Fréttablaðið - 05.03.2006, Page 70

Fréttablaðið - 05.03.2006, Page 70
34 5. mars 2006 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is > Guðjón Valur með stórleik Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik fyrir Gummersbach sem komst áfram í gær í EHF-keppninni í handbolta. Guð- jón skoraði tólf mörk í leiknum, í öllum regnbogans litum og var maðurinn á bak við það að þýska liðið féll ekki úr leik. Þrátt fyrir að spænska liðið Bidasoa hafi farið með sigur af hólmi 30- 26 komst Gummers- bach áfram en liðið vann fyrri leikinn 35-26. Róbert Gunnarsson minnti líka á sig en hann skoraði tvö mörk í leiknum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MARS 2 3 4 5 6 7 8 Sunnudagur ■ ■ LEIKIR  18.00 FH og KA/ÞÓR mætast í DHL-deild kvenna í handbolta í Kaplakrika.  19.15 Skallagrímur og Grindavík mætast í Iceland-Express deild karla í körfubolta í Borgarnesi.  19.15 Hamar/Selfoss og Keflavík mætast í Iceland-Express deild karla í körfubolta í Iðu.  19.15 Haukar og Snæfell mætast í Iceland-Express deild karla í körfu- bolta á Ásvöllum.  19.15 Þór og ÍR mætast í Iceland- Express deild karla í körfubolta í Höllinni á Akureyri.  19.15 KR og Höttur mætast í Iceland-Express deild karla í körfu- bolta í DHL-höllinni í Vesturbænum.  19.15 Njarðvík og Fjölnir mætast í Iceland-Express deild karla í körfu- bolta í Njarðvík. ■ ■ SJÓNVARP  13.30 Enska knattspyrnan á Enska boltanum. Bein útsend- ing frá leik Manchester City og Sunderland.  16.00 Enska knattspyrnan á Enska boltanum. Bein útsending frá leik Tottenham og Blackburn.  19.25 Ítalska knattspyrnan á Sýn Extra. Bein útsending frá leik Roma og Inter Milan.  20.00 Golf á Sýn. Bein útsending frá Ford mótinu í Bandaríkjunum.  21.35 Helgarsportið á Rúv. Icelandair styrkir Stoke Íslenska flugfélagið Icelandair hefur gert styrktarsamning við Stoke City. Enska félagið hefur nefnt suðurstúku Britannia vallarsins Icelandair-suður stúkuna, en það mun hún heita að minnsta kosti fram á sumarið 2007. Tengsl félags- ins við Ísland eru mjög mikil eins og flestum er kunnugt um, meðal annars er Gunnar Þór Gíslason stjórnarformaður klúbbsins. FÓTBOLTI Keflvíkingar hafa komist að samkomulagi við Bandaríkja- manninn Geoff Miles og spilar hann með liðinu í sumar. Rúnar Arnarson formaður knattspyrnu- deildar Keflavíkur sagði við Fréttablaðið í gær að allt hefði verið samþykkt og bara ætti eftir að undirrita samninginn. Miles er enn í Bandaríkjunum en stefnt er á að hann fari með Keflvíkingum út til Spánar í æfingaferð í byrjun apríl. Miles spilaði með Haukum í 1. deildinni á síðasta tímabili og stóð sig mjög vel. Rúnar staðfesti einnig að við- ræður við danska varnarmanninn Peter Matzen væru farnar af stað en hann var til reynslu hjá félag- inu nýverið og vonast félagið eftir því að semja við hann. - hþh Keflvíkingar stórhuga: Geoff Miles til Keflavíkur KÖRFUBOLTI „Þessar tvær umferðir sem eru eftir verða líklega hörku- spennandi og það mun ekki ráðast með sæti fyrr en á lokasekúndum mótsins. Það verður brjáluð spenna á öllum vígstöðvum,“ segir Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarð- víkur, en næstsíðasta umferðin í úrvalsdeild karla í körfuknattleik fer fram í kvöld. Njarðvíkingar eru með jafn- mörg stig og Keflavík fyrir tvær síðustu umferðirnar en þessi tvö lið mætast einmitt í lokaumferð- inni