Tortski með Isöxi. I
Moskvu neitar hann að tala
við blaðamenn. Luis bróðir
hans dregur sig einnig inn I
skel, þegar talið berst að
dauða Trotskis, og hann leiðir
taliö að öðru, er hann er inntur
eftir réttmæti þess að Stalin
hafi heiðraö móður þeirra,
Caridad, með oröu, er hún
kom til Moskvu eftir moröið,
en vestrænir söguskýrendur
telja, að Caridad hafi gegnt
mikilvægu hlutverki fyrir
morðið.
Meðan á yfirheyrslunum
stóð, sagði Ramon, að ástæða
morðsins væri eingöngu sú, að
hann væri andstæöur trotskl-
istum. Þetta breiddu sovézkir
fjölmiðlar út. Vestrænir sagn-
fræðingar, þar á meðal Robert
Conquest, sem er sérfræðing-
ur I málefnum Sovétrikj-
anna, telja, aö morðiö hafi
verið skipulagt af Leonid Eit-
ington yfirmanni I NDVE
leyniþjónustu Stalíns. Þessi
sami Leonid var elskhugi
Caridads eftir borgarastrlöið
á Spáni, er hún kom til Sovét-
rlkjanna. Eftir þvi sem Con-
quest segir, þá biðu Caridad
og Eitington i bll skammt frá
heimili Trotskls fyrir utan
Mexikó City á meöan Ramon
var inni I húsinu.
Mercader kynntist Trotski
fyrir tilstilli amerlskrar vin-
konu sinnar, sem var trótskl-
isti Hann komst inn til hans
undir þvl yfirskini, að hann
ætláði að sýna honum blaða-
grein, sem hann haföi skrifaö,
— og var þá með öxina I vas-
anum. Mercader greiddi Trot-
ski högg I höfuöiö með öxinni
en það var ekki nægilegt til að
verða honum að bana, og hann
æpti upp. Varðmenn þustu inn
og gripu Mercader. Trotskl
var strax fluttur á sjúkrahús
og skorinn upp, en lézt daginn
eftir.
Það er margt, sem ekki
liggur á ljósu um bakgrunn
Mercaders, en eftir þvl sem
Leonid segir, kom hann til
Sovétrlkjanna með móður
sinni árið 1939. Caridad lézt I
Parls árið 1975 og er Ramon
nú eini eftirlifandi maöurinn,
sem vitað er um, sem getur
gefið réttar upplýsingar um
forleikinn að moröinu á Trot-
skí. Og eftir öllum sólar-
merkjum að dæma mun hann
taka þá vitneskju með sér I
gröfina.
(Þýtt og endurs. JB)