Fréttablaðið - 08.05.2006, Blaðsíða 8
8 8. maí 2006 MÁNUDAGUR
��������������������������
�������������������
�������������������������������������������������������
�������������������������������� ��������������������������������������������� ������������������������
������������������������������� �� ������������
��������������������������������������������������������������������������������������� ���������������������
���������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
��������������������������������������������������������������������������� ����������������������������� ����������������
��������������� ����� ����������������������������������
������������������������������������������������������
���������������������������������������������������
����������������������� �������������������������� ����
��������������������� �������������������������������
���������������������������������
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað heitir stjórnarformaður Stoke City?
2 Hvaða íslenski óperusöngvari syng-ur fyrir Benedikt XVI páfa innan
skamms?
3 Í hvaða eldfjalli vex „uggi“ um metra daglega?
SVÖR Á BLS. 38
FJÁRBÚSKAPUR Sauðburður stendur
nú víða sem hæst, jafnt hjá frí-
stundabændum sem fagmönnum.
Þessar ungu húsvísku dömur hafa
að undanförnu komið daglega í
fjárhús Aðalsteins Á. Baldursson-
ar, formanns Verkalýðsfélags
Húsavíkur, og tveggja félaga hans
á Húsavík en saman halda þeir 35
kindur sér til gagns og gamans.
Sauðburður hefur gengið vel
þar á bæ og stúlkurnar fjórar
verið duglegar að hjálpa til við
búskapinn. - kk
Frístundabændur á Húsavík:
Sauðburðurinn
gengur vel
BÚSKAPARLEGAR Ragnhildur Hreiðarsdótt-
ir, Hlíf Sigurpálsdóttir, Auður Gauksdóttir
og Elfa Guðmundsdóttir aðstoða daglega
við sauðburðinn.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Ný íbúasam-
tök voru stofnuð í Mosfellsbæ í
gærkvöld en markmiðið með
þeim er að standa vörð um Varmá
og nærumhverfi hennar frá upp-
tökum til ósa.
„Byggð og stórar umferðar-
brautir eru að hellast yfir okkur í
Mosfellsbæ og það mun ganga
nærri Varmá, menningarsögu-
legum stöðum og dýrmætum úti-
vistarstöðum,“ segir Berglind
Björgúlfsdóttir einn forsvars-
manna samtakanna. „Sérstak-
lega er það fyrirhuguð tengibraut
frá Vesturlandsvegi og að Ála-
fossvegi sem við höfum áhyggjur
af,“ bætir hún við.
Einnig munu samtökin berjast
fyrir auknu íbúalýðræði, upp-
byggingu útivistar- og íþrótta-
svæða við Varmá og að lífgað
verði upp á bæjarlífið með úti-
mörkuðum og menningartengd-
um atburðum. - jse
Ný íbúasamtök í Mosfellsbæ:
Vilja vernda
Varmá
ÞJÓNUSTA Fjarskiptafyrirtækið
Hive býður nú upp á heimasíma-
þjónustu og segir í tilkynningu frá
fyrirtækinu að með því sé boðuð
aukin samkeppni á fjarskipta-
markaði.
Hive heimasíminn er almenn
símaþjónusta þar sem viðskipta-
vinum býðst að hringja frítt í alla
heimasíma og ódýrar í farsíma.
Auk þess segir í tilkynningunni að
hægt sé að hringja á 75 til 93 pró-
senta lægra verði til útlanda.
Hive notast við nýjustu kyn-
slóð fjarskiptakerfa sem byggja á
IP tækni og eru að sögn mun hag-
kvæmari í uppbyggingu og
rekstri. -sh
Ný heimasímaþjónusta Hive:
Boða aukna
samkeppni
DANMÖRK Matareitranir verða
sífellt algengari í Danmörku og
segja matvælasérfræðingar
ástæðuna vera aukinn innflutning
á kjötvörum. Enda sé hærra hlut-
fall af innfluttu kjöti sýkt af salm-
onellu og kamfílobakteríu en það
danska.
Samkvæmt frétt Politiken í
gær er tíu sinnum algengara að
salmonella finnist í útlensku kjúkl-
ingakjöti en innlendu. Hefur inn-
flutningur á fiðurfénaði aukist um
rúm fimmtíu prósent síðastliðin
tvö ár. Segir einn viðmælenda
blaðsins að efla verði matvælaeft-
irlit í landinu af þessum sökum
enda séu mun færri sýni tekin úr
innfluttu kjöti en dönsku. Á síð-
asta ári dóu tuttugu Danir vegna
salmonellusýkingar.
Ráðherra neytendamála segir í
viðtali við blaðið að eftirlit verði
aukið ef sérfræðingar mælist til
þess. Hann segir að nú þegar hafi
verið gripið til ráðstafana vegna
aukins innflutnings.
Samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un sem gerð var meðal starfsfólks
í dönskum matvælafyrirtækjum
telur sjötíu prósent svarenda að
eftirlit með matvælum hafi
versnað síðustu ár. - ks
Danir vilja efla eftirlit með innfluttum matvælum, einkum fuglakjöti:
Matareitranir æ algengari
MANNLÍF Á STRIKINU Tuttugu Danir létust
af völdum salmonellusýkingar í fyrra.
Liggur ekkert á með Nato Forseti
finnska þingsins, Paavo Lipponen, telur
að Finnum liggi ekkert á að gera upp
hug sinn varðandi inngöngu í Nato. „Við
verðum að hugsa um öryggi þjóðarinnar
og taka ákvörðun sem byggist á breiðri
samstöðu,“ segir hann í finnlands-
sænska blaðinu Hufvudstadsbladet.
FINNLAND
DANMÖRK Áttatíu og fimm ára
gamall maður á Jótlandi keyrði
fyrir slysni á konuna sína á laug-
ardag. Hafði konan farið út úr
bílnum til að vísa manninum í
stæði þar sem honum gekk illa að
leggja. Vildi ekki betur til en svo
að maðurinn rann til á kúpling-
unni og keyrði á konuna. Klemmd-
ist hún milli bílsins og húsveggs
og fótbrotnaði illa.
Voru þau bæði lögð inn á
sjúkrahús enda fékk maðurinn
taugaáfall í kjölfar slyssins. - ks
Alvarlegt bílslys á Jótlandi:
Keyrði óvart á
eiginkonu sína
Nýr formaður Framfaraflokksins
Framfaraflokkurinn hefur fengið nýjan
formann. Nýi formaðurinn heitir Siv
Jensen og var hún kjörin formaður á
landsþingi flokksins um helgina með
öllum atkvæðum nema einu. Hún tekur
við formennsku af Carl I. Hagen.
NOREGUR
SVÍÞJÓÐ Prófessor í blaðamennsku
við Háskólann í Jönköping, Lars-
Åke Engblom, segir að gríðarleg-
ur áhugi sé á útrás Fréttablaðsins
og 365 sem fyrirtækis í Svíþjóð.
Sænskir útgefendur fylgist grannt
með þróun mála og hringi í sig
nær daglega til að fá upplýsingar
um Fréttablaðið og þróunina á
Íslandi.
Lars-Åke er hér á landi á sjöttu
ræðismannaráðstefnu utanríkis-
ráðuneytisins og hefur notað tæki-
færið til að kynna sér stöðuna á
fjölmiðlamarkaði en hann stendur
meðal annars að útgáfu bókar um
norrænan fjölmiðlamarkað á
næstunni. Sérkafli verður um
Fréttablaðið og 365.
„Bókin mun heita Þróunin á
norrænum fjölmiðlamarkaði. Í
henni verða fjórir til fimm stórir
kaflar og einn þeirra mun fjalla
um það sem gerist á Íslandi, tilurð
Fréttablaðsins og þýðingu ókeypis
dagblaða með áherslu á Frétta-
blaðið,“ segir hann.
Á hinum Norðurlöndunum
fylgjast menn með þróuninni á
Íslandi af miklum áhuga, ekki
bara í Danmörku þar sem fyrir-
hugað er að setja á stofn svipað
blað og Fréttablaðið heldur líka í
Svíþjóð og Noregi. Sérstaklega
hafa menn áhuga á viðskiptamód-
elinu, að dreifa blaðinu til allra
heimila og gefa það út sjö daga
vikunnar.
„Það er mikill áhugi meðal
sænskra blaðaútgefenda. Þeir
horfa spenntir og að vissu leyti
undrandi á það sem er að gerast á
Íslandi. Þeir eru farnir að hafa
mjög mikinn áhuga vegna þess að
ef það heppnast vel í Danmörku
þá er ekki stórt skref að stíga til
Svíþjóðar ef eigendur Fréttablaðs-
ins vilja koma blaði á fót í stór-
borgum Svíþjóðar. Þetta getur
haft áhrif á allan dagblaðamark-
aðinn í Svíþjóð,“ segir Lars-Åke.
Lars-Åke hefur búið og unnið á
Íslandi og fylgist vel með því sem
gerist hérna. „Ég fæ næstum dag-
lega símtal frá sænskum blaðaút-
gefendum sem hafa áhuga á að
vita hvað sé eiginlega að gerast
hér. Menn hafa líka áhuga á því að
vita hvers vegna Morgunblaðið
hefur svona marga áskrifendur þó
að Fréttablaðið hafi haslað sér völl
og hvert samspilið er milli Frétta-
blaðsins og Morgunblaðsins,“
segir hann.
„Hver er munurinn á innihald-
inu í Morgunblaðinu og Frétta-
blaðinu? Af hverju hefur fólk
áhuga á að lesa ókeypis dagblað og
kaupa samt áskrift að hefðbundnu
dagblaði?“ - ghs
Svíar eru spenntir
fyrir Fréttablaðinu
Sænskur prófessor segir að gríðarlegur áhugi sé á Fréttablaðinu og útrásinni
til Danmerkur í Svíþjóð. Útgefendur hringi nær daglega til að fá upplýsingar.
Prófessorinn er hér á ræðismannaráðstefnu utanríkisráðuneytisins.
LARS-ÅKE ENGBLOM Í Svíþjóð verður á næstunni gefin út bók um norrænan fjölmiðla-
markað. Sérkafli verður um Fréttablaðið og þróunina á Íslandi. Lars-Åke Engblom er pró-
fessor við Háskólann í Jönköping. Hann segir að Svíar hafi mikinn áhuga á útrás Dagsbrún-
ar til Danmerkur og útgáfu nýja blaðsins þar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN