Fréttablaðið - 08.05.2006, Blaðsíða 4
4 8. maí 2006 MÁNUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofn-
un hefur nú fengið nýtt hlutverk
og á meðal annars að fylgjast með
því að farið sé eftir lögum á vinnu-
markaði. Stofnun hefur heimild til
að keyra saman gögn hinna ýmsu
stjórnvalda til að sinna eftirlitinu.
Gissur Pétursson forstjóri segir
að stofnunin leiti til aðila vinnu-
markaðarins, til dæmis samráðs-
nefndar ASÍ og SA, og hugsanlega
lögreglu ef grunur vakni um að
útlendingar séu ekki með lág-
markslaun. Að öðru leyti haldi
verkalýðshreyfingin áfram sínu
starfi á vinnumarkaðnum.
Atvinnurekendur eiga nú að til-
kynna um ráðningu erlendra
starfsmanna af EES-svæðinu og
geta gert það rafrænt á vef Vinnu-
málastofnunar. Þeir verða að gera
það innan tíu daga frá því ráðning
átti sér stað. Íslensk kennitala við-
komandi starfsmanns verður að
liggja fyrir þegar ráðning er til-
kynnt.
Ráðningarsamningur verður að
fylgja tilkynningunni og er sóst
eftir upplýsingum um ráðningar-
kjör, fyrst og fremst þeirri krónu-
tölu menn fá í laun, að sögn Unnar
Sverrisdóttur, lögfræðings hjá
Vinnumálastofnun, þannig að
hægt sé að fylgjast með því hvort
farið sé eftir lögum um lágmarks-
laun.
Íbúar í öllum ESB-ríkjunum
geta komið hingað til lands og leit-
að sér að vinnu í sex mánuði. Innan
þriggja mánaða verða þeir að
sækja um EES-dvalarleyfi. Sam-
tímis hefur verið og verður að
mestu skrúfað fyrir vinnuafl frá
þriðju ríkjunum, til dæmis frá
ríkjum Asíu.
Atvinnuleyfum til íbúa nýrra
aðildarríkja ESB hefur fjölgað
verulega frá því í september á síð-
asta ári og má jafnvel tala um að
flóð hafi orðið eftir að stjórnvöld
ákváðu að einfalda afgreiðslu
atvinnuleyfa, að sögn Gissurar
Péturssonar, forstjóra Vinnumála-
stofnunar.
Samtals voru gefin út 3.965
atvinnuleyfi í fyrra. Ríflega 2.100
atvinnuleyfi voru gefin út síðustu
fjóra mánuði ársins og komu 84
prósent þeirra í hlut nýju ríkjanna
innan ESB en sextán prósent í hlut
ríkja utan ESB.
Gissur telur að eftirspurnin sé
að ná toppi. Nú fari að sjá fyrir end-
ann á framkvæmdum á Kárahnjúk-
um og á næstu vikum nái fólksþörf-
in á Reyðarfirði hámarki.
Umsóknum frá ríkisborgurum
þriðja ríkis hefur að öllu jöfnu
verið hafnað hér á landi frá því í
september nema um sé að ræða
fjölskyldutengsl eða aðstæður kalli
á tímabundið atvinnuleyfi. Þar má
því segja að um mismunun sé að
ræða. ghs@frettabladid.is
Samfélag í
Reykjavík
Við vinstri-græn lítum svo á
að þátttaka sé lykillinn að
lýðræðislegu samfélagi.
Þess vegna viljum við
tryggja aðgengi allra að
samfélaginu á forsendum
hvers og eins.
Gott samfélag þarf á
öllum að halda.
Kjósum til vinstri í vor.
Þorleifur Gunnlaugsson
skipar 3. sæti
LÖGREGLUMÁL Skáli skátafélagsins
Hraunbúa í Krýsuvík brann til
kaldra kola um níuleytið í gær-
morgun. Vegfarandi tilkynnti um
brunann til lögreglu.
Þegar lögreglumenn bar að
garði skömmu síðar blöstu við
þeim rjúkandi rústir. Tildrög
brunans liggja ekki fyrir og er
málið í rannsókn hjá lögreglu.
Grunur leikur á að eldur hafi verið
borinn að skálanum. - æþe
Grunur um íkveikju í Krýsuvík:
Skáli brann til
kaldra kola
RAFRÆN TILKYNNING Vinnuveitendum er skylt að tilkynna ráðningu erlends borgara til
Vinnumálastofnunar og er hægt að gera það á rafrænu formi. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi nýlega. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Lögregla verður sett
í mál launasvikara
Vinnumálastofnun á að fylgjast með því að lög séu ekki brotin á útlendingum á
vinnumarkaði. Ef grunur kemur upp getur hún sent málið til lögreglu.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 05.05.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 71,70 72,04
Sterlingspund 132,61 133,25
Evra 90,92 91,42
Dönsk króna 12,19 12,262
Norsk króna 11,687 11,755
Sænsk króna 9,744 9,80
Svissneskur franki 58,21 58,53
SDR 106,1 106,74
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
126,0492
520
459
61
NÝ TÍMABUNDIN LEYFI ÁRIÐ 2005
Skipting milli nýrra
ESB/EES-landa
J F M A M J J Á S O N D
Nýju ríkin
Önnur ríki
Alls
638
787
149
ATVINNULEYFI 2005
Skipting milli nýju
aðildarríkja ESB
Pó
lla
nd
Le
tt
la
nd
Té
kk
la
nd
Ei
st
la
nd
U
ng
ve
rj
al
an
d
Li
th
áe
n
Sl
óv
ak
ía
Sl
óv
en
ía
36 17 13 212 299 2.147 127 4
RANNSÓKN Samkvæmt nýrri viða-
mikilli rannsókn sem Barnavernd-
arstofa og Rannsóknir og greining
kynntu á föstudaginn kemur fram
að kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum er fátíðara en áður hefur
verið talið.
