Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2006, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 05.03.2006, Qupperneq 74
 5. mars 2006 SUNNUDAGUR38 Þótt forsetaskiptin hjá Real Madr- id í vikunni hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti þá virðast knatt- spyrnublaðamenn álfunnar sam- mála um að þau hafi verið óumflýj- anleg fyrr eða síðar. Þótt tímasetningin hafi komið á óvart virðast ástæðurnar ekki flóknar; gjaldþrot ofurboltastefnunnar. Velgjuleg framganga margra helstu ofurboltanna „galacticos“ sem Pérez keypti hafi að lokum fyllt forsetann þvílíkri ógleði að hann treysti sér ekki til að halda áfram. En þótt flestir Madrídingar hafi legið á spýjustokknum með Pérez voru raddirnar sem hrópuðu á afsögn hans ekkert óvanalega háværar. Því þrátt fyrir dapurt gengi á leikvelli var framgangan utan vallar til fyrirmyndar. Þegar Pérez velti Lorenzo Sanz af stóli fyrir sex árum var félagið Evrópu- meistari á brauðfótum, skuldaði tugi milljarða og útsala á leikmönn- um blasti við. Fasteignamógúlinn Pérez breytti þessu skjótt með útsjónarsamri sölu á æfingasvæði félagsins og harðri markaðssókn í kjölfarið. Tíðindin í síðasta mánuði um að Real Madrid væri veltu- mesta félag heims voru mikill sigur fyrir Pérez og benti flest til að liðið hefði fjárhagslega burði til að endurskipuleggja leikmanna- hópinn frá grunni í sumar. Pepsi-liðið flott Pérez til hróss má segja að hann hafi þekkt sinn vitjunartíma. Gert sér að lokum grein fyrir því að hann væri ekki rétti maðurinn til að sprengja ofurboltablöðrurnar og byggja upp nýtt lið. Ekki kom til greina að stíga til hliðar og láta atvinnumönnum eftir leikmanna- kaupin því fyrir kalla eins og Pérez er ekkert til sem heitir valddreif- ing. Suður-evrópskir forsetar knatt- spyrnuliða líta á sig eins og léns- herra á miðöldum sem deila og drottna og skipta sér af minnstu málefnum þegna sinna. Þannig rak Pérez fimm þjálfara á þessum sex árum og jafnvel hörkutólið Arrigo Sacchi sem þó var vanur að vinna undir öðrum Napóleóni, sjálfum Sil- vio Berlusconi, gafst upp sem yfir- maður knattspyrnumála. Hvorki Sacchi né þjálfararnir fengu neitt um leikmannakaup að segja. Hveitibrauðsdagarnir voru ljúfir hjá Pérez, kaupin á langdýr- asta leikmanni heims, Zinedine Zidane, skiluðu sér með glæsilegu sigurmarki fransmannsins í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2003. Stefnan sem Pérez nefndi „Zidanar og Pavonar“ virtist eiga bjarta framtíð. Pérez sagðist aldrei hafa gleymt því sem honum hefði verið sagt að þrjú af hverjum fimm leikmannakaupum mistækjust. Lærdómur Pérez var að minnka áhættuna með því að kaupa aðeins þekktar stærðir, allra bestu leik- menn heims eins og Zidane. Fylla síðan upp með ungum og ódýrum leikmönnum eins og Pavon. Gall- inn var bara sá að bæði voru Pavon- arnir ekki nógu góðir og svo tók áhættumatið ekki tillit til þess að þótt ofurboltarnir brygðust ekki einn og einn þá gæti summa heild- arinnar orðið minni en partanna. Þeir náðu einfaldlega ekki að mynda lið saman. Ekki nema í Pepsi auglýsingum auðvitað. Liðið var klofið, annar vegar voru ofur- boltarnir, hins vegar sauðsvartur almúginn. Sergio Ramos sem skor- aði síðasta markið sem sett var í stjórnartíð Pérez, sagði: „Það var eins og Mallorka leikmaður hefði skorað, nánast enginn fagnaði.