Fréttablaðið - 05.03.2006, Page 69

Fréttablaðið - 05.03.2006, Page 69
[UMFJÖLLUN] TÓNLIST Það er örugglega ekki til vingjarn- legri tónlist en sú sem Jack John- son gerir. Af sama skapi er hún mjög undarleg að mörgu leyti. Það besta sem hægt er að segja um lög hans er að þau séu sæmi- leg. Af sama skapi er það versta sem hægt er að segja að hún sé ekkert sérstök. „Svona la la“ er frábær skilgreining á þeim kokk- teil sem Jack býður hlustendum upp á og líklega lykillinn að vel- gengni hans. Tónlist hans rennur einhvern veginn beint inn í þá þröngu rifu á milli tónlistarstefna þar sem hann getur ómögulega móðgað nokkurn einasta mann. Ekki einu sinni hundfúlan tónlist- argrúskara eins og mig. Hér eru bein tengsl í bandarísku sveita- lagahefðina, en samt eru textarnir nægilega væmnir og lögin nægi- lega sykursæt til þess að færa hlustendum Bylgjunnar þetta þægilega stresslosandi andvarp sem þeir bíða eftir allan daginn. Þessi nýja plata hans er víst tónlist fyrir teiknimyndina Curi- ous George sem skartar hinum ómótstæðilega Will Ferrell í aðal- hlutverki á móti Drew Barrymore. Miðað við tónlistina þá er þetta ekki bara mynd fyrir börn. Ef satt skal segja, þá hljómar þetta bara nákvæmlega eins og sú tónlist sem Jack hefur sent frá sér áður, og ekki að heyra að myndin hafi haft mikil áhrif á lagasmíðar hans. Lögin eru í nákvæmlega sama stíl og síðasta plata Jacks, In Between Dreams. Gítarinn sér bæði um undirleik og takt. Lagið The 3 R´s stingur því strax í stúf, bara fyrir það eitt að hafa tromm- ur. Glöggir hlustendur ættu svo að kannast við fyrstu hendinguna í laginu, en þar fær Jack „að láni“ sama brot úr laginu Three is a Magic Number og DeLaSoul gerði hérna um árið. Boðskapurinn er afar grænn, fjallar um nauðsyn endurvinnslu og þess að losa sig við ónýta hluti. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að hér sé ekkert tónlistar- lega krefjandi. Þetta er eins mikið léttmeti og það gerist. Það er jafn auðvelt að fá leið á þessu og það er að heillast með við fyrstu hlustun. Þeir sem heilluðust að síðustu plötu eiga eftir að hafa gaman af þessari, hinir ættu að halda sig fjarri. Birgir Örn Steinarsson Stresslosandi andvarp JACK JOHNSON: CURIOUS GEORGE NIÐURSTAÐA: Fylgifiskur hinnar geysivinsælu In Between Dreams er nánast nákvæmlega eins og búast mátti við. Jack Johnson semur þó í þetta skiptið fyrir kvikmynd, en það setur engan svip á plötuna. Ný plata frá Nick Cave og sam- starfsmanni hans til margra ára, fiðluleikaranum Warren Ellis, kemur út á mánudag. Platan er með tónlist úr vestr- anum The Proposition en Cave samdi einmitt handritið að mynd- inni. Með helstu hlutverk fara Guy Pearce, Ray Winstone, Emily Wat- son og Danny Huston. „Nick semur texta sem eru í sögustíl og þess vegna eru persónurnar svo vel skrifaðar,“ sagði leikstjórinn John Hillcoat. „Ég vissi að það kæmi eitthvað gott út úr þessu.“ Nick Cave hafði mjög gaman af verkefninu. „Ég heyrði myndina alltaf inni í mér og ég held að handritið sé samið með ákveðinn takt í huga. Stundum er mikið ofbeldi í henni en síðan eru líka atriði þar sem ekkert er sagt í langan tíma, nokkurs konar hljóð- látur tregi,“ sagði Cave, sem nýverið samdi tónlistina við íslenska leikritið Woyzeck. Nýtt frá Nick Cave NICK CAVE Ástralinn Nick Cave samdi handritið og tónlistina við myndina The Proposition. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.