Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 77
Eignaraðild starfsmanna
— aukin framleiðsla
aldrei verið afgerandi og um skeið
leit út fyrir að fyrirbærið væri að
lognast út af.
En fyrir u.þ.b. þremur árum fóru
þau að ná sér á strik aftur, og voru
sennilega ákveðnar ástæður fyrir
því, m.a. efnahagslegar og laga-
legar, en einnig hafði verið breyt-
ing til batnaðar í stjórnun þeirra.
Og niðurstöður rannsókna sem
atvinnumálaráðuneyti Bandaríkj-
anna lét gera á starfseminni leiddu
í Ijós að eignaraðild starfsmanna
að fyrirtækjum leiddu til aukinnar
framleiðslu.
Bandaríska tímaritið Harvard
Business Review kynnti nokkur
þessara fyrirtækja hvert af öðru
fyrir nokkru síðan. Það sem hér
verður sagt um uppbyggingu
slíkra fyrirtækja er byggt á viðtali
tímaritsins við forstjóra og stjórn-
arformann trévinnslufyrirtækisins
Puget Sound Plywood, Inc. Það
var stofnað fyrir 40 árum í Tacoma
í Washingtonfylki og rekur nú að
auki birgðastöðvar víðar í vestur-
fylkjum Bandaríkjanna. Fram-
leiðslan er seld um gervöll Banda-
ríkin og einnig til Evrópu, Japan og
Asíulanda.
Sömu laun fyrir hvaða
starf sem er
Starfsmenn eru eitthvað um 400
og er meirihluti þeirra — um 240
— eigendur fyrirtækisins, en hinir
130 eru aökeyptur vinnukraftur.
Eigendur eiga allir sama fjölda
hlutabréfa í fyrirtækinu, og allir fá
þeir sömu laun hvaða starfi sem
þeir gegna. Launin geta verið
mismunandi frá ári til árs eftir því
hvernig viðskiptin ganga.
Eigendurnir kjósa forstjóra
fyrirtækisins og varaforstjóra, rit-
ara, gjaldkera og níu manna
stjórn, en framkvæmdastjóri og
Um nokkurt árabil hafa verið að þau eru i eigu starfsmannanna
starfandi í Bandaríkjunum fyrir- og rekin af þeim. Áhrif þeirra í
tæki sem eru sérstæð að því leyti bandarískum viðskiptaheimi hafa
TÖFLUR SF.
SKEIFAN 5. - SÍMI 81621
Raftöfluskápar
okkar eru framleiddir í
eftirtöldum stærðum
Breidd Hæð Dýpt
Stærð A 75 225 65
Stærð Al 75 225 33
Stærð B 50 225 65
Stærð Bl 50 225 33
Önnur mál ef óskað er
Notum aðeins besta fáanlegt
rafmagnsefni Vönduð framleiðsla;
Leitið upplýsinga hjá okkur.
20 ÁRA REYNSLA I FRAM
LEIÐSLU TÖFLUSKÁPA
77