næsta fimmtudag. Í kvöld leika Njarðvíkingar hins vegar gegn Fjölnismönnum í Grafarvog- inum. „Þessi leikur skiptir nánast engu fyrir okkur í deildinni því það nægir okkur að vinna Keflavík í síðasta leiknum til að tryggja okkur efsta sætið. Samt er stefnan að sjálfsögðu sett á sigur. Fjölnis- mennirnir eru með hörkulið og hafa verið að rífa sig upp undan- farið. Við ætlum að stíga eitt af skrefunum í átt að því að mæta þeim í úrslitakeppninni með því að sigra í þessum leik,“ segir Einar en Njarðvík tapaði eftir framlengingu fyrir Grindavík í síðasta leik sínum. „Sóknarleikurinn var nokkuð góður en það er ljóst að við þurfum að spila betri vörn en við gerðum í þeim leik. Það var þó margt jákvætt í leik okkar en ýmislegt sem þarf að fínpússa fyrir úrslitakeppnina,“ Einar sér fram á virkilega spennandi og skemmtilega úrslita- keppni. „Deildin hefur verið svaka- lega jöfn og mikil spenna í gangi. Við eigum eftir að sjá meira spenn- andi úrslitakeppni en nokkru sinni áður. Þetta verða allt hörkuleikir en nánast ómögulegt verður að spá í viðureignirnar milli liðanna í þriðja til sjötta sæti,“ sagði Einar að lokum. - egm Næstsíðasta umferðin í Iceland-Express deild karla fer fram í kvöld: Hörkuspenna framundan SPENNANDI LEIKUR Á fimmtudaginn mætast Keflavík og Njarðvík í úrslitaleik í deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns- son átti stórleik fyrir Leceister sem vann Hull 3-2 í ensku 1. deild- inni í knattspyrnu í gær. Jóhannes skoraði tvö marka liðsins og þau voru svo sannarlega ekki af verri endanum. Jóhannes þrumaði boltanum frá sínum eigin vallarhelmingi í fyrra markinu og yfir markmann Hull sem hafði brugðið sér í skóg- arferð. Síðara markið var ekki síðra, þrumuskot af löngu færi, sannkölluð glæsimörk hjá lands- liðsmanninum. Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson léku allan leik- inn í liði Reading sem lagði Burn- ley 3-0 á útivelli og er komið með fjórtán stiga forystu á toppi deild- arinnar og svo gott sem komið upp. Gylfi Einarsson kom ekki við sögu hjá Leeds sem vann Crystal Palace 2-1 og Hannes Sigurðsson var heldur ekki í liði Stoke, sem tapaði fyrir Norwich 2-1. Reading er efst í deildinni með með 89 stig, Sheffield Utd. í 2. sæti með 75 stig og Leeds í 3. sæti með 69 stig. - hþh Jóhannes Karl Guðjónsson: Skoraði tvö glæsileg mörk JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON Í fínu formi um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÖK HANDBOLTI Mikið jafnræði var í fyrri hálfleik í viðureign Stjörn- unnar og Hauka í DHL-deildinni í gær en sömu lið mættust fyrir viku síðan í bikarúrslitum. Þar keyrðu Stjörnumenn síðan yfir mótherja sína í seinni hálfleik og það sama gerðist í Ásgarði í gær. Stjörnumenn höfðu nauma for- ystu stærstan hluta fyrri hálf- leiks en Haukar komust í fyrsta sinn yfir 16-15 og voru með for- ystuna 19-18 þegar flautað var til hálfleiks. Í seinni hálfleik áttu Hauka- menn síðan fá svör við leik heimamanna sem unnu á endan- um 33-28 eftir að hafa mest náð átta marka forystu. Sigurinn var jafnvel enn meira sannfærandi en sá sem þeir unnu í Laugardals- höllinni. Mikil óákveðni einkenndi sókn- arleik Hauka og eftir að hafa verið frekar rólegur í fyrri hálf- leiknum átti Róland Valur Eradze stórleik í þeim síðari, varði oft úr opnum færum og skoraði þar að auki eitt mark yfir endilangan völlinn eftir að hafa varið eitt af þeim tuttugu skotum sem hann varði í leiknum. „Við vorum mjög ákveðnir og þeir sáu í seinni hálfleik að þetta var vonlaust og bara hættu. Það var ekki vandamálið að koma mönnum niður á jörðina eftir sig- urinn í bikarúrslitaleiknum. Markvarslan hjá Roland úr opnum færum drap Haukaliðið endan- lega. Vörn okkar var mjög góð og þeir komust bara ekki í gegn og höfðu fá svör. Viljinn var fyrir hendi og það skilaði sigri,“ sagði Sigurður Bjarnason, þjálfari Stjörnunnar. Markvarsla Hauka var langt frá því að vera ásættanleg en Birk- ir Ívar Guðmundsson varði aðeins eitt skot allan fyrri hálfleikinn og það á lokasekúndu hálfleiksins þegar Patrekur átti skot frá miðju vallarins. Í þeim síðari varði hann fimm skot. Að vanda voru þeir Tite Kaland- adze og Patrekur Jóhannesson í miklum ham í liði Stjörnunnar og skoruðu samtals sextán mörk. Þar á eftir komu Kristján Kristjánsson og Þórólfur Nielsen með fjögur mörk hvort. Varnarleikur liðsins var góður og þá sérstaklega í seinni hálf- leiknum. Aftur gáfu Haukarnir eftir en þeirra besti leikmaður var Freyr Brynjarsson sem skoraði sjö mörk og sýndi fína baráttu. „Við vorum betri í fyrri hálfleik að mínu mati en svo kemur aftur svona kafli hjá okkur eins og í síð- asta leik. Þeir spila mjög góða vörn og hafa klassamarkvörð á bak við sig en við eigum að geta gert miklu betur en þetta. Það skiptir miklu að hafa markvörslu á bak við sig en hana vorum við því miður ekki með í þessum leik. Við erum að klúðra dauðafærum í sókninni. Dómararnir leyfðu ákveðið mikið og Stjörnumenn nýttu sér það öfugt við okkur, við vorum ekki nægilega harðir í vörninni,“ sagði Freyr en með tapinu duttu Haukar aftur niður í annað sætið. - egm Endursýning í Garðabæ Stjarnan vann öruggan sigur á Haukum, 33-28, í DHL-deild karla í gær. Leikur- inn var nánast endursýning á bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. ROLAND ERADZE Ver hér vítakast í leiknum gegn Haukum í gær en hann átti góðan leik í markinu og tók alls tuttugu bolta. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL 60 SEKÚNDUR TENNIS Rafael Nadal sigraði á opna meistaramótinu í tennis í Dubai í gær. Nadal er aðeins nítján ára en hann vann Roger Federer, stiga- hæsta tennismann heims, í tveim- ur settum gegn einu í úrslitaviður- eigninni sem var stórskemmtileg áhorfs. Nadal er einmitt í öðru sæti heimslistans en hann hefur gott tak á Federer og sigur hans í gær var hans þriðji í fjórum við- ureignum þeirra á stórmóti. - egm Opna tennismótið í tennis: Nadal skákaði Roger Federer MEÐ TAK Á FEDERER Rafael Nadal er gríðar- lega mikið efni. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Að verða Reykjavíkurmeistari er... gott mál. Hvaða lið komast upp? Fram og Þór Akureyri. Víkingsliðið er... gott lið. Ásgeir Elíasson er... góður þjálfari. Skora eitt eða leggja upp tvö? Annað- hvort. Danmörk eða Grikkland? Grikkland. Hverjir verða Íslandsmeistarar? FH. Hver er alltaf síðastur á æfingar? Gunni markmaður. Hver er í versta forminu? Allir í góðu formi hjá okkur. Besta augnablik á ferlinum? Þegar ég skrifaði undir samning við Panat- hinaikos. Best klæddi Framarinn er? Gunni markmaður. Hver vinnur Idolið? Ingó. Íslenski boltinn er... ágætur. MEÐ HELGA SIGURÐSSYNI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.