“ Klassískar yfirlýsingar Hverju nýi forsetinn Fernando Martín breytir í raun og veru á eftir að koma í ljós. Hann var jú hægri hönd Pérez og þrátt fyrir orð um að nú eigi aldeilis að taka til hendinni og láta menn svitna fyrir kaupinu sínu hefur sumt ekkert breyst. Martín er þannig strax farinn að lýsa yfir hvaða leikmenn eigi að fá til félagsins. Fyrstur til að redda hlutunum á að vera hinn 19 ára gamli Cesc Fabregas. Og rétt eins og Pérez er honum slétt sama um hvað núverandi atvinnuveitanda leikmannsins finnst um ráðabrugg- ið enda sé Real Madrid ennþá lang- merkilegasta lið í heimi sem allar alvöru stórstjörnur vilji spila með. EINAR LOGI VIGNISSON: SKRIFAR UM BOLTANN Á ÍTALÍU OG SPÁNI Gjaldþrot ofurboltastefnunnar varð Perez að falli DHL-deild karla: STJARNAN-HAUKAR 33-28 Mörk Stjörnunnar: Patrekur Jóhannesson 9, Tite Kalandadze 7, Kristján Kristjánsson 4, Þórólfur Nielsen 4, Davíð Kekelia 3, Gunnar Ingi Jóhanns- son 2, Björn Friðriksson 2, Arnar Theodórsson 1, Björn Óli Guðmundsson 1, Roland Valur Eradze 1. Varin skot: Roland Valur Eradze 19. Mörk Hauka: Freyr Brynjarsson 7, Jón Karl Björns- son 4, Halldór Ingólfsson 4, Arnar Pétursson 4, Kári Kristján Kristjánsson 4, Andri Stefan 2, Árni Sigtryggsson 2, Ólafur Björnsson 1. Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 6. ÍBV-FRAM 32-34 Mörk ÍBV: Mladen Cacic 13, Jan Vitipil 5, Sigurður Bragason 5, Ólafur Víðir Ólafsson 4, Michael Dost- alik 2, Grétar Eyþórsson 2, Sævar Hallgrímsson 1. Varin skot: Björgin Páll Gústavsson 15 skot. Mörk Fram: Jóhann Gunnar Einarsson 9, Rúnar Kárason 5, Sergey Serenko 5, Sigfús Páll Sigfússon 4, Gunnar Harðarson 3, Haraldur Þorvarðarson 3, Þorri B. Gunnarsson 3, Stefán Stefánsson 2. Varin skot: Magnús Erlendsson 12, Egidijus Pet- kevicius 11. DHL-deild kvenna: ÍBV-VALUR 22-18 Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 13, Simona Vintila 4, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Ester Óskarsdóttir 1. Varin skot: Florentina Grecu 19. Mörk Vals: Alla Gergijsdóttir 6, Agústa Björnsdóttir 4, Rebekka Skúladóttir 3, Arna Grímsdóttir 2. Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 12. GRÓTTA-HAUKAR 22-32 HK-VÍKINGUR 20-17 ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, hefur komið þeim skilaboðum til spænska stór- liðsins Real Madrid að það eigi að halda sér frá spænska ungstirninu Cesc Fabregas. Fjölmiðlar á Spáni hafa sagt frá því að Real sé að íhuga tilboð í miðjumanninn en Fernando Martin, nýr forseti félagsins, er með Fabregas ofar- lega á óskalista sínum. „Þeir hafa ekkert meira að bjóða en við þar sem þeir eru líka óöruggir með sæti í Meistara- deildinni á næsta tímabili,“ sagði Wenger. Sjálfur segist Fabregas stoltur af því að vera orðaður við Madrídinga en er hæstánægður með lífið á Highbury. „Real er frábært lið með frá- bæra leikmenn en ég er leikmaður Arsenal og vonast til þess að við vinnum þá á miðvikudaginn,“ sagði Fabregas. Arsenal og Real Madrid mætast í síðari viðureign sinni í Meistaradeildinni á mið- vikudag en enska liðið vann fyrri leikinn 1-0. - egm Skýr skilaboð frá Wenger: Haldið ykkur frá Fabregas MIKIÐ EFNI Cesc Fabregas er á nítjánda aldursári. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES KRAFTASPORT „Krakkarnir hafa rosalega gaman af þessu. Þetta er bara þessi gamli góði Tarzan-leik- ur sem við erum búnir að dusta rykið af,“ sagði Andrés Guðmunds- son sem stendur fyrir keppninni Skólahreysti um þessar mundir. Keppnin er á milli nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla en fjórir kepp- endur eru frá hverjum skóla, tveir strákar og tvær stelpur. Strákarnir keppa í upphífing- um og dýfum en stelpurnar í arm- beygjum og fitnessgripi og bæði kynin keppa svo í stórskemmti- legri hraðaþraut. 45 skólar af höf- uðborgarsvæðinu taka þátt en fjórar undankeppnir fara fram. Úrslitin verða svo þann 2. apríl í Laugardalshöll þar sem átta skól- ar keppa til úrslita um vegleg verðlaun. „Þetta byrjaði hjá mér í apríl síðastliðnum þegar ég hélt prufu- keppnir með sex skólum og það þrælvirkaði. Þá ákvað ég að færa þetta inn í grunnskólana og þetta hefur hlotið frábær viðbrögð. Ég finn fyrir gríðarlegum áhuga fyrir þessu,“ sagði Andrés sem nýtur verkefnisins til fullnustu. „Ég hef gert margt í gegnum tíðina, haldið alls kyns mót en þetta er það skemmtilegasta sem ég hef nokkurn tímann gert. Þetta er búið að vera krefjandi og erfitt en rosalega skemmtilegt. Það er aðallega út af því að allir opna dyrnar fyrir þessu strax og vilja allt fyrir þetta gera,“ sagði Andr- és um mótið sem er samstarfs- verkefni ICE-Fitness, ÍSÍ og Osta- og smjörsölunnar. Allt umhverfið í kringum keppnina er hið glæsilegasta en frítt verður inn á allar keppnirnar og skólarnir þurfa ekki að borga fyrir þátttökuna. „Ég ákvað að gera þetta bara af fullum krafti strax frá byrjun og sé ekki eftir því. Það er atvinnumannabragur yfir þessu og til að mynda verður úrslitakeppnin mögnuð, með ljós- asýningu og tilheyrandi. Á næsta ári munum við færa út kvíarnar og þá munum við halda þetta um allt land, halda fjórðungskeppnir og síðan veglega úrslitakeppni,“ sagði Andrés. Sýn verður með 45 mínútna langan þátt um allar undankeppn- irnar á mánudögum en fyrsti þátturinn verður annað kvöld klukkan 20.00. Úrslitakeppnin verður svo í beinni útsendingu þann 2. mars en allt verður þetta í opinni dagskrá. - hþh Andrés Guðmundsson stendur fyrir Skólahreysti grunnskólakrakka: Dustar rykið af Tarzan-leiknum STREMBIÐ Það er ekki létt verkefni að taka þátt í Skólahreysti. Hér keppa ungar stúlkur í fittnessgripi á síðustu keppni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI „Þetta var rosalega erf- iður leikur, það var viðbúið enda gífurlega sterkur heimavöllur. Við vorum ekki að spila nándar nærri nógu vel á köflum og við gerðum okkur þetta of erfitt fyrir,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, þjálf- ari Fram, eftir leikinn gegn ÍBV í gær en Framarar hrósuðu sigri eftir spennandi lokamínútur. Framarar voru skrefinu á undan allan leikinn en gekk illa að klára leikinn. Með klaufaskap misstu þeir niður forskot sitt og Eyjamenn gátu jafnað en frábær markvarsla undir lok leiksins gerði það að verkum að ÍBV tókst ekki að ná í dýrmætt stig á heima- velli. „Við náðum aldrei að hrista þá af okkur þrátt fyrir að hafa haft góð tækifæri til þess í báðum hálf- leikjum. Ef það gengur ekki verð- ur þetta erfitt undir lokin eins og raun bar vitni,“ sagði Guðmundur sem var ánægður með ungu strák- ana í