Fréttablaðið - 15.04.2006, Blaðsíða 37
Prentarar
Ísafoldarprentsmiðja er
elsta prentsmiðja landsins,
stofnuð 1877. Í dag starfa 75
starfsmenn hjá fyrirtækinu.
Miklar fjárfestingar í vélum,
tækjum og öðrum búnaði hafa
átt sér stað síðustu misserin
og er prentsmiðjan að fl ytja
í nýtt 7000m2 húsnæði. Hjá
Ísafoldarprentsmiðju er unnið að
mjög fjölbreyttum verkefnum,
bæði á sviði rúlluprentunar og
arkaprentunar. Hjá okkur er m.a.
Fréttablaðið og DV prentað,
ásamt fjölda annarra verkefna.
Vegna aukinna verkefna vantar okkur prentara til starfa sem fyrst.
Um er að ræða vinnu við prentun hvort sem er á blaðaprentvél eða
heatset prentvélar fyrirtækisins.
Við leitum að starfsmönnum sem eru skipulagðir og eiga auðvelt
með að vinna sjálfstætt.
Við bjóðum upp á fjölbreytt vinnuumhverfi .
Mikil vinna framundan.
Unnið er á vöktum.
Nánari upplýsingar veita:
Halldór Jakobsson yfi rprentari – s: 664 0302 – halldor@isafold.is
Kjartan Kjartansson prensmiðjustj. – s: 664 0315 – kjartan@isafold.is
Suðurhraun 1 | 210 Garðabæ | Sími: 59 50 300 | Fax: 59 50 310 | isafold@isafold.is | www.isafold.is
HEKLA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á bílum og vélum. Markmið félagsins er að vera í
fararbroddi hvað varðar þjónustu til viðskiptavina og markaðssetningu þeirrar vöru sem fyrirtækið selur og
þjónustar.
Vélvirkjar/bifvélavirkjar sinna fjölbreyttum verkefnum
sem lúta að viðgerðum og viðhaldi á vörubílum og
tækjum. Boðið er upp á bæði góða aðstöðu og gott
tæknilegt umhverfi ásamt miklum möguleikum á þjálfun
og endurmenntun.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af viðgerðum á vörubílum og tækjum
- Áhugi og þekking á vörubílum og tækjum
- Góð tungumálakunnátta.
Starfsfólk HEKLU er hvatt til að sýna frumkvæði, metnað og vilja til að ná árangri í starfi. Vinsamlegast sendið
umsókn og ferilskrá fyrir 21. apríl 2006, á netfangið va@hekla.is eða í gegnum heimasíðu okkar, www.hekla.is.
VÉLASVIÐ HEKLU – ÞJÓNUSTA
Vélasvið HEKLU er staðsett í nýlegri og glæsilegri þjónustumiðstöð, Klettagörðum 8-10, sem er sér-
hönnuð með tilliti til starfsemi vélasviðs. Er óhætt að fullyrða að þar sé um að ræða fullkomnustu
aðstöðu á landinu til þjónustu á atvinnutækjum.
Móttökustjóri ber ábyrgð á rekstri, móttöku verkefna
og samskiptum við viðskiptavini vélaverkstæðis. Þá
kemur hann jafnframt að gerð áætlana og eftirfylgni með
þeim. Móttökustjóri vinnur náið með verkstjórum
vélaverkstæðis en starfið heyrir beint undir
þjónustustjóra vélasviðs.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Útsjónarsemi og þjónustulund
- Skilningur á rekstrarlegum þáttum og afkomu
- Góð tölvukunnátta.
Móttökustjóri Vélvirki / bifvélavirki
Vegna aukinna verkefna viljum við fjölga starfs-
mönnum í smurþjónustu. Starfsmaður í smurþjónustu
sinnir daglegri smurþjónustu á vélaverkstæði. Boðið
er upp á fullkomna aðstöðu til þjónustu á stærri
tækjum.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
Smurþjónusta
Vegna aukinna verkefna viljum við fjölga starfs-
mönnum hjólbarðaþjónustu, bæði á verkstæði
og á lager. Starfsmaður í hljólbarðaþjónustu sinnir
daglegum verkefnum og þjónustu við viðskipta-
vini.
Hjólbarðaþjónusta
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
Við leitum að kraftmiklu fólki í eftirtalin störf:
Vantar vana bílstjóra
á búkollur sem fyrst
Upplýsingar gefur Sölvi í síma 660-6100 eða 545-1805.
Akureyrarbær
Skóladeild Glerárgötu 26
600 Akureyri
Lundarskóli
Staða skólastjóra.
Staða skólastjóra við Lundarskóla á Akureyri er laus til um-
sóknar.
Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun. Æskilegt er að
hann hafi framhaldsmenntun í stjórnun og reynslu af skóla-
stjórnun. Nauðsynlegt er að hann hafi góða stjórnunar- og
skipulagshæfileika, geti starfað sjálfstætt og hafi gott vald á
mannlegum samskiptum.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað og vilja til að
leiða öflugt þróunar- og nýbreytnistarf.
Lundarskóli er heildstæður, einsetinn grunnskóli, nemendur
verða um 520 á næsta skólaári. Í skólanum er sérdeild fyrir
heyrnarskerta- eða heyrnarlausa nemendur.
Fjöldi starfsmanna er um 80 og hlutfall fagmenntaðra starfs-
manna er yfir 97%.
Nánari upplýsingar er að hafa á heimasíðu skólans:
http://www.lundarskoli.akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir deildarstjóri Skóladeildar Gunn-
ar Gíslason í síma 460 1456 eða 892-1453, netfang:
gunnarg@akureyri.is og skólastjóri Þórunn Bergsdóttir í síma
462-4888, netfang: thbergs@akureyri.is
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar
um jafnréttismál við ráðningu í starfið. Laun samkvæmt kjara-
samningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um kaup og kjör eru veittar í starfsmannaþjónus-
tu Akureyrarbæjar í síma 460-1060.
Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri í Geislagötu 9,
á eyðublöðum sem þar fást.
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu Akureyrarbæjar
– www.akureyri.is.
Umsóknarfrestur er til 24. apríl 2006.
ATVINNA
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006 7