Fréttablaðið - 05.03.2006, Side 27

Fréttablaðið - 05.03.2006, Side 27
F J A R Ð A R B YG G Ð Upplýsinga- og kynningafulltrúi Laust er starf upplýsinga- og kynningafulltrúa hjá Fjarðabyggð. Starfsmaður sér jafnframt um kynningarmál sveitarfélaganna, Austurbyggðar, Fáskrúðsfjarðarhrepps og Mjóafjarðarhrepps en þau sameinast Fjarðabyggð í júní á þessu ári. Helstu kröfur til umsækjanda eru: Menntun á sviði upplýsinga- og fjölmiðlafræða. Víðtæk þekking og reynsla á upplýsinga- og kynningarmálum. Þekking á málefnum sveitarfélaga er æskileg. Helstu viðfangsefni eru umsjón með heimasíðu sveitarfélagsins, kynningarmálum og miðlun upplýsinga, móttaka gesta og framsetn- ingu upplýsingaefnis. Leitað er að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi sem annast dagleg upplýsinga- og kynningarmál sveitarfélaganna. Í Fjarðabyggð er atvinnulíf og almennt þjónustustig gott. Framund- an eru tímar athafna og umsvifa í stórfelldri uppbygging sveitarfé- lagsins þar sem áhersla verður lögð á að lífsgæði og fjölskylduvænt samfélag. Upplýsingar veitir forstöðumaður fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Jónsson, gunnar@fjardabyggd.is, sími 470 9062. Umsóknir sendist til forstöðumanns sviðsins, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð fyrir 8. mars 2006 en þá rennur umsóknarfrestur út. Sjá nánar um Fjarðabyggð og starfið á www.fjardabyggd.is www.icelandexpress.is Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600 Starfssvi› Menntunar- og hæfniskröfur SÖLUFULLTRÚI Í SÖLUDEILD ICELAND EXPRESS Leitað er að ábyggilegum og kurteisum einstaklingi með ríka þjónustulund. Viðkomandi þarf að sýna áhuga, sjálfstæði í starfi og geta unnið vel undir álagi. Símsvörun Sala á flugsætum, hótelgistingu og bílaleigubílum. Aðstoð við netbókanir Umsóknir skulu sendar á job@icelandexpress.is fyrir 10. mars 2006. Vi›komandi flyrfti a› geta hafi› störf sem fyrst. Stúdentspróf skilyrði Nám í ferðamálafræði æskilegt Góð tölvukunnátta Hæfni í mannlegum samskiptum Mikil færni í talaðri og ritaðri ensku, kostur ef viðkomandi talar einnig dönsku eða þýsku Iceland Express er fyrsta íslenska lágfargjaldaflugfélagið. Þegar félagið var stofnað fyrir þremur árum, gjörbreytti það landslagi flugsamgöngum Íslendinga og starfa nú yfir 100 manns hjá félaginu. Við erum stolt af sigrum og vexti Iceland Express og er starfsfólkið lykillinn að uppbyggingu félagsins. Tækifærin blasa við og framundan eru afar spennandi tímar í starfseminni. Fljúgðu hærra á þínum ferli með Iceland Express. Upplifðu spennandi starfsumhverfi, skemmtilegan vinnuanda og taktu þátt í að móta og skapa framsækna viðskiptastefnu hjá félagi sem er einstakt á Íslandi. Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins og veitir alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfs- ánægju og gott starfsumhverfi, sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks. Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans að starfsfólkið, metnaður þess, kraftur og hollusta, séu lykillinn að farsælum rekstri bankans. ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - LB I 31 65 2 0 3/ 20 06 Laus störf sérfræðinga við alþjóðleg verkefni tengd útrás Landsbankans Helstu verkefni: • Greining erlendra fjármálamarkaða • Kortlagning fjármálafyrirtækja í Evrópu • Tillögugerð um mögulega fjárfestingarkosti til bankastjórnar • Framkvæmd og útfærsla einstakra fjárfestingarkosta • Aðkoma að innleiðingu og samþættingu erlendra fyrirtækja inn í samstæðu Landsbankans • Samskipti við erlendar fjármálastofnanir og ráðgjafa Um er að ræða opið vinnuumhverfi þar sem mikil áhersla er lögð á frumkvæði og sjálfstæði í starfi auk hæfileika til mannlegrar samskipta og getu til að vinna sem hluti af einni liðsheild óháð einstökum ábyrgðarsviðum. Störfum við framkvæmd útrásarstefnu bankans geta fylgt töluverð ferðalög og fjarvera frá Íslandi. Vegna vaxandi umsvifa bankans erlendis leitum við eftir framúrskarandi einstaklingum til starfa við útrás bankans. Um er að ræða verkefni á alþjóðasviði sem gefa viðkomandi tækifæri til virkrar þátttöku með æðstu stjórnendum Landsbankans í mótun og framkvæmd áframhaldandi útrásarstefnu bankans. Nánari upplýsingar veita Atli Atlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans í síma 410 7904 og Bergþóra Sigurðardóttir forstöðumaður á starfsmannasviði í síma 410 7907. Vinsamlega sendið umsókn og ferilskrá á netfangið atlia@landsbanki.is Umsóknarfrestur er til og með 14. mars nk. Hæfniskröfur og eiginleikar: • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, hagfræði, lögfræði og/eða verkfræði • Framhaldsmenntun og/eða starfsreynsla erlendis er æskileg • Þekking á sviði samruna og yfirtöku, stefnumótunar, greiningu ársreikninga og viðskiptatækifæra • Skilningur á helstu aðferðum við verðmat fyrirtækja • Þekking og reynsla á alþjóðlegum fjármálamörkuðum er æskileg • Framúrskarandi enskukunnátta er skilyrði ATVINNA SUNNUDAGUR 5. mars 2006 5

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.