Framliðinu. „Yngri strákarnir stóðu sig mjög vel, Rúnar gerði frábær mörk líkt og Gunnar á línunni og báðir hjálpuðu okkur við að landa þessum sigri. Ég er mjög ánægður með að koma með bæði stigin heim,“ sagði Guðmundur að lokum. - hþh Fram vann ÍBV 34-32 í DHL-deild karla: Við gerðum okkur þetta of erfitt fyrir SERGEY SERENKO Átti góðan leik fyrir Fram og skoraði alls fimm mörk en hann hefur verið að spila vel að undanförnu eftir erfiða byrjun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HANDBOLTI „Við höfum hitt á góða leiki á móti Val og í þessum leik náðum við að þjappa okkur vel saman eftir bikarúrslitaleikinn og ná upp góðri stemningu,“ sagði Alfreð Örn Finnsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, eftir að liðið lagði Valsstúlkur í stórleik í DHL-deild kvenna í Vestmannaeyjum í gær, 22-18. Það var varnarleikurinn og markvarslan sem var lykillinn að sigri Eyjastúlkna en Florentina Gretu varði nítján skot í markinu. Þá átti Pavla Plaminkova stórleik og skoraði þrettán mörk fyrir ÍBV sem var með forystu allan tímann og var liðið 12-6 yfir í hálfleik. Eyjastúlkur virðast hafa gott tak á Valsstúlkum því fyrir mán- uði síðan unnu þær stórsigur á þeim í bikarkeppninni og unnu fyrri deildarleikinn gegn þeim einnig sannfærandi. Skotnýting Valsliðsins í gær var í einu orði sagt slæm en ÍBV er með mjög sterkan heimavöll sem erfitt er að heimsækja. „Við spiluðum einnig vel í sókn- inni stærstan hluta leiksins og við fengum góð mörk úr hraðaupp- hlaupum því vörnin var svo þétt. Ég er eiginlega bara í skýjunum. Það var algjört lífsspursmál fyrir okkur að vinna þennan leik og nú þurfum við bara að klára okkar leiki og vona að Haukar misstígi sig,“ sagði Alfreð sem var mjög ánægður með baráttuna í sínu liði í leiknum í gær. Haukastúlkur eru í efsta sæti deildarinnar með 24 stig þegar fjórar umferðir eru eftir en ÍBV kemur fast á hæla þeirra með 23 stig. Valur er svo í þriðja sæti með 22 stig. -egm Öruggur sigur hjá kvennaliði ÍBV í Vestmannaeyjum: ÍBV með tak á Val EYJASTÚLKUR Eru með gott tak á Valsstúlk- um. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HANDBOLTI „Við spiluðum mjög vel og loksins er liðið komið á réttu brautina aftur. Sérstaklega var fyrri hálfleikurinn góður og við náðum efsta sætinu aftur sem er mjög ánægjulegt,“ sagði Guð- mundur Karlsson, þjálfari Hauka- stúlkna, eftir að liðið vann örugg- an sigur gegn Gróttu á útivelli 32-22 í gær. Með sigrinum hafa Haukar eins stigs forystu á ÍBV þegar fjórar umferðir eru eftir í DHL-deild kvenna. „Núna er þetta bara í okkar höndum. Þetta er allt hnífjafnt og lítið má út af bregða,“ sagði Guð- mundur. „Vörnin var góð í leikn- um og markvarslan sömuleiðis. Þegar það smellur hjá okkur erum við einfaldlega með illviðráðan- legt lið eins og staðan er í dag. Stelpurnar voru einfaldlega að sýna sínar bestu hliðar og ég er hæstánægður,“ sagði Guðmundur kampakátur í leikslok. - egm DHL-deild kvenna í gær: Haukar aftur í efsta sætið GUÐMUNDUR KARLSSON Var hæstánægð- ur með stelpurnar sínar í gær eftir sigurinn gegn Gróttu.FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR xxxx xxxxdxx xxxxxxx Svona er hausinn á pistlum Einars Loga EINAR LOGI VIGNISSON: XXXXXX
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.