Fréttablaðið - 05.03.2006, Qupperneq 78
5. mars 2006 SUNNUDAGUR42
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
HRÓSIÐ
...fær Shandi Sullivan úr þáttun-
um America´s Next Top Model en
hún er líka plötusnúður og
skemmti íslendingum á Gauki á
Stöng í gærkvöld.
Næstu sex sunnudaga ætla Guð-
fræðistofnun, kvikmyndafélagið
Deus ex Cinema og Neskirkja að
tökum höndum saman og standa
fyrir Jesúbíó í safnaðarheimili
Neskirkju. Sýndar verða myndir
sem allar eiga það sameiginlegt að
fjalla um líf og starf frelsarans og
spanna áttatíu ára tímabili í kvik-
myndasögunni. Sú elsta er King of
Kings frá árinu 1927 eftir Cecil B.
DeMille en leikarinn Henry B.
Warner varð í þeirri mynd ásýnd
Frelsararans. Sú nýjasta er The
Gospel of John eftir Philip Saville
frá árinu 2003 en þar er saga Jesú
sögð frá sjónarhóli guðspjalla-
mannsins Jóhannesar. Sr. Sigurður
Árni Þórðarson, prestur í Nes-
kirkju, segir hugmyndina vera
komna frá kvikmyndaklúbbnum
Deus ex Cinema en hann hefur
verið starfræktur í fjögur ár og
sýnir myndir með trúarlega skír-
skotun auk þess að hafa gefið út
bókina Guð á hvíta tjaldinu.
Jesúmyndir eru merkilegar
fyrir margra sakir því kvikmynda-
gerðarmennirnir geta verið að
rýna í samtíð sína með þeim og
hins vegar eru þær oft glíma trú-
mannsins við hinn sögulega og
himneska Jesú. „Þær eru ágætis
vitnisburður um hugsýn, sjálfs-
mynd og sjálfsvitund hvers tíma,“
segir Sigurður en eftir hverja sýn-
ingu gefst gestum kostur á að
ræða innihald myndanna við guð-
fræðing og kvikmyndafræðing.
Jesús hefur birst kvikmynda-
gerðarmönnum á mismunandi hátt
í þau hundrað ár sem hann hefur
birst á hvíta tjaldinu. í King of
Kings var hann til að mynda mjög
fjarlægur og hafinn yfir lífið en í
The Gospel According To Matt-
hew lifir Jesú meðal alþýðunnar
enda var leikstjórinn Pasolini
mjög upptekinn af verkalýðsbar-
áttunni á Ítalíu. „Kvikmyndirnar
tóku við af myndlist 19. aldarinnar
þar sem Jesús var rómanískt upp-
hafinn og það var ekki fyrr en með
Jesus Christ Superstar að menn
þorðu að búa til sitt eigið mynd-
mál en það tekur líka alltaf tíma
að búa til eigin hefð.“ - fgg
Jesúbíó í Neskirkju í dag
SR. SIGURÐUR ÁRNI ÞÓRÐARSON
Kvikmyndaklúbburinn Deus ex Cinema,
Guðfræðistofnun og Neskirkja standa fyrir
Jesúbíói í félagsheimili kirkjunnar næstu
sunnudagskvöld.
Hvað er að frétta? Það var að koma út
plata með hljómsveitinni minni Ghostigital
og það er efst á baugi.
Augnlitur? Gráblár.
Starf? Ég er listamaður.
Fjölskylduhagir? Ég er einhleypur.
Hvaðan ertu? Ég er úr Árbænum.
Ertu hjátrúarfull/ur? Stundum og stund-
um ekki. Ég labba allavega ekki undir stiga.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur? X-Files. Ég
er mjög ánægður með að það sé verið að
endursýna þá þætti.
Uppáhaldsútvarpsþáttur? Tónlistarþáttur
Dr. Gunna og Karate sem Benni sér um.
Uppáhaldsmatur? Hamborgarar.
Fallegasti staður? Þegar maður kemur
niður Ártúnsbrekkuna og sér yfir alla
Reykjavík. Mjög fallegur staður.
ipod eða geislaspilari? Vasadiskó.
Hvað er skemmtilegast? Að gera tónlist,
hlusta á tónlist, gera myndlist og skoða
myndlist.
Hvað er leiðinlegast? Að taka til.
Helsti veikleiki? Óskipulag og oft tek ég of
mikið af verkefnum að mér.
Helsti kostur? Jákvæðni.
Helsta afrek? Þessa stundina er það nýja
Ghostigital-platan.
Mestu vonbrigði? Það var þegar Borgar-
holtsskóli tapaði fyrir MR með einu stigi
fyrir nokkrum árum.
Hver er draumurinn? Það er að geta
stundað og lifað af listinni. Það má
segja að ég sé „living the dream“.
Á hvað trúirðu? Guð.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér? Þegar einhver kveður
með orðunum „við sjáum-
stumst.“
Uppáhaldskvikmynd?
Half Baked og allar
Adam Sandler-
myndirnar.
Uppáhaldsbók?
The Art of Record
Production.
Hvað er mikil-
vægast? Að lifa og
leyfa öðrum að lifa.
HIN HLIÐIN: CURVER THORODDSEN LISTAMAÐUR
Upplifir drauminn
01.02‘76
Í kvöld eru afhent ein virtustu og
frægustu kvikmyndaverðlaun
heims en þá fara fram 78. Óskars-
verðlaunin. Íslenskir kvikmynda-
nördar hafa vakað yfir útsendingu
Stöðvar 2 frá hátíðinni undanfarin
ár en spennan hér á landi magnað-
ist um helming þegar Síðasti bær-
inn var tilefnd í flokknum Besta
stuttmyndin.
Þórir Sigurjónsson, framleið-
andi myndarinnar, flaug til
kvikmyndaborgarinnar á
mánudaginn ásamt leikstjór-
anum Rúnari Rúnarssyni.
„Það var reyndar rigning
þegar við lentum en veðr-
ið hefur batnað mikið
síðan þá,“ sagði Þórir
þegar Fréttablaðið
náði tali af honum.
Mikil spenna ríkir í
herbúðum þeirra félaga
enda ekki á hverjum
degi sem Íslendingum
hlotnast slíkur heiður.
Sjón og Björk voru til-
nefnd fyrir lag sitt í Danc-
er in the Dark árið 2001 og
Friðrik Þór Friðriksson
hlaut tilnefningu fyrir
myndina Börn náttúrunnar
1992.
Að sögn Þóris var sýn-
ing á þriðjudagskvöldinu á
öllum tilnefndu myndunum
í stuttmynda-, hreyfi-
mynda- og teiknimynda-
flokkunum og var fullt út úr
húsi. „Það seldist upp en
kvikmyndahúsið
tekur í kringum þús-
und manns,“ segir
Þórir og greini-
legt að lífið í
Hollywood er ekki
eintómt sældarlíf
heldur fylgir þess-
ari tilnefningu
mikil vinna.
„Allir hlutað-
eigandi voru
kallaðir upp á svið þar sem gestum
gafst kostur á að spyrja þá og í
kjölfarið fengu fjölmiðlar tæki-
færi til að taka nokkur viðtöl,“
útskýrir Þórir og bætir við að þetta
hafi verið sama dag og I-tunes
bauð allar fimm stuttmyndirnar til
sölu á netinu. „Því hefur verið
fagnað að þessar myndir fá víðari
dreifingu en venjulega,“ bætir
framleiðandinn við. Hvort þeim
félögum séu ekki boðnir gull og
grænir skógar við hvert fót-
mál sagði hann svo ekki vera.
„Rúnar er á fullu í danska
kvikmyndaskólanum en við
erum að þróa kvikmynd í
fullri lengd með honum
auk stuttmyndar sem á
að fara í tökur nú í
sumar,“ segir hann.
Stóra stundin rennur
upp klukkan fimm að
staðartíma og hefst
útsending frá Kodak-höll-
inni klukkan eitt eftir mið-
nætti hér heima. Þórir segir
að samkeppnin sé mjög hörð
í þeirra flokki og þeir reyni
því að halda sér á jörðinni.
Aðspurður hvort þeir séu
búnir að æfa ræðuna ef nafn
þeirra kemur upp úr umslag-
inu sagði hann svo ekki vera.
„Við höfum sextíu sekúndur
til að koma okkur upp á svið
og flytja ræðuna. Ég er ekki
búinn að velta henni mikið
fyrir mér en myndi í það
minnsta skila kveðju til Skúla
Malmquist sem fram-
leiðir myndina með
mér en hann á von á
barni og gat því ekki
verið með okkur.“
freyrgigja@frettabladid.is
STÓRA STUNDIN Í KVÖLD: FÆR SÍÐASTI BÆRINN ÓSKARINN?
Yfirvegaðir í félagsskap stórstjarna
ÓSKAR FRÆNDI
Styttan góða gæti
verið á leiðinni heim
til Íslands.
SÍÐASTI BÆRINN Er tilnefnd í flokknum Besta stuttmyndin en nokkrir erlendir fjölmiðlar
hafa spáð henni sigri.
FÓLK Í FRÉTTUM
Sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann
Eiðsson hafði einn
sigur á stórmeist-
aranum Henrik
Danielsen þegar sá
síðarnefndi tefldi fjöltefli
við 20 manns
á föstudaginn.
Skákíþróttafé-
lag stúdenta við
Háskólann í Reykjavík stóð fyrir
fjölteflinu en tilgangur þess var að
safna fé sem nota á til þess að flytja
grænlensk skólabörn til landsins og
kenna þeim sund í Kópavogi. Helmingur
liðsins sem mætti Henrik var skipaður
stúdentum við HR en flokkinn fylltu
einnig þjóðþekktir einstaklingar. Þeirra
á meðal voru Ragnheiður Gröndal,
Helgi Hjörvar, Inga
Lind Karlsdóttir,
Gunnar I.
Birgisson, Ilmur
Kristjánsdóttir og
fyrrnefndur Logi Berg-
mann sem einn náði
að leggja stórmeist-
arann og skólastjóra
Hróksins. - amb/þþ
LEIÐRÉTTING
Í frétt af Bókamarkaðnum í Perlunni sem
birtist á þessum stað í gær var sagt að
markaðnum lyki á laugardag. Þetta er af
og frá þar sem markaðurinn er enn í full-
um gangi. Honum lýkur þó í dag þannig
að það eru síðustu forvöð fyrir bókelska
að gera góð kaup í Perlunni í dag.
[ VEISTU SVARIÐ ]
1 Rangheiður Ríkharðsdóttir.
2 Þýskalandi.
3 Alfreð Gíslason.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI