Fréttablaðið - 05.03.2006, Blaðsíða 73
SUNNUDAGUR 5. mars 2006 37
Í dag, sunnudaginn 5. mars taka gildi
breytingar á leiðakerfi Strætó.
Með þessum breytingum er verið að
koma til móts við þarfir viðskiptavina
okkar og ábendingar þeirra.
Nýja leiðabók er að finna á sölustöðum
strætó og einnig er allar upplýsingar að
fá á www.straeto.is.
Alla leið með Strætó.
Breytingar á leiðinni!
Ástæða til að fagna:
Meðal breytinga á leiðakerfinu eru
nýjar leiðir bæði í Kópavogi og Reykjavík.
FÓTBOLTI Hernan Crespo, argent-
ínski sóknarmaður Chelsea, segir
að það andi
ekki köldu milli
leikmanna liðs-
ins og landa
síns Lionels
Messi. Jose
Mourinho,
stjóri Chelsea,
sakaði Messi
um leikaraskap
þegar Asier del
Horno var rek-
inn af velli í fyrri leiknum.
„Við erum ekkert pirraðir út í
Lionel, þetta sem gerðist er bara
hluti af fótboltanum. Þrátt fyrir
ungan aldur óttast hann ekkert og á
skilið virðingu fyrir hugrekki sitt.
Það sem særir okkur var að tapa í
fyrsta sinn á heimavelli í um fimm-
tíu leikjum,“ sagði Crespo. - egm
Hernan Crespo, Chelsea:
Okkur er ekki
illa við Messi
CRESPO Messi er ekki
á óvinalista Chelsea.
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Teddy
Sheringham er búinn að undirrita
nýjan samning við enska úrvals-
deildarliðið West Ham út næstu
leiktíð. Sheringham verður fertug-
ur í næsta mánuði en nýi samning-
urinn gerir það að verkum að hann
ætti að vera enn að spila í úrvals-
deildinni 41 árs gamall.
„Það er frábært að hafa Teddy
eitt ár í viðbót. Hann getur miðlað
reynslu sinni til yngri leikmanna
félagsins en það sem er mikilvæg-
ast er að við fáum að njóta hæfi-
leika hans á vellinum áfram. Ég er
ekki í vafa um að hann verði mikil-
vægur fyrir okkur áfram næsta
tímabil,“ sagði Alan Pardew, stjóri
West Ham. - egm
Teddy Sheringham:
Ekki dauður úr
öllum æðum
FÓTBOLTI Chelsea er á góðri leið
með að verja Englandsmeistaratit-
il sinn eftir góðan 2-1 sigur gegn
WBA um helgina. Didier Drogba
og Joe Cole skoruðu mörkin en
Kanu minnkaði muninn undir lokin.
Eiður Smári Guðjohnsen var í byrj-
unarliðinu hjá Chelsea en Geremi
tók stöðu hans á 73. mínútu en
landsliðsfyrirliðinn átti ágætan
leik. Arjen Robben fékk beint rautt
spjald fyrir tæklingu, ákvörðun
sem leikmenn Chelsea voru langt
frá því að vera sáttir við.
„Dómarinn sagði að Arjen hefði
tæklað hann með báðum fótum en
hann snerti ekki einu sinni mann-
inn,“ sagði John Terry, fyrirliði
liðsins, um brottreksturinn. „Við
ræddum vel saman í hálfleik, við
vorum reyndar húðskammaðir en
það var það sem þurfti. Stuðnings-
mennirnir okkar voru frábærir,
þeir sungu nafnið hans Peters
Osgood og við viljum tileinka
honum sigurinn. Hann var frábær
maður,“ sagði Terry að lokum en
Osgood er gömul hetja á Stamford
Bridge sem lést í vikunni sem
leið.
Heiðar Helguson og félagar
hans í Fulham sáu aldrei til sólar
gegn Arsenal sem settu stórsýn-
ingu á svið á Craven Cottage. Það
þarf ekki að koma neinum á óvart
að Thierry Henry átti magnaðan
leik en hann skoraði tvö mörk en
Emmanuel Adebayor og Fransesc
Fabregas skoruðu hin mörkin.
Heiðari var skipt útaf á 61. mínútu
en hann fann sig ekki vel í leiknum,
ekki frekar en aðrir leikmenn Ful-
ham.
„Þetta er versta frammistaða
okkar á heimavelli sem ég hef séð
á þessu tímabili en þetta var besta
frammistaða Arsenal sem ég hef
séð. Thierry Henry er stórkostleg-
ur leikmaður og þeir sendu þarna
aðvörun til allra annarra liða. Við
getum ekki kvartað yfir því að tapa
af því við vorum lélegir í þessum
leik. Við sköpuðum engin færi en
þeir virtust líklegir til að skora í
hvert skipti sem þeir sóttu,“ sagði
Chris Coleman, stjóri Fulham,
mjög ósáttur eftir leikinn.
Framherjum Liverpool gekk
ekki vel að skora frekar en fyrri
daginn en Rauði herinn náði aðeins
markalausu jafntefli gegn Charl-
ton á heimavelli. Hermann Hreið-
arsson var manna bestur í liði
Charlton sem varðist vel sóknar-
lotum Liverpool.
Robbie Fowler skoraði reyndar
fyrir Liverpool en markið var
dæmt af vegna rangstöðu. Dómur-
inn var líklega réttur en þetta er í
annað sinn sem Fowler skorar en
markið er dæmt af. Hitt kom með
hjólhestaspyrnu gegn Birming-
ham fyrir mánuði síðan. - hþh
Sigur hjá Jose Mourinho í
leik númer 100 með Chelsea
Jose Mourinho fagnaði sigri með Chelsea í sínum 100. leik við stjórnvölinn hjá
félaginu. Chelsea styrkti stöðu sína á toppnum með 2-1 sigri á WBA. Arsenal
burstaði Fulham 4-0 og virðist til alls líklegt í lokabaráttunni í deildinni.
JOE COLE Englendingurinn fagnar hér marki sínu í gær en hann stóð sig vel eftir að hafa
komið inn á sem varamaður. NORDICPHOTOS/AFP
Enska úrvalsdeildin:
ASTON VILLA-PORTSMOUTH 1-0
1-0 Milan Baros (36.).
FULHAM-ARSENAL 0-4
0-1 Thierry Henry (31.), 0-2 Sheyy Adebayor (35.),
0-3 Thierry Henry (76.), 0-4 Cesc Fabregas (86.).
Heiðar Helguson var í byrjunarlði Fulham en var
skipt af velli á 61. mínútu.
MIDDLESBROUGH-BIRMINGHAM 1-0
1-0 Mark Viduka (45.).
NEWCASTLE-BOLTON 3-1
1-0 Nolberto Solano (34.), 2-0 Alan Sgearer (45.),
3-0 Shola Ameobi (69.), 3-1 Kevin Davies (71.).
WBA-CHELSEA 1-2
0-1 Didier Drogba (51.), Joe Cole (54.), 1-2 Kanu
(88.)
WEST HAM-EVERTON 2-2
1-0 Marlon Harewood (10.), 1-1 Leon Osman
(18.), 2-1 Dean Ashton (23.), 2-2 James Beattie
(71.).
LIVERPOOL-CHARLTON 0-0
Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í vörn
Charlton og stóð sig vel.
Enska 1. deildin:
BURNEY-READING 0-3
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson
léku allan leikinn fyrir Reading.
LECEISTER-HULL 3-2
Jóhannes Karl Guðjónsson átti stórleik fyrir Leic-
ester og skoraði tvö glæsileg mörk auk þess að
leggja upp eitt.
NORWICH-STOKE 2-1
Hannes Sigurðsson var ekki í liði Stoke City.
CRYSTAL PALACE-LEEDS 1-2
Gylfi Einarsson kom ekkert við sögu hjá Leeds.
WATFORD-DERBY 2-2
SOUHAMPTON-COVENTRY 1-0
PLYMOUTH-BRIGHTON 1-0
QPR-WOLVES 0-0
CARDIFF-SHEFF. WED 1-1
Meistaradeildin í handbolta:
Átta liða úrslit:
CELJA-CIUDAD REAL 28-33
Ciudad Real vann samanlagt 67-55. Ólafur Stef-
ánsson skoraði fjögur mörk fyrir Ciudad Real.
FLENSBURG-KIEL 31-34
Flensburg vann samanlagt 63-62. Stefán Arnalds-
son og Gunnar Viðarsson dæmdu leikinn.
BARCELONA-PORTLAND 26-23
Portland vann samanlagt 48-47.
VESZPRÉM-MONTPELLIER 27-22
Veszprém vann samanlagt 48-45.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS