Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 56
fyrir fyllilega fyrir sínu, en aðal-
atriðið finnst mér þó vera
hversu vel skrifstofan er stað-
sett. Þaó hlýtur aó vera mikil-
vægt fyrir skipafélag að vera
svo nálægt höfninni.“
Höfum mjög sérstaka
stjórnendur
Svo mörg voru þau orð.
Stafsfólkið hjá Hafskip virðist
ánægöara en orð fá lýst með
aðstöðu sína hjá fyrirtækinu og
ber samstarfsandanum og
stjórnendum mjög góða sögu,
svo ekki sé meira sagt.
,,Já, ég held aó það sé ekki
síst framkvæmdastjórum fyrir-
tækisins að þakka hversu góö-
ur andi ríkir hér meðal fólks-
ins,“ segir Ragnheiður
Ágústsdóttir, skrifstofustjóri, er
við tyllum okkur inn til hennar
stundakorn. ,,Það er yfirleitt
reynt að mæta þörfum fólksins
og það finnur sig frjálst að því
að leita til yfirmanna sinna ef
eitthvað kemur upp á. Við erum
með unga og framtakasama
menn í forstjórastólnum hér,
sem fygjast vel meö öllu. Það er
til dæmis ekki ósjaldan sem
þeir birtast hér með blóm og
málverk undir hendinni, ef
þeim finnst það vanta einhvers
staöar. Slíkt er ábyggilega ekki
algengt í svo stórum fyrirtækj-
um.
Við erum heppnir að
komast í þennan hóp
Það liggur beinast við í lokin
að leita til hinna vinsælu yfir-
mann hjá Hafskip og spyrja um
þær meginreglur er hafðar séu
að leiðarljósi viö stjórnun fyrir-
tækisins. Framkvæmdarstór-
arnir eru tveir, Ragnar Kjart-
ansson og Björgúlfur Guð-
mundsson. Þaó er sá síðar-
nefndi sem verður fyrir svörum:
,,Það er lagt mikið úr því aö
hafa öll samskipti sem frjáls-
legust hér á skrifstofunni og
formlegheitin í lágmarki. Menn
eiga að finna sig frjálsa að því
að ganga hver inn til annars
þegar þörf krefur og það gerir
þaö aö verkum að andrúms-
loftið verður léttara og óþving-
að að auki.
f okkar augum er mjög mikil-
vægt aö gera skrifstofurnar
sem best og skemmtilegast úr
garði og við leggjum mikið upp
úr notalegu og snyrtilegu um-
hvefi. Við teljum okkur ekkert
frábrugóna öðrum starfsmönn-
um og löbbum okkurgjarnan út
til aö kaupa blóm eða annað
sem lífgað getur upp á um-
hverfið, þegar vel liggur á okk-
ur. Til að stjórna með góðum
árangri verða menn aö geta
haldió uppi aga, en jafnframt
verið sjálfir frjálsmannlegir í
framkomu. Þaó hefst ekki með
uppgerðaraga og tilbúinni
virðingu.
Þátttaka starfsfólksins í
stórnun fyrirtækisins markast
fyrst og fremst af því aó hér
starfa að jafnaði ýmsir hópar
að margvíslegum verkefnum.
Þar koma starfsmenn með til-
lögur og ráðleggingar til okkar
sem stjórnum. Við erum til
dæmis nún að vinna aö endur-
skipulagningu vöruhúsanna.
Þetta er fyrst unnið af hópi
starfsmanna, bæði héðan af
skrifstofunni og úr vöruhúsun-
um. Þessi hópur kemur svo til-
lögum á framfæri við okkur og
fær tækifæri til að tala okkur
inn á sín stjórnarmið.
Til okkar hefur valist fólk
með mjög jákvæðu hugarfari,
það er okkar lán. Það er fólkið
sjálft sem skapar andrúmsloft-
ió hér innan veggja. Sé það
ánægt hlýtur það að koma fram
í öllu samstarfi.
Það má því segja að við höf-
um verið einstaklega heppnir
að komast í þennan góða hóp.
Innheimtuþjónusta
fyrir stofnanir,
fyrirtæki,
félagasamtök
og einstaklinga.
Lögheimtan h.f. hefur flutt skrifstofur sínar
í nýtt og rúmgott húsnæði að
Laugavegi 97 í Reykjavík, sími: 27166.
Lögheimtan hf
Laugavegi 97, 101 Reykjavík, sími 27166
56