Fréttablaðið - 08.05.2006, Blaðsíða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
02
61
11
/2
00
5
Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans.
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina
sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og
fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að
eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma
410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is
Fasteignalán
Við hjálpum þér
að eignast
draumaheimilið
Fjögurra herbergja parhúsaíbúð á
vinsælum stað í Salahverfi er til sölu
hjá Neteign.
Um er að ræða 145,8 fermetra íbúð í stein-
teyptu parhúsi sem byggt var 1995. Inni í
fermetratölunni er 33.1 fermetra innbyggð-
ur bílskúr. Húsið er nýlega málað að utan,
sólpallur er sunnan við það og lóðin er vel
hirt.
Komið er inn í forstofu með fallegum
skápum, flísar eru á gólfi og halogenlýsing
í lofti. Sjónvarpshol er rúmgott með flísum
á gólfi. Mikil lofthæð er í holinu þar sem
birta berst frá tveimur þakgluggum. Gegn-
heilar kirsuberjainnréttingar eru í eldhús-
inu, keramikhelluborð og stálháfur. Flísar
eru á milli efri og neðri skápa og uppþvotta-
vél og ísskápur fylgja með kaupum. Borð-
krókur er við stóran glugga. Stofan er rúm-
góð og björt með flísum á gólfi og halogen
lýsingu í lofti. Gengið er úr stofunni út í
garð sem er viðhaldslítill. Baðherbergið er
flísalagt í hólf og gólf. Þar er ágæt innrétt-
ing ásamt sturtu, baðkari og glugga.
Herbergin eru þrjú, í þeim er parkett á
gólfi og úr hjónaherberginu er gengið út á
pall. Rúmgott þvottahús er inn af sjón-
varpsholi og gengið er út í bílskúr frá
þvottahúsinu. Geymsluloft er yfir hluta
hans.
Húsið stendur við Fjallalind í Kópavogi
en sú gata var valin fegursta gatan þar í
bæ árið 2005. Þaðan er stutt í alla þjónustu.
Ásett verð á íbúðina er 47.900.000 krónur.
Góð eign við fegurstu
götu Kópavogs
Húsið er snoturt og garðurinn léttur í hirðingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVAGÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
8. maí, 128. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.36 13.24 22.14
Akureyri 4.06 13.09 22.15
FASTEIGNASÖLUR
Ás 8-11
Árborgir 33
Búmenn 29
Búseti 28
Byggð 30
Draumahús 19-22
Eignaumboðið 33
FMG fasteignasala 14
Gloria Casa 32
Hof 29
Húseign 26
Höfði 6
Lundur 12
Lögmenn Suðurlandi 18
Neteign 28
Nýtt 30
Perla 31
Remax Mjódd 15
Saga fasteignir 18
Valhöll 16
BORGARSTJÓRA HEFUR
VERIÐ FALIÐ AÐ KANNA
HUGMYND MINJAVERNDAR
OG ÞYRPINGAR UM AÐ FLYTJA
ÁRBÆJARSAFNIÐ ÚT Í VIÐEY.
Borgarráð Reykjavíkur fól
Steinunni Valdísi Óskars-
dóttur borgarstjóra að vega
og meta kosti og galla þess
að flytja Árbæjarsafnið út í
Viðey. Þetta er gert í kjölfar
hugmyndar Minjaverndar
og Þyrpingar um flutning á
safninu. Borgarstjóri ætlar
að fela sérstökum starfshópi
að vinna að greinargerð um
málið en hópurinn er skipað-
ur sex af æðstu stjórnendum
borgarinnar.
Fram kemur í tilkynningu
frá Reykjavíkurborg að farið
verði ítarlega yfir tillögur
Minjaverndar og Þyrpingar.
Fjallað verður um þær út frá
áhrifum á starfsemi og rekstur
Borgarminjasafns, varðveislu
eldri bygginga ásamt áhrifum
tillagnanna á Reykjavík sem
útivistar- og ferðamannaborg.
Einnig verður lagt mat á fjár-
hagsleg áhrif fyrir sveitarfé-
lagið og hugsanlega byggð á
núverandi safnasvæði í Árbæ.
Árbæjarsafn í Viðey
HERRAGARÐS- OG
HERTOGASTÍLL
Fornmunir, danskir og
franskir, fást í Antik-
sölunni í Skúlatúni
HÚS O.FL. 2