Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 69
FIMMTUDAGUR 20. apríl 2006 53
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
17 18 19 20 21 22 23
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Margrét Bóasdóttir söng-
kona flytur 10 Biblíuljóð eftir tékk-
neska tónskáldið Antonin Dvorák
á dagskrá Kirkjulistahátíðar í
Seltjarnarneskirkju ásamt Hrefnu
Eggertsdóttur píanóleikara.
20.00 Graduale Nobili heldur
tónleika í Langholtskirkju. Á efn-
isskránni eru Maríuverk - íslensk
og erlend. Stjórnandi er Jón
Stefánsson.
20.00 Kvartett Sigurðar
Flosasonar heldur útgáfutónleika
ásamt Kristjönu Stefánsdóttur á
Jazzhátíð í Garðabæ. Tónleikarnir
verða haldnir í sal Tónlistarskóla
Garðabæjar í Kirkjulundi 11.
21.00 Djasskvartettinn
Skófílar spilar á Kaffi Kúltúr í
Alþjóðahúsinu. Aðgangseyrir 1000
kr.
21.15 Ragnheiður og Haukur
Gröndal leika íslensk þjóðlög í
nýjum útsetningum á Jazzhátíð í
Garðabæ. Tónleikarnir verða haldnir
í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í
Kirkjulundi 11.
22.00 Hljómsveitin Fræ heldur sína
fyrstu tónleika á skemmtistaðnum
Sirkus við Klapparstíg.
■ ■ OPNANIR
Harpa Hrund Njálsdóttir opnar
sýninguna Hvað er einn litningur
á milli vina? og sýnir fallegar og
skemmtilegar ljósmyndir af börnum
með Downs-heilkenni á Veggnum
á 1. hæð, framan við myndasal
Þjóðminjasafnsins.
■ ■ SKEMMTANIR
Hammond-hátíð verður sett á
Djúpavogi, fjölbreytt dagskrá alla
helgina.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
15.00 Síðasta sýningarhelgi á
verkum finnsku listakonunnar Elinu
Bortherus, Þórs Vigfússonar og
Rúríar í Gerðasafni. Leiðsögn verð-
ur um sýninguna á sumardaginn
fyrsta kl. 15 en sýningum lýkur á
sunnudag.
■ ■ UPPÁKOMUR
14.00 Dagskrá í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi.
Dúó Stemma flytur nokkur
lög, Berglind Gunnarsdóttir
les eigin ljóð og Helga Pálína
Brynjólfsdóttir sýnir silkisjöl.
15.00 Fjölskyldudagur í
Minjasafninu á Akureyri. Fjölbreytt
dagskrá fyrir alla aldurshópa.
11.00 Sungið og leikið á
Þjóðminjasafni Íslands. Opið hús
verður allan daginn og fjölbreytt dag-
skrá fyrir fjölskyldur, blöðrur og sum-
argjafir. Opið frá 11-17 og aðgangur
ókeypis.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Sumarið er lögformlega komið og
með síhækkandi sól rennur upp
hláturtíð í Borgarleikhúsinu. Til
stendur að kæta geð leikhúsgesta
með ýmsum hætti en í næstu viku
hefst dagskráin með pompi og
prakt með sérstakri opnunarhátíð.
Í tilefni þessa koma meðal annars
gestir frá Leikfélagi Akureyrar og
sýna gamanleikinn Fullkomið
brúðkaup, farsinn Viltu finna
milljón? verður frumsýndur og
helstu grínarar landsins munu
troða upp á Stóra sviðinu.
Á opnunarhátíðinni verður
opnuð skopmyndasýninga á verk-
um Hugleiks og Sigmund og mun
Ilmur Stefánsdóttir myndlistar-
kona taka lagið með hljómsveit
sinni og sýna ýmsa gjörninga/hluti
sem fjöllistahópurinn CommonN-
onsense hefur búið til. Allur ágóði
af opnunarhátíðinni rennur síðan
til Umhyggju - félags til stuðnings
langveikum börnum.
Leikarar úr Leikfélagi Reykja-
víkur verða með óvænta uppákomu
sem tengist gömlum áramóta-
skaupum Sjónvarpsins og mun
félagið einnig etja kappi við Leik-
félag Akureyrar í keppninni um
Bananabikarinn í leikhússport-
keppni. Borgarleikhúsið mun líka
standa fyrir sérstöku hláturnám-
skeiði í umsjón Ástu Valdimars-
dóttur í tengslum við hátíðina.
Tenórinn, hin vinsæla sýning Guð-
mundar Ólafssonar verður sýnd á
ný á Litla sviðinu og leikritið Belg-
íska Kongó eftir Braga Ólafsson
verður sýnt á Nýja sviðinu en sýn-
ingin er að ljúka sínu þriðja leik-
ári fyrir fullu húsi. -khh
Hýrna brár landans
ÓVÆNTAR UPPÁKOMUR OG ENDURKOMUR
Í BORGARLEIKHÚSINU Guðmundur Ólafs-
son fer á kostum í Tenórnum.