Fréttablaðið - 15.04.2006, Blaðsíða 4
4 15. apríl 2006 LAUGARDAGUR
EFTIRLAUNAFRUMVARP Í álitsgerð um
breytingar á eftirlaunafrumvarp-
inu svokallaða, sem forsætisráðu-
neytið óskaði eftir, segir að ekki sé
heimild fyrir því í lögum að skerða
virk réttindi þeirra sem þegar hafa
hafið töku eftirlauna á grundvelli
þeirra laga sem samþykkt voru í
desember 2003.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra hefur lagt til að þverpól-
itísk samstaða náist um málið með
því að afgreiða nýtt frumvarp, á
grundvelli álitsgerðarinnar, úr for-
sætisnefnd. Halldór kynnti tillögur
að breytingum á frumvarpinu fyrir
formönnum allra stjórnmálaflokk-
anna skömmu fyrir jólin.
Jónína Bjartmarz, fulltrúi
Framsóknarflokksins í forsætis-
nefnd, segir framgang breytinga á
eftirlaunafrumvarpinu stöðvast
hjá stjórnarandstöðunni. „Vilji
Halldórs er alveg ljós. Hann hefur
látið vinna lögrfræðilega álitsgerð
og frumvarp í samræmi við það og
lengra hefur málið ekki komist hjá
stjórnarandstöðunni.“
Rannveig Guðmundsdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar og
annar tveggja fulltrúa flokksins í
forsætisnefnd, segir Halldór
Ásgrímsson hafa kynnt breytingar
á frumvarpinu fyrir nefndinni.
„Frumvarpið hefur verið kynnt
fyrir okkur í nefndinni. Hann fékk
ýmsar ábendingar um breytingar á
frumvarpinu þegar rætt var við
formenn stjórnmálaflokkanna
fyrir jólin. Síðan hefur ekkert
heyrst um málið. Það er ekki hjá
forsætisnefnd heldur er það hjá
Halldóri Ásgrímssyni forsætisráð-
herra. Hann ræður för.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, segir
vilja vera til þess hjá flokksfólki í
Samfylkingunni að breyta núver-
andi lögum. „Við viljum að breyt-
ingarnar séu gerðar þannig að þær
nái til allra þeirra sem fengu ríku-
legan eftirlaunarétt þegar síðast
var gerð á því breyting. Það þýðir
að breytingarnar, sem við leggjum
til að verði gerðar, nái til þess hóps
sem þegar er farinn að njóta góðs
af núverandi lögum.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs, segir vilja vera
fyrir því innan síns flokks að
breyta eftirlaunafrumvarpinu.
„Við erum að sjálfsögðu tilbúin til
þess að taka á því að menn geti
ekki bæði verið á eftirlaunum og
fullum launum. Það hefur ekki
mikið verið aðhafst í þessu máli.
Ég tel að það sé hægt að ganga
hreinlegar til verks en það þarf að
fara vandlega yfir allar breytingar
á þessu frumvarpi.“
Samkvæmt lögunum hafa fyrr-
verandi ráðherrar og alþingismenn
rétt á eftirlaunum úr ríkissjóði ef
þeir hafa náð 65 ára aldri, hætta
störfum 60 ára aldri eða hafa gegnt
starfi í sextán ár eða lengur, óháð
því hvort þeir eru að þiggja laun
fyrir önnur störf.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra boðaði fyrir um ári síðan
að lögunum um eftirlaun ráðherra
og þingmanna yrði breytt en
harkalega var deilt um lögin á
Alþingi og meðal almennings, er
þau voru til umfjöllunar.
Sátt náðist um það innan allra
stjórnmálaflokka að þessu ákvæði
í lögum um eftirlaun forseta
Íslands, ráðherra, alþingismanna
og hæstaréttardómara skyldi
breyta. magnush@frettabladid.is
Vorblót er ný tónlistarhátíð.
Þar finnur þú jazz, funk,
heimstónlist og
óuppgvötaðar leiðir.
www.riteofspring.is
27.-30. apríl
Á NASA við Austurvöll.
Miðaverð á hverja tónleika er 2.900 kr
(auk 225 kr miðagjalds)
Miði á alla hátíðina kostar 5.900 kr
(auk 400 kr miðagjalds).
Miðasala í verslunum Skífunar, BT
Akureyri & Egilstöðum og á www.midi.is.
Bandaríkjadalur 75,27 75,63
Sterlingspund 132,03 132,67
Evra 91,37 91,89
Dönsk króna 12,244 12,316
Norsk króna 11,671 11,739
Sænsk króna 9,804 9,862
Japanskt jen 0,6369 0,6407
SDR 108,64 109,28
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 11.4.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
127,8039
UPPLÝSINGATÆKNI Ísland er breið-
bandsvæddasta land heims. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar,
OECD.
Samkvæmt skýrslunni voru í
desember síðastliðnum 26,7 pró-
sent heimila í landinu með breið-
bandstengingu. Þetta hlutfall er
næsthæst í Suður-Kóreu, eða 25,4
prósent, þá í Hollandi, 25,3 pró-
sent, og í Danmörku 25,0 prósent.
Bandaríkin eru í tólfta sæti list-
ans með 16,8 af hundraði heimila
breiðbandstengd, en þar í landi
eru 31 prósent af öllum breið-
bandstengingum í heiminum.
- aa
Ný skýrsla OECD:
Ísland er breið-
bandsvæddast
HEILBRIGÐISMÁL Óhöpp, óvæntur
skaði og mistök verða í heilbrigð-
isþjónustu og er ein af mörgum
ástæðum þess er skortur á mann-
afla, segir í greinargerð sem Sig-
urður Guðmundsson landlæknir
hefur sent frá sér. Þar fjallar hann
um umræddan skort á hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum, meðal
annars á Landspítala háskóla-
sjúkrahúsi.
„Skortur á þessum stéttum hér
á landi og í ýmsum öðrum löndum
hefur verið langvinnur og land-
lægur,“ segir landlæknir í grein-
argerðinni. Hann segir að það hafi
komið fram að mælt vinnuálag á
LSH hafi aukist, starfsfólk sinni
veikari sjúkling-
um en áður og
þekkt séu dæmi
um að starfsmenn
á einni deild hafi
þurft að bæta við
sig og deila með
sér um 50 auka-
vöktum á mánuði.
„Ljóst er að efla
þarf nám í hjúkrun, grunnnám og
framhaldsnám. Landlæknisemb-
ættið er að vinna að yfirliti um
hjúkrunarskortinn og mögulegar
úrlausnir sem kynntar verða heil-
brigðisráðherra,“ segir enn frem-
ur. „Skortur á hjúkrunarfræðing-
um og sjúkraliðum getur haft
áhrif á gæði heilbrigðisþjónustu
og dregið úr öryggi sjúklinga.“- jss
SIGURÐUR GUÐ-
MUNDSSON
Sigurður Guðmundsson landlæknir um afleiðingar hjúkrunarskortsins:
Óvæntur skaði og mistök
HJÚKRUN Landlæknir segir unnið að yfirliti
um hjúkrunarskort og úrlausnir á honum.
Samstaða hefur ekki náðst
Forsætisráðherra hefur boðað breytingar á eftirlaunafrumvarpinu á grundvelli lögfræðilegrar álitsgerðar.
Ekki hefur enn náðst samstaða um málið. Halldór Ásgrímsson ræður för, segir Rannveig Guðmundsdóttir.
FRUMVARPINU MÓTMÆLT
Mikil reiði braust út meðal
almennings þegar lög um
eftirlaun æðstu starfsmanna
ríkisins voru samþykkt á
Alþingi. Hér sjást mótmæl-
endur fyrir framan Alþingis-
húsið.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÍKNARMÁL Mette-Marit, krónprins-
essa Noregs, hefur verið skipuð
sérlegur sendiherra áætlunar Sam-
einuðu þjóðanna gegn útbreiðslu
HIV. Þetta tilkynnti skrifstofa SÞ í
Genf í dymbilvikunni.
Prinsessan hyggst sérstaklega
vekja athygli almennings á hlut-
skipti ungs fólks sem sýkt er af
HIV. Henni er í mun að draga úr
fordómum gagnvart HIV-smituð-
um. Hún hefur áður lagt baráttu
gegn HIV-smiti lið í gegnum
þróunaraðstoðaráætlun Noregs,
meðal annars í Malaví. - aa
Krónprinsessa Noregs:
Leggur baráttu
gegn HIV lið
METTA-MARIT KRÓNPRINSESSA Ásamt
eiginmanninum, Hákoni krónprins.
VILNIUS, AP Lítill vinstriflokkur
hefur yfirgefið samsteypustjórn-
ina í Litháen en við það minnkar
þingmeirihluti stjórnarinnar niður
í einn mann. Nýi sambandsflokkur-
inn sleit stjórnarsamstarfinu eftir
að þingmenn ráku leiðtoga hans,
Arturas Paulauskas, úr embætti
þingforseta vegna ásakana um að
starfslið hans hefði misfarið með
opinbert fé. Í hans stað hefur Vikt-
oras Muntianas, þingmaður Verka-
mannaflokksins, verið kosinn þing-
forseti.
Jafnaðarmannaflokkurinn,
Verkamannaflokkurinn og Bænda-
flokkurinn hafa ákveðið að stjórn-
in sitji áfram þótt þeir ráði yfir
naumum meirihluta, 71 af 141 þing-
sæti. - aa
Kvarnast úr Litháensstjórn:
Meirihlutinn
minnkar í einn
RANNVEIG GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
Segir frumvarpið hjá
forsætisráðherra og
hann ráði för í málinu.
JÓNÍNA BJARTMARZ
Hún segir framgang
frumvarpsins hafa
stöðvast hjá stjórnar-
andstöðunni.
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
Segir vilja hjá flokks-
félögum að breyta
núverandi lögum.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON Telur að
það sé hægt að ganga
hreinlegar til verks en
fara þurfi vandlega yfir
allar breytingar.