Fréttablaðið - 05.03.2006, Side 16
5. mars 2006 SUNNUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Okkar einlægur og ástkær unnusti, sonur,
bróðir, tengdasonur, barnabarn og mágur,
Tómas Ýmir Óskarsson
frá Dæli í Skíðadal, til heimilis að
Keilusíðu 6h, Akureyri,
sem lést laugardaginn 25. febrúar, verður jarðsunginn
frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 10. mars kl. 14.00. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á minningarkort frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg, sem fást í Pennanum
Akureyri og blómabúðinni Ilex Dalvík.
Ásdís Hanna Bergvinsdóttir
Lene Zacharíassen
Óskar Snæberg Gunnarsson Jóhanna Kristín Arnþórsdóttir
Íris Björk Óskarsdóttir Eyþór Freyr Óskarsson
Bergvin Jóhannsson Sigurlaug Anna Eggertsdóttir
Gunnar Rögnvaldsson Kristín Óskarsdóttir
Björg Zacharíassen
Sigríður Valdís, Anna Bára , Berglind Bergvinsdætur
og fjölskyldur þeirra.
„Þau eru að sjálfsögðu mjög spennt.
Þeim finnst merkilegt að koma fram
og það er náttúrulega upphefð í því,“
segir Margrét Ólöf spurð um hvernig
andrúmsloftið sé á meðal barnanna
fyrir átök dagsins. Dagskráin í Árbæj-
arkirkju er líka sérlega metnaðarfull,
tvær messur þar sem allir aldurshópar
eiga að finna eitthvað við sitt hæfi.
Fyrri messan er klukkan ellefu og
þá verður einblínt á yngri kynslóðina.
„Við erum búin að vera að æfa lögin í
svona mánuð,“ segir Margrét Ólöf en
auk þess að börnin leiði safnaðarsöng-
inn koma nokkrir tónlistarnemar úr
hverfinu fram og leika sígild lög.
Hápunkturinn verður þó án efa leikrit-
ið um Davíð og Golíat í uppsetningu tíu
til tólf ára krakka. „Þegar leikritið er
sett upp í TTT getur maður ekki treyst
á að Davíð og Golíat mæti á næstu
æfingu,“ segir Margrét Ólöf, hlær dátt
og trúir Fréttablaðinu fyrir því að frá
upphafi æfinganna hafi verið skipt
tvisvar sinnum um bæði titilhlutverk
leikritsins. „Ég er mjög spennt að sjá
hverjir mæta á sunnudaginn,“ bætir
hún svo við. Hún lætur óvæntar uppá-
komur þó ekki á sig fá. „Ef ekki allir
koma verðum við leiðtogarnir bara að
hoppa í þau hlutverk sem þörf er á.“
Í kvöld verður sviðsljósinu svo beint
að unglingunum í svokallaðri léttmessu
klukkan átta, en slíkar messur eru mán-
aðarlegur viðburður í Árbæjarkirkju.
„Þá er komið að því að unglingarnir í
hverfinu láti ljós sitt skína,“ segir Mar-
grét Ólöf. Á dagskrá er endursýning á
atriðinu sem Árbæjarskóli sendi í
Skrekk, hæfileikakeppni grunnskól-
anna, sem hún útskýrir stolt að hafi
endað í sex efstu sætum keppninnar.
Hljómsveitin Jóelsig spilar líka í mess-
unni en hún er skipuð strákum úr hverf-
inu og söngkonan kemur frá Selfossi.
Segja má að Æskulýðsdagurinn sé
nokkurs konar uppskeruhátíð starfs-
ins fyrir yngri kynslóðina í Árbæjar-
kirkju, að minnsta kosti fram að Fylk-
ismessunni í vor. Mikill fjöldi barna og
unglinga tekur þátt í kirkjustarfi
Árbæjarkirkju og margir koma að deg-
inum. „Við höfum slegið aðsóknarmet í
vetur í sjö til níu ára starfinu og erum
búin að hitta um tvö hundruð krakka,“
segir Margrét Ólöf. Þar að auki eru allt
upp í hundrað börn í sunnudagaskólan-
um, um sextíu í TTT eða tíu til tólf ára
starfinu, og hátt í fimmtíu ungmenni
sem skiptast í þrjá hópa eftir aldri upp
í 1. bekk í framhaldsskóla. En það er
ekki bara æskan sem stendur á tíma-
mótum í dag því Margrét Ólöf mun
sinna sínum fyrstu embættisstörfum,
en hún var vígð til djákna um síðustu
helgi. Hún heldur hugvekju í léttmess-
unni ásamt Þórhildi Erlu Pálsdóttur,
framhaldsskólanema, og þær ætla að
hafa hugvekjuna á persónulegu nótun-
um. „Við ætlum að fjalla um glataða
soninn sem fer burt frá föður sínum en
snýr síðan aftur. Við Þórhildur höfum
báðar þá reynslu að vilja fara í burtu
frá kirkjunni og Guði, en höfum báðar
komið aftur,“ segir Margrét Ólöf.
MARGRÉT ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR ÁRBÆJARKIRKJU: ÆSKULÝÐSDAGUR Í DAG
Davíð og Golíat verða að mæta
MARGRÉT ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR OG ÞÓRHILDUR ERLA PÁLSDÓTTIR Fara með hugvekju í léttmessu Árbæjarkirkju í kvöld.
JÓSEF STALÍN (1879-1953) LÉST
ÞENNAN DAG
„Menntun er vopn og áhrif
þess miðast út frá hver
heldur á vopninu og að
hverjum því er beint.“
Jósef Stalín setti mark sitt á tuttugustu
öldina með því að stjórna Sovétríkjun-
um með harðri hendi.
Í dag taka gildi breytingar á
leiðarkerfi Strætó bs. Þetta
eru fyrstu breytingarnar
sem gerðar eru síðan nýtt
leiðarkerfi var tekið í notk-
un í júlí á síðasta ári. Þær
miða að því að koma til móts
við óánægjuraddir úr hópum
farþega og bílstjóra, nú
þegar komin er nokkur
reynsla á leiðirnar.
Breiðholts-, Grafarvogs-
og Kópavogsbúar verða
mest varir við breytingarn-
ar. Ein ný leið mun aka um
Fella- og Hólahverfi niður á
Hlemm og ný leið hefur
akstur í Grafarvogi ásamt
því að önnur breytir um
aksturslínu til að tengja
hverfin betur saman. Í
Kópavogi munu svo tvær
nýjar leiðir hefja akstur í
dag. Einnig er ástæða til að
gleðjast fyrir íbúa við Soga-
veg og fastagesti í Hamra-
hlíð því aftur verður tekinn
upp akstur um þær götur.
Næturhrafnarnir verða
aftur á móti að grípa í einka-
bílinn aftur því stofnleiðirn-
ar sem hafa hingað til ekið
til tvö hætta nú akstri á mið-
nætti. Hægt er að nálgast
frekari upplýsingar um nýju
leiðirnar á heimasíðu Strætó
bs. ■
Strætó fer nýjar leiðir
STRÆTÓ
Leiðakerfinu breytt í dag.
MERKISATBURÐIR
1558 Sígarettureykingar eru
kynntar fyrst til sögunnar í
Evrópu af Francisco Fern-
andes.
1938 Bæjarhús í Húsavík tekur
af grunni í aftakaveðri með
fólki og öllu öðru sem í
þeim var.
1971 Alþýðubankinn hefur starf-
semi sína. Hann er nú hluti
af Íslandsbanka.
1993 Söfnun fer fram til styrktar
krabbameinssjúkum börn-
um á Bylgjunni og Stöð 2.
Um 55 milljónum króna er
safnað.
1999 Vala Flosadóttir stangar-
stökkvari setur Íslands- og
Norðurlandamet í stanga-
stökki með því að stökkva
yfir 4,45 metra.
Í dag efna öll aðildafélög
Taekwondosambands
Íslands til opins móts í taek-
wondo. Mótinu er ætlað að
vera til styrktar Birni Þor-
leifssyni og þeim ferðalög-
um sem hann er að taka sér
á hendur. Allur ágóði þess
mun því renna óskiptur til
Björns. Taekwondodeild
Fram leggur til húsnæðið og
verður mótið haldið í Ing-
unnarskóla í Grafarholti.
Keppt verður bæði í sparr-
ing og poomse.
Björn er einn helsti
afreksmaður Íslands í íþrótt-
inni og hefur honum verið
boðið að taka þátt í æfingum
með kínverska landsliðinu.
Félögin vilja með mótinu
styðja við bakið á honum og
sýna með verki að hann er
allri íþróttagreininni til mik-
ils framdráttar hér á landi.
Styrktarmót í
taekwondo
BJÖRN ÞORLEIFSSON Í dag verður
haldið taekwondomót til styrktar
Birni.
AFMÆLI
Sigurður Valur
Sveinsson, fyrrver-
andi landsliðsmað-
ur í handknattleik,
er 47 ára.
Jón Ormur Hall-
dórsson stjórn-
málafræðingur er
52 ára.
Á þessum degi árið 1956 dæmdi hæstiréttur
Bandaríkjanna að kynþáttaaðskilnaður í ríkisskólum
samræmdist ekki lögum. Norður-Karólínuháskólinn
skaut máli sínu til hæstaréttar en skólinn hafði verið
neyddur til að innrita þrjá blökkudrengi í skólann
sem áður hafði bara verið ætlaður hvítum nemum.
Í dómnum sagði að þessi ákvörðun ætti að ná
til allra skólastiga og gerði þar með endanlega út
um stefnuna „aðskilin en jöfn“ sem hafði verið í
lykilhlutverki í bandaríska skólakerfinu.
Þessi atburður var einungis einn af fjölmörgum
sigrum sem blökkufólk vann á þessum árum. Fyrir
baráttunni fór mannréttindafrömuðurinn Marteinn
Luther King og einkenndust baráttuaðferðirnar
af friðsamlegum mótmælum og málsóknum í
dómskerfinu á grundvelli þess að mismunun vegna
kynþáttar væru mannréttindabrot.
ÞETTA GERÐIST > 5. MARS 1956
Sigur hörundsdökkra háskólanema
MARTIN LUTHER KING
ANDLÁT
Guðmundur Helgi Jónasson
lést á gjörgæsludeild Landspítala
- háskólasjúkrahúss fimmtudaginn
2. mars.
Hansína Hannesdóttir,
Hlaðbrekku 12, lést á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi
fimmtudaginn 2. mars.
Hjálmur Sigurjón Sigurðsson,
Mánabraut 5, Skagaströnd, lést
á heimili sínu fimmtudaginn 2.
mars.
Jóhanna Einarsdóttir (Nanný),
Flókagötu 69, Reykjavík, lést föstu-
daginn 3. mars á Landspítalanum
við Hringbraut.
Aðalheiður Hannesdóttir, Gull-
smára 9, Kópavogi, er látin.
MARTIN LUTHER KING