Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1982, Page 29

Frjáls verslun - 01.05.1982, Page 29
Texti: Gissur Sigurösson innlent Norðlendingar blanda sér í stóriðjukapphlaupið Andstæðingum fækkar en dýrmætum tíma hefur verið sóað Þegar atvinnuástand og at- vinnuhorfur á Norðurlandi eru skoðuð, kemur ótvírætt í Ijós að byggðastefna síðasta áratugs er gengin sér til húðar. Ekki svo að skilja að hún hafi verið slæm eða röng, heldur var hún barn síns tíma, miðaði við uppbyggingu frumatvinnugreinanna og gerði það, a.m.k. víðast á Norðurlandi. En þessi þróun virðist nú komin á endamörk. Aflatakmarkanir draga úr aflamagni og skipulagður samdráttur er í landbúnaði. Auk þess fleygir tækninni fram á báð- um þessum sviðum þannig að stöðugt þarf færri hendur til að skila sama afrakstri. Ekki er ólíklegt aö um 100 manns muni hverfa frá þessum at- vinnugreinum árlega næsta ára- tuginn, eöa svo langt sem séö veröurfram á hann. Þettafólk mun leita í aðrar greinar. Það munu þeir og gera, sem koma inn á vinnu- markaóinn vegna eðlilegrar fólks- fjölgunar á tímabilinu. Það er því ekki út í hött eða einhver óraun- veruleg framtíðarspá að segja að jákvæðu búsetuþróunartímabili sé lokið, frá sjónarhóli landsbyggð- arinnar og að þessi áratugur boði á ný fólksfækkun þar og umfram- vöxt í búsetu á höfuðborgarsvæð- inu. Fólksfjölgun 50% undir landsmeðaltali Staðreyndir, sem renna stoðum undir það eru m.a. að á síðasta ári varð fólksfjölgun á Norðurlandi 50 prósent undir landsmeðaltali og á Norðurlandi reyndust atvinnuleys- isdagar einnig hlutfallslega flestir í fyrra. Er menn Frjálsrar verzlunar fór vítt og breitt um Norðurland í fyrravetur og ræddu þar við at- hafnamenn og aðra framámenn, varð niðurstaðan einmitt þessi, þótt hún færi nokkuð hljótt í héraði þá. En á fjórðungsþingi Norðlend- inga í haust var þessi nýja staða einmitt mál málanna. Fyrir þinginu lá m.a. alveg nýspá um mannafla á Norðurlandi eftir atvinnugreinum á þessum áratug. I samræmi við nýjustu þróun á landsbyggðinni í heild, er þar gert ráð fyrir að mannfjölgun á Norðurlandi verði hlutfallslega undir landsmeðaltali á þessum áratug. Mannfjöldi á Norðurlandi vaxi úr röskum 36 þúsundum í röskar 39 þúsundir. Semsagt, að höfuðborgarsvæðið muni á næstu árum taka til sín enn stærra hlutfall af íbúum landsins. Hinsvegar virðist hlutfallslegur 29

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.