Fréttablaðið - 15.04.2006, Blaðsíða 40
ATVINNA
10 15. apríl 2006 LAUGARDAGUR
Verkefnastjóri
Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins á Hornafirði
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
(www.rf.is) auglýsir eftir
verkefnastjóra til starfa á
Hornafirði. Um er að ræða nýtt
starf sem unnið verður í nánum
tengslum við starfsemi
Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf.
eða Frumuna. (www.fruma.is)
Hlutverk verkefnastjórans verður að stjórna og
vinna að verkefnum á vegum Rf. á Hornafirði en
þau fela m.a. í sér:
- umsjón með daglegum rekstri, öflun verkefna og
áætlanagerð
- samstarf við fyrirtæki og einstaklinga um verkefni
- vinnu við verkefni sem tengjast humarveiðum og
vinnslu
- kortlagningu á tækifærum
- að kynna verkefni og tækifæri í umhverfinu.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi í
raunvísindum, líffræði, matvælafræði eða
verkfræði. Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði
og sjálfstæði í vinnubrögðum, gott vald á ensku og
íslensku og lipurð í mannlegum samskiptum.
Fyrirhuguð starfsemi verður með aðsetur í
þekkingarsetrinu Nýheimum, Höfn í Hornafirði.
Nýheimar er nýleg, sérhönnuð bygging þar sem
lögð er áhersla á að innleiða nýja hugsun, tækni
og vinnubrögð í menntun, menningarmálum,
þróunarstarfi og nýsköpun, sem nýtist við styrkingu
menningar og atvinnulífs svæðisins.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og
starfsreynslu, auk meðmæla sendist til
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Skúlagötu 4,
101 Reykjavík.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknafrestur er til 30. apríl 2006.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Arason,
sigurjon@rf.is, sími 5308600
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er sjálfstæð ríkisstofnun
sem starfar samkvæmt lögum 64/1965 um rannsóknir í
þágu atvinnuveganna og heyrir undir
sjávarútvegsráðuneytið. Stefna Rf er að auka verðmæti
sjávarfangs með rannsóknum, þróunarvinnu, miðlun
þekkingar og ráðgjöf. Sérfræðisvið Rf eru m.a.
vinnslutækni, líftækni, efna- og eðliseiginleikar matvæla,
gæði og öryggi sjávarfangs, fóður og fóðurtækni í fiskeldi
og umhverfisrannsóknir.
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Rafvirkjar - vélvirkjar
- áhugaverð störf -
Norðurál á Grundartanga er einn af stærstu vinnustöðum á Vesturlandi og fyrirtækið skipar
öfl ugan sess í samfélaginu. Norðurál leggur ríka áherslu á öryggismál og er ströngum
öryggisreglum fylgt á öllum sviðum starfseminnnar. Um þessar mundir er unnið að
stækkun Norðuráls sem felur í sér að framleiðslugeta álversins verður aukin úr 90.000
tonna ársframleiðslu í 220.000 tonn á þessu ári og í 260.000 tonn árið 2007.
Jafnrétti
Áhersla er lögð á jafna möguleika karla og kvenna
til starfa hjá Norðuráli.
Trúnaður
Við förum með umsókn þína og allar persónulegar
upplýsingar sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum
verður svarað.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 430 1000.
Við óskum eftir að ráða rafvirkja í vaktavinnu og
vélvirkja í dagvinnu. Um er að ræða fjölbreytt og
krefjandi störf á ört vaxandi vinnustað.
Umsækjendur þurfa að hafa sveinspróf í faginu og
a.m.k. tveggja ára starfsreynslu.
Hvenær þurfum við að fá umsókn þína?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína sem fyrst
en í síðasta lagi 28. apríl. Þú getur sótt um á
vef fyrirtækisins, www.nordural.is eða póstlagt
umsóknina merkta: Atvinna.
Starfsmenn
óskast til starfa við ræstingar á sjúkradeildum.
Starfshlutföll 100%. Unnið frá kl. 9-17, vaktavinna.
Einnig óskast starfsmenn við ræstingar á opnum
svæðum, starfshlutföll 100%. Unnið virka daga frá kl.
8-16 eða 9-17. Umsóknir berist fyrir 1 mai nk. til
Sóldísar Loftsdóttur, ræstingastjóra, ræstimiðstöðvar
við Hringbraut og veitir hún jafnframt upplýsingar í
síma 824 5750, netfang soldis@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í
störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali -
háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.