Fréttablaðið - 05.03.2006, Blaðsíða 59
SUNNUDAGUR 5. mars 2006
Navision Small Business er öflugur viðskiptahugbúnaður
sem heldur utan um allar viðskipta- og fjárhagsupplýs-
ingar fyrirtækisins og gefur þér skjótan aðgang að öllu
sem þú þarft að vita til þess að hámarka framlegð og ná
fram hagræðingu í rekstri.
• Fjárhagsgrunnur
• Fjárhagsbókhald
• Viðskiptamenn
• Sölureikningar
• Lánardrottnar
• Birgðir
Maritech er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins með skrifstofur í Kópavogi
og á Akureyri. Hjá okkur starfar stór hópur vel menntaðra sérfræðinga sem notar
upplýsingatæknina til þess að hjálpa þér að ná betri árangri. Maritech hefur þróað
fjölda viðbóta við Navision viðskiptahugbúnaðinn sem eru lagaðar að þörfum
íslenskra fyrirtækja.
Einfalt og þægilegt viðmót
Einföld uppsetning
Íslenskar handbækur
Staðlaðir bókhaldslyklar
Miklir stækkunarmöguleikar
Tenging við aðrar lausnir
Fjöldi viðbótarlausna
Microsoft samhæft
Aðgangur að þjónustuborði
Fjöldi námskeiða í boði
Hringdu núna í síma 545-3200
Fjárfesting til framtíðar
Þú þarft að
þekkja eigin rekstur
til að geta keppt við aðra
Verð frá kr. 130.900*
Öll verð eru án vsk. *Verð miðast við einn notanda
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík - Sími 591 0100 - Fax 591 0101 - mottaka@si.is - www.si.is
Námsefnisgerð
Styrkir til útgáfu á námsefni í iðngreinum
og öðrum greinum sem varða iðnað
Framtíð iðnaðar veltur á menntun og mannauði. Aukin þekking gefur
iðnaðinum takmarkalaus tækifæri til vaxtar, nýsköpunar og útrásar.
Mikilvægt er að nemendum í iðn- og starfsnámi standi til boða námsefni
við hæfi.
Samtök iðnaðarins auglýsa eftir umsóknum um styrki til útgáfu á námsefni
í iðngreinum og öðrum greinum sem varða iðnað.
Nánari upplýsingar á www.si.is
Hönnuðurinn Hedi Slimane hefur
látið tískuspekúlanta standa á önd-
inni undanfarin fjögur ár með
Berlínarrokkaralúkkinu sínu á
karlmenn. Hann hefur spilað inn á
draum margra karlmanna um að
hleypa út sinni innri rokkstjörnu,
og selur tíu prósent Dior herralínu
sinnar til kvenfólks, sem dýrkar
níðþröngu, strákalegu jakkafötin
sem Slimane hefur gert heims-
fræg.
Reyndar hefur þessi hálftún-
iski, hálf-franski snillingur breytt
miklu um þá líkamsímynd karl-
manna sem er í tísku nú á tímum.
Strákar sem vilja vera hipp og kúl
eru löngu hættir að bæta á sig
vöðvum í ræktinni og hallast frek-
ar að ofurgrönnum líkama rokkar-
ans. Súper sófistikeraðar konur
sjást einnig gjarnan í flíkum eftir
Slimane, sem vill aldrei breyta
sniðinu fyrir kvenlegar línur.
Carine Roitfeldt, ritstjóri franska
Vogue, Sofia Coppola, Nicole Kid-
man, Catherine Deneuve og
Jeanne Moreau eru allar aðdáend-
ur jakkafatanna klassísku sem að
vísu passa ekki nema á þær grann-
vöxnustu.
Þessi skemmtilega andrógyn
póll sem Slimane tekur á tískuna
er einmitt það sem hefur skotið
honum upp á stjörnuhimininn.
„Hvað er karlmennska yfirleitt,“
spyr þessi fíngerði maður, sem
ólst upp í Buttes-Chaumont hverf-
inu í París og hjálpaði ítalskri
móður sinni að sauma á sig föt. Sli-
mane hannar líka flíkur fyrir hetj-
urnar sínar Mick Jagger og David
Bowie, auk þess að vera kominn í
innsta hring rokkhljómsveita eins
og Babyshambles, White Stripes,
Arctic Monkeys, Franz Ferdinand
og The Killers. Slimane, sem er
ljósmyndari og iðnhönnuður auk
þess að vera tískuhönnuður, hefur
gert heila ljósmyndabók tileink-
aða Pete Doherty söngvara Baby-
shambles þar sem villt líf hans er
skrásett undir titlinum London:
Birth of a Cult.
Rokkarar í London skildu ekki
hvað þessi furðulegi frakki var
eiginlega að gera á sjabbí tón-
leikabúllum, en hleyptu honum
svo inn í innsta hring þar sem
hann gat ljósmyndað óáreittur.
Sumarlína Dior fyrir 2006 var
augljóslega innblásin af Doherty
og skartaði níðþröngum gallabux-
um, höttum og rauðum axlabönd-
um. Slimane lét fljúga Doherty
sérstaklega til Parísar fyrir eftir-
partíið þar sem hann söng „Happy
Birthday“ fyrir hönnuðinn á eftir-
minnilegan hátt. „Hedi er eins og
Warhol,“ segir aðstoðarkona hans,
Almine Rech. „Hann er hugfang-
inn af frægð og hvernig er hægt
að gera tákn úr fólki.“
Nú bíða konur spenntar eftir að
heyra hvort Slimane ætli að hella
sér út í að hanna sérstaklega fyrir
kvenfólk. „Mig langar til þess,“
sagði Slimane við breska Vogue.
„En rétta tækifærið hefur enn
ekki komið upp. Ég verð að vera
viss um að ég sé með hið full-
komna prójekt í höndunum.“ - amb
Haute Couture
og rokk og ról
NÝJASTA LJÓSMYNDABÓK HEDI SLIMANE
Fjallar um söngvarann villta Pete Doherty.
Hedi Slimane er heitasti hönnuður Parísarborgar.