Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 10
í FRÉTTUfUUIVl
Júlfus ólafsson
Nýtt Rank-Xerox umboð
Rank-Xerox þekkja allir af
Ijósritunarvélum enda var
markaðsdrottnun fyrirtaek-
isins um skeið slík aö í sum-
um löndum var Xerox sam-
heiti Ijósritunarvéla. Xerox
vélarnar eru enn álitnar
drottningar Ijósritunnar
enda leggur fyrirtækið upp
úr því að keppa á grundvelli
gæða fremur en verðs.
Það er aðeins um eitt ár
síöan farið var að bjóða
vörur þessar hér á landi og
var það á í höndum Skrif-
stofutækni hf. Þaö fyrirtæki
hefur nú verið leyst upp og
við umboðinu er tekið nýtt
fyrirtæki, Rank-Xerox um-
boðið í Síðumúla 6. Aðal-
eigendur þess fyrirtækis eru
þeir Ólafur Kr. Sigurðsson,
forstjóri Suzuki-umboðsins
og örn Johnsson, forstjóri
Ofnasmiðjunnar Skorra og
Tutor-rafgeyma. Fram-
kvæmdastjóri er Júlíus Ól-
afsson, en hann hefur séð
um sölu Rank-xerox vél-
anna hér á landi frá upphafi.
Nú það erfleira sem boðið
er upp á í hinu nýja fyrirtæki
en Ijósritunarvélar. Ma þar
netna Xerox rafeindavélar,
textavinnslu og tölvur frá
fleiri fyrirtækjum, til dæmis
Compustar. Þrír sérþjálfaðir
menn eru í fullu starfi við
upþsetningu og viðhald vél-
anna, en nú þegar eru
margir aðilar komnir með
Xerox-búnað í notkun. Má
nefna að á Keflavíkurflug-
velli eru um 50 Ijósritunar-
vélar í notkun.
Tekist hefur samstarf við
forritunarþjónustufyrirtækið
Proco um að CPM-forrit
þeirra verði eingöngu seld
Compustar og Xerox-tölvur.
Er þar um mjög traust og
haldgóð forrit að ræða.
Þegar brúa átti
kynslóðabilið
Á ári aldraðra er talað um
kynslóðabil. Hvað um það.
Nemendur við skóla á Sel-
tjarnarnesi ákváðu að sýna í
verki að slíkt væri ekki þeirra
vilji. Undirþjuggu þau mikla
hátíð þann 30. nóvember
með skemmtiatriðum og
veitingum. Til veislunnar var
boðið öllu fólki á Seltjarnar-
nesi, 67 ára og eldri. Um
kvöldið var beöið með
óþreyju eftir gestunum,
tröppurnar höfðu verið afís-
aðar svo og næsta ná-
grenni. En hvað skeði svo?
Ekki einn einasti hinna eldri
íbúa bæjarins mætti til
þessarar gleði skólanem-
anna, sem átti að brúa bil
kynslóðanna. Nú teljum við
að eldra fólkið eigi næsta
leik.
Bílnúmer í háu
verði
Bílnúmer í Reykjavík
ganga enn kaupum og söl-
um. Núna síðast fréttum við
af leigubílstjóra sem ók á
R-Númeri á bilinu 100-200,
sem seldi númerið sitt fyrir
37 þúsund krónur. Bílstjór-
inn mun oft hafa fengið til-
boð, en aldrei fyrr svo
glæsilegt sem þetta. Sjálfur
hafði hann enga ofurást á
tölum, svo hann sló til. . .
Loughery hættur
hjá Capitol
Margir íslendingar kann-
ast við John Loughery, sem
var forstöðumaður Flug-
leiöa í vesturheimi. Tók
hann við því starfi af Sigurði
Helgasyni og gegndi því þar
til honum var sagt upp 1980.
Þá réðst hann til Capitol Air
og varð sölustjóri þess fé-
lags í New York. Nú mun
hann vera hættur þar en,
honum var sagt upp vegna
ágreinings við stjórn fyrir-
tækisins.
DISCOVERTHE
BEAUTY OF SCOTLAND
/ITH BARGAIN FARES ON
ICELANDAIR
JET TO GLASGOW AIRPORT-MINUTES FROM THE CITY-
GATEWAY TO SCOTLAND S BREATHTAKING
HIGHLANDS ANDISLANDS
GLASGOW -----GLASGOW
•nfftTrevH Pm 'R2 l(i« livr rnd tm djv»' Ulvrl iteougMhe MiRMandv ■n/uUrv*...
Irft. h«4H. bírjKUil und■ cudeduchlarrmglouratRryKjJvi*.«jpitalotlcrUnd P.klu
Ittm 130 m Sprmg. 133 m Summer.
-HIS WIIM ICfUMDlll S NSI VfllUt FfllfS.
rdemrd inrrutmi Frrr mnr withdmer. ravrnc alttt m fhght ■ Mirvry Mvngckr
í«* hrr l.rlind unpnverB Dury free Ihnppmc ■( KefUvih Airpnrl ■ Three flichtr werkh
BFHTAlNga I ICELANDAIR*
Flugleiðir
auglýsa
Skotland í
Bandaríkjunum
Þeir sem lesa bandarísk
blöö hafa veitt því athygli aö
Flugleiðir hafa auglýst mikió
Skotland ásamt skoska
feröamálaráðinu. Hér er um
að ræða sameiginlegt átak
en Flugleiðir er nú eina
flugfélagið, sem býður flug
frá Skotandi til Bandaríkj-
anna allan ársins hring. Sér
félagið þannig möguleika á
að auka mikið flutninga síns
yfir Atlandshafið til
Glasgow.
10