Fréttablaðið - 15.04.2006, Blaðsíða 12
15. apríl 2006 LAUGARDAGUR
opið alla laugardaga 10-14
STÓR HUMAR
GLÆNÝ LÚÐA
SKÖTUSELUR-LAXAFLÖK-TUNFISKUR
HÖRPUSKEL-RÆKJUR-FISKISUPA
SIGINN FISKUR OG SALTADAR KINNAR
■ SUNNUDAGUR, 9. APRÍL
Það sem okkur er hjart-
fólgnast
Verðbólgudraugurinn er kominn á
kreik og hagfræðimenntaðir
draugabanar og hvers kyns exors-
istar þylja mergjaða kafla úr
Mammonsguðspjallinu frá morgni
til kvölds. Allir eru sammála um
að verðbólguskriða fari af stað ef
laun verða hækkuð við þann hóp í
þjóðfélaginu sem fær innan við
150 þúsund krónur á mánuði.
Verðmætamat þjóðfélagsins er
afareinfalt svo að sá sem velur sér
láglaunastarf getur sjálfum sér
um kennt.
Við tímum ekki að borga fólki
stórfé fyrir að annast foreldra
okkar eða börnin okkar.
Samt erum við alls ekki nísk.
Við erum vægast sagt rausnarleg
þegar kemur að því að hygla ein-
hverjum fyrir að annast það sem
okkur er hjartfólgnast, sem sé
fjármálin, peningana okkar.
Fólk sem skilur peninga getur
skammtað sér launin sjálft – og
fengið bónus að auki.
Fólk sem bara kann einfalda
hluti eins og að annast börn og
gamalmenni og talar aðeins
mannamál en ekki fjármál getur
ekki ætlast til hárra
launa.
Fjármál heitir það
tungumál sem okkar
þjóðfélag hefur valið
sér og þeir sem ekki
kunna sína eigin þjóð-
tungu verða útundan.
Og ef maður fer að væla
kemur verðbólgudraug-
urinn og brýtur mann á
bak aftur með því að
hækka vextina á verðtryggða lán-
inu og sendir svo á mann lögfræð-
ing sem fer með mann á nauðung-
aruppboð og gerir mann ráðþrota
og gjaldþrota og tekur af manni
húsnæðið og bílinn og kreditkortið
og makann og rekur foreldra
manns út af elliheimilinu og börn-
in út af dagheimilinu og sendir
manni uppsagnarbréf.
Svona er þjóðfélagið okkar. Og
svona eru draugarnir sem við ótt-
umst.
Þess vegna skulum við vera
stillt og fara í einu og öllu eftir því
sem Mammonsprestarnir segja
okkur að gera.
■ MÁNUDAGUR, 10. APRÍL
Berlusconi og
„litla afmánin“
Spennandi að
fylgjast með
ítölsku kosning-
unum. Í fyrstu
útgönguspám
var Prodi
spáð örugg-
um sigri en
síðan hefur
Berlusconi
verið að saxa á
forskotið.
Nú hefði
kannski
ein-
hver haldið að Ítalir væru búnir að
fá nóg af Íslandsvininum Berlus-
coni. En það virðist ekki vera
raunin.
Ítalir hafa löngum haft húmor
fyrir dálítið sérstæðum landsfeðr-
um, og þá á ég ekki bara við Múss-
ólíni sáluga sem þeir fengu reynd-
ar leið á um síðir og hengdu upp á
löppunum, heldur er ég að hugsa
um snillinga á borð við þá frænd-
ur Caligula og Neró og marga
skrautlega í kjölfar þeirra allt til
Rómúlusar Ágústusar sem upp-
nefndur var Ágústúlus eða „litli
kútur“.
Grikkir sneru reyndar Rómúl-
us upp í Momylos sem þýðir „litla
afmánin“ en Rómúlus þessi lifir í
sögunni vegna þess að hann var
síðastur Rómarkeisara því að
árið 476 kom forfaðir
okkar Íslendinga, her-
úlinn Ódóvakar og
gerði við hann starfs-
lokasamning, þá flutti
„litla afmánin“ Rómúlus í sumar-
bústaðinn sinn og fór að stunda
skógrækt.
Flinkir sagnfræðingar hafa
margsannað að Íslendingar séu
komnir af herúlum og þar er ekki
leiðum að líkjast. En þrátt mildi
sína og þá víðsýni sem Ódóvakar
sýndi með því að finna upp starfs-
lokasamninginn biðu hans voveifl-
eg endalok því að einn góðan
veðurdag kom austgot-
inn Þjóðrekur og klauf
hann í herðar niður í
bókstaflegri merk-
ingu.
Þær einföldu
aðferðir við stjórn-
arskipti sem hér
hafa verið nefndar
tíðkast ekki lengur
á Ítalíu svo að maður
verður að bíða enn
um hríð áður en í ljós
kemur hvort Berlus-
coni fær reisupass-
ann.
■ ÞRIÐJUDAGUR, 11. APRÍL
Rannsóknarblaðamennska á
refilstigum
Þeir eru enn að gera það gott á
DV. Í dag er á forsíðunni risastór
mynd af eiturlyfjasjúklingi sem
tekinn var fyrir það gáfulega til-
tæki að sækja vímugjafann sinn
til útlanda og ætla síðan að spáss-
era rammskakkur fram hjá toll-
vörðunum í Leifsstöð.
Til að gera þessa tragedíu
skemmtilegri er líka birt mynd af
föður sjúklingsins á forsíðunni.
Þetta sýnist mér vera nýmæli í
fréttamennsku. Það virðist ekki
lengur vera nóg af birta myndir af
þeim sem grunaðir eru um afbrot
heldur er líka farið að slá upp
myndum af aðstandendum þeirra.
Það verður býsna athyglisvert
innlegg í íslenska fjölskyldu-
albúmið þegar maður getur farið
að klippa út myndir af foreldr-
um, börnum, frændum og
frænkum þeirra sem mis-
stíga sig, og kannski líka
vinum þeirra
Fjármál, mannamál og hrossamál
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um fjármál, mannamál og hrossamál,
rætt um Ódóvakar, forföður Íslendinga, sem fann upp starfslokasamninga og
varað við tilraunum láglaunafólks til að vekja upp
verðbólgudrauginn.
Kæra
Dagbók
Þráinn Bertelsson skrifar