Fréttablaðið - 15.04.2006, Blaðsíða 78
15. apríl 2006 LAUGARDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
NÚNA BÚIÐ
opið alla laugardaga 10-14
NÝR ÞORSKUR
LÍNUÝSA
BLEIKJA
SALTFISKUR
gleðilega páska
opið í dag 10-14
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Tökur á Mýrinni, sem byggir á
samnefndri bók metsöluhöfundar-
ins Arnaldar Indriðasonar, eru nú
í fullum gangi og á undan áætlun
að sögn Baltasars Kormáks, leik-
stjóra og höfundar myndarinnar.
„Við erum nú að byrja á fjórðu
viku og gerum ráð fyrir að ljúka
tökum í annarri viku eftu páska.
Myndin verður síðan fullbúin í
haust og tilbúin til sýningar í
íslenskum kvikmyndahúsum,“
segir Baltasar. „Allt hefur gengið
vonum framar og fólk tekið okkur
opnum örmum hvar sem við
komum. Við höfum verið að taka
upp á Landspítalanum, Íslenskri
erfðagreiningu, lögreglustöðinni,
í Norðurmýrinni og hér og þar á
Suðurnesjum. Ætla má að vin-
sældir bókarinnar hjá landanum
hafi eitthvað að segja um þessar
hlýju móttökur en kvikmynda-
handritið er trútt efnistökum bók-
arinnar enda þótt ýmsu þurfi auð-
vitað að breyta og öðru að bæta til
að verkið sé hæft í kvikmynda-
formi.“
Ingvar E. Sigurðsson, Björn
Hlynur Haraldsson, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Ágústa Eva Erlends-
dóttir eru í stærstu hlutverkunum
en heimildir Fréttablaðsins herma
að fleiri hafi bæst í hópinn og
jafnvel verði nýjum persónum
bætt við. „Ef ég læt eitthvað uppi
hef ég kippt ansi stórri stoð undan
spennufaktornum. Það er ýmis-
legt sem mun vonandi koma
skemmtilega á óvart þegar mynd-
in verður frumsýnd hér heima í
haust,“ segir Baltasar að lokum.
Nýjar persónur í Mýrinni
MÝRIN Í FULLUM GANGI Tökur á kvikmyndinni Mýrinni ganga mjög vel og eru á undan
áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ / HEIÐA
Stefán Pálsson gerir kosningabaráttu Framsóknarflokksins að umtalsefni
á heimasíðu sinni. Þar minnist hann
þess að Björn Ingi hafi í prófkjörsbaráttu
sinni forðast að nefna nafn flokksins í
auglýsingum sínum og bara talað um
að vera í fyrsta sæti í Reykjavík. „Um
helgina mátti sjá fyrstu stóru blaðaaug-
lýsingar Framsóknarmanna í Reykjavík
fyrir kosningarnar. Í ljós kemur að þar er
sama stefna og hjá Binga í prófkjörsbar-
áttunni; að fela nafn Framsóknarflokks-
ins. Þannig er auglýst undir slagorðinu
„Exbé“...,“ skrifar Stefán. „Ætli það sé
gaman að vera í forsvari fyrir stjórn-
málaflokk og þurfa að sitja á fundi með
ráðgjöfum frá auglýsingastofum sem
útskýra að flokkurinn sé svo hataður og
fyrirlitinn að best sé að fela nafn hans,“
bætir Stefán við. Ekki stóð á viðbrögð-
unum frá leiðtoga B-listans í Reykjavík
því Björn Ingi skrifar í athugasemdum á
heimasíðu Stefáns: „Skýringin á exbé og
B-listanum er ekki jafn dramatísk og þú
gefur í skyn eða vilt vera láta minn kæri.
Staðreyndin er sú að í borgarstjórnar-
kosningunum hefur
verið rík hefð fyrir því
að auðkenna fram-
boðin með listabók-
staf,“ skrifar Björn
og bætir við að þetta
hafi gefist vel í tilfelli
framsóknarmanna
t.d. í kosningunum
1982, 1986 og
1990. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fyrsta plata nýbakaðs sigurvegara Idol – Stjörnuleitar, Snorra Snorrasonar,
er væntanleg í byrjun júní á vegum
Senu. Platan mun innihalda bæði frum-
samin og endurgerð lög. Bíða margir
spenntir eftir því að heyra hvort hann
nái að fóta sig í hinum harða tónlistar-
heimi. Fyrsta Idol-stjarnan, Kalli Bjarni,
virðist hafa fallið í gleymskunnar dá og
óttast einhverjir að eins muni fara fyrir
Snorra ef hann heldur ekki rétt á spil-
unum. Á meðal fleiri titla
frá Senu í sumar er ný
plata frá Friðriki Ómari
og Guðrúnu Gunnars-
dóttur og platan
Þögn frá Láru
Rúnarsdóttur auk
þess sem fyrsta
hljóðversplata
Jet Black Joe í 12
ár, Full Circle, er
væntanleg í lok
þessa mánaðar.
Fyrirtækið CCP, sem framleiðir
tölvuleikinn EVE-Online, hefur selt
dreifingarréttinn á leiknum til
Kína.
Gangi leikurinn vel þar í landi
mun CCP fá hluta af þeim tekjum
sem koma þar inn við áskrift. „Það
skiptir okkur máli að þetta gangi vel
og þetta verður líka að ganga vel til
að allir hagnist,“ segir Magnús
Bergsson, markaðsstjóri CCP. Hann
segir að unnið hafi verið að samn-
ingum í eitt ár áður en hann gekk í
gegn.
„Við byrjuðum á því að fara til
Kína á sýningu þar sem við sýndum
leikinn á mjög stórri tölvusýningu.
Við þóttumst vera stórir karlar til
að vekja áhuga kínversku aðilanna
og það gekk upp,“ segir Magnús og
bætir við: „Þetta er í rauninni annar
vestrænni leikurinn sem fer inn í
Kína með þessum krafti því hingað
til hafa þeir bara verið með kín-
verska eða kóreska leiki. Það er allt
öðruvísi kúltúr í kringum leikina í
Asíu heldur en í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Frægir bandarískir leikir
hafa ekki gengið í Kína en Eve getur
passað hvar sem er, það er það góða
við hann,“ segir hann.
Hinn vestræni leikurinn sem
hefur fallið í kramið hjá Kínverjum
nefnist World of Warcraft og er fjöl-
notendaleikur eins og EVE-Online
og sá stærsti í heiminum með fimm
milljónir áskrifenda. Áskrifendur
að EVE eru aftur á móti enn sem
komið er 120 þúsund talsins. Þrátt
fyrir það segir Magnús að leikurinn
sé stærstur í heimi ef miðað er við
hversu margir notendur geti spilað
hann á sama tíma. Sjálfur leikja-
heimurinn sé sem sagt stærri en í
nokkrum öðrum tölvuleik.
Starfsmenn CCP eru að nálgast
hundraðið en tölvukerfi leiksins er
staðsett í London. Segir Magnús það
tæknilega mjög flókið að geta leyft
svo mörgu fólki að spila í einu og
því hafi það ekki gengið upp að reka
slíkt kerfi á Íslandi.
Hann bætir því við að mikil vinna
hafi farið í að þýða leikinn fyrir kín-
verskan markað. „Einhver talaði um
að það væru um 250 þúsund orð í
leiknum. Við þurftum að þróa tól og
tæki til þess að gera leikinn tilbúinn
til þýðingar og nú ætti að verða mjög
einfalt að þýða hann yfir á önnur
tungumál,“ segir Magnús og nefnir
Þýskaland sem næsta markaðs-
svæði EVE-Online. freyr@frettabladid.is
CCP SEMUR VIÐ KÍNVERJA: DREIFINGARSAMNINGUR Í HÖFN
EVE passar hvar sem er
EVE-ONLINE Tölvuleikurinn EVE-Online virðist vera að slá í gegn um allan heim.
HRÓSIÐ
...fær Kjarvalsstofa sem stendur
fyrir tónlistarhátíð í Borgarfirði í
sumar og hyggst fá hljómsveitina
Belle & Sebastian til að leika þar.
LÁRÉTT:
2 dýpi 6 einnig 8 sefa 9 hamfletta
11 tveir eins 12 áloxíð 14 útisalerni
16 kusk 17 líða vel 18 kærleikur 20
skyldir 21 rétt.
LÓÐRÉTT:
1 hróss 3 bogi 4 land 5 mál 7 þrúgu-
sykur 10 geislahjúpur 13 tunnu 15
flokka 16 loka 19 tveir eins.
LAUSN:
LÁRÉTT: 2 dýpt, 6 og, 8 róa, 9 flá, 11
ll, 12 súrál, 14 kamar, 16 ló, 17 una, 18
ást, 20 dð, 21 satt.
LÓÐRÉTT: 1 lofs, 3 ýr, 4 pólland, 5 tal,
7 glúkósa, 10 ára, 13 ámu, 15 raða, 16
lás, 19 tt.
Hauskúpur eru vinsælar
í dag. Jón Sæmundur í
Dead á eflaust heiðurinn
af því.
Páskaegg gerð úr dökku
súkkulaði eru holl og
góð og halda hjartanu
í formi.
Umhverfismál koma öllu hugsandi
fólki við.
Nagladekk
eiga að vera
farin af götun-
um fyrir 15. apríl.
Berlusconi á
fangelsisvist skilið.
Franskar kartöflur
bera ekki nafn með
rentu enda uppruna-
lega frá Belgíu.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 Þeir starfa við Mið-sænska
háskólann í Östersund.
2 Þröstur Leó Gunnarsson og
Elva Ósk Ólafsdóttir.
3 Chelsea.