Niðurstöður rannsóknarinnar,
sem var gerð í öllum framhalds-
skólum landsins árið 2004 og bygg-
ist á svörum tæplega ellefu þús-
und nemenda, gefa til kynna að
átta til níu prósent barna að með-
altali hafi verið beitt kynferðis-
legri misnotkun. Þetta er töluvert
minna en áður hefur verið haldið
fram í umræðunni, eða um sautján
prósent.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, telur niður-
stöður þessarar rannsóknar áreið-
anlegri en þær sem áður hafa
komið fram. Úrtakið sé stórt og
tölurnar séu á svipuðu reiki og í
öðrum sams konar rannsóknum á
Norðurlöndunum. Bragi segir
jafnframt að tölurnar sem hafa
verið í umræðunni, komi úr tíu ára
gamalli rannsókn sem hann telur
að hafi rannsakað málefnið út frá
víðara sjónarmiði. Þar hafi við-
mælendur verið á fullorðinsaldri
og frekar verið að kanna hvort
fólk hafi orðið fyrir kynferðislegri
áreitni frekar en beinu kynferðis-
legu ofbeldi. - æþe
Ný rannsókn um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum:
Misnotkun minni en talið var
DÓMSMÁL Maður á sextugsaldri
var í Héraðsdómi Norðurlands í
gær sýknaður af ákæru um að
hafa grýtt chiuaha hvolpi í vegg
með þeim afleiðingum að hvolpur-
inn hálsbrotnaði og drapst.
Maðurinn var ákærður fyrir
eignaspjöll og brot gegn dýra-
verndunarlögum en þverneitaði
að hafa skaðað hundinn og sagði
hann hafa troðist undir þegar
verið var að vísa gestkomandi
manni á dyr.
Atburðalýsing kæranda átti sér
ekki stoð í framburði annarra og
taldist því ósannað að maðurinn
hefði drepið hundinn.
- sh
Maður á sextugsaldri:
Sýknaður af
hvolpsdrápi
NÝ RANNSÓKN Hún bendir til að færri börn
verði fyrir kynferðisofbeldi en áður var talið.
Myndin er úr barnahúsi í Texas.
SJÁVARÚTVEGUR Vinnslustöðin ætlar
að vera áfram skrásett í Kauphöll
Íslands þótt eignarhald í félaginu
sé þröngt og viðskipti með hluta-
bréf þess lítil. „Þar birtist ekki
vandi Vinnslustöðvarinnar sem
slíkrar heldur sjávarútvegsins í
heild sinni,“ sagði Gunnar Felix-
son, stjórnarformaður á aðalfundi
Vinnslustöðvarinnar.
Stjórnendur Vinnslustöðvar-
innar hafa tekið þá ákvörðun að
rjúfa krosseignartengsl við Stillu
sem fer með fjórðungshlut í
Vinnslustöðinni.
Tap félagsins á fyrstu þremur
mánuðum ársins nam 107 milljón-
um króna samanborið við 459 millj-
óna króna hagnað í fyrra. Veiking
krónunnar kom illa við fjármagns-
liði sem voru neikvæðir um hálfan
milljarð króna. - eþa
Vinnslustöðin áfram skráð:
Rjúfa eignar-
tengsl við Stillu
SVÍÞJÓÐ Litháar fá líklega ekki að
taka upp evruna frá og með næsta
ári þó að þeir uppfylli öll önnur skil-
yrði Myntbandalags Evrópu. Vefút-
gáfa Dagens Industri segir að þar sé
verðbólgunni í Svíþjóð óbeint um að
kenna.
Þegar land er tekið í Myntbanda-
lag Evrópu má verðbólgan ekki að
vera hærri en meðaltal þeirra
þriggja landa sem eru með lægstu
verðbólguna. Hún var 2,63 prósent
2005-2006. Verðbólgan í Litháen er
2,7 prósent og þyrfti því að vera 0,7
prósentustigum lægri til að þeir
fengju að taka upp evruna. - ghs
Verðbólgan í Svíþjóð:
Engin evra í
Litháen
Heróíndauði þrettán ára pilts
Bandarískt par hefur verið ákært vegna
þess að þrettán ára piltur lést af völdum
of stórs skammts af heróíni. Pilturinn
fékk að gista heima hjá bróður konunn-
ar í Shelton í Connecticut á föstudaginn.
Hann fannst látinn daginn eftir.
BANDARÍKIN
ÍRAK, AP Tugir manna fórust í
sprengjuárásum í Írak í gær. Bíl-
sprengja sprakk við rútustöð í
hinni helgu borg Karbala og lést
þar 21 og 52 slösuðust, allt óbreytt-
ir borgarar. Ekki er vitað hverjir
stóðu fyrir tilræðinu en súnníar
hliðhollir al-Kaída hafa áður beint
spjótum sínum að sjíum sem búa í
borginni.
Þá fórust átta manns þegar
uppreisnarmaður ók bíl sínum,
fylltum sprengiefni, að lögreglu-
varðstöð í Bagdad. Á laugardag
fórust fimm Bretar með herþyrlu
sem var skotin niður yfir Basra og
kom til mikilla óeirða í borginni í
kjölfarið. - gb
Mannskæðar sprengjuárásir:
Tugir manna
fórust í gær
SORG Í ÍRAK Þessi kona fórnaði höndum
eftir að bílasprengja sprakk í Karbala.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP