Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 10
12. maí 2006 FÖSTUDAGUR
Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri býður upp á nám til B.Sc.
gráðu í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfunarfræði.
Hjúkrunarfræði: Markmið námsins er að búa nemendur undir að gegna
almennum hjúkrunarstörfum svo og stjórnunar- og fræðslustörfum á flestum
sviðum heilbrigðisþjónustu. Námið skiptist í raunvísindi, hug- og
félagsvísindagreinar og hjúkrunarfræðigreinar. Klínískt nám hefst strax á
fyrsta ári, fer fram víða um land og tekur samtals 24 vikur.
Iðjuþjálfunarfræði: Háskólinn á Akureyri er eini íslenski háskólinn sem býður
upp á nám í iðjuþjálfunarfræði. Markmið námsins er að búa nemendur undir
fjölbreytt störf sem iðjuþjálfar í heilbrigðis- og félagsþjónustu, skólakerfinu og
á almennum markaði. Námið skiptist í raunvísindi, hug- og
félagsvísindagreinar, heilbrigðisvísindi og iðjuvísindi. Vettvangsnám er 25
vikur.
„Á háskólasvæðinu á Sólborg er sérstök álma fyrir verklegt nám í
heilbrigðisvísindum. Húsnæðið er ríkulega búið tækjum sem notuð eru við
kennslu og er aðstaða fyrir nemendur eins og hún gerist best.“
Persónulegt umhverfi – góð tengsl milli nemenda og kennara
Verkefnavinna – bæði hópverkefni og einstaklingsverkefni
Frábær aðstaða – nýlegt húsnæði fyrir verklega kennslu
Spennandi valkostur
B.SC. Í HJÚKRUNARFRÆÐI OG
IÐJUÞJÁLFUNARFRÆÐI www.unak/heilbrigdisdeild
Umsóknarfrestur
er til 5. júní.
Umsóknareyðublöð,
námsskrá og
kynningarefni eru
aðgengileg á
www.unak.is.
HM-GRILLTILBOÐ
Við höldum með þér!
Char-Broil Seguia gasgrill
+ kassi af Carlsberg léttöli
+ kippa af 2 lítra Coke + kassi af Prins Polo
27.900,-
Verð áður 34.900,-
Char-Broil CB gasgrill
+ kassi af Carlsberg léttöli
12.900,-
Verð áður 16.900,-
Við færum þér grillið samsett heim og losum þig
við gamla grillið. Léttgreiðslur Visa og Euro
í 2 til 6 mánuði.
HM-tilboðið gildir til 9. júní eða á meðan birgðir endast.
Heimsending gildir fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og Akureyri.
Permasteel gasgrill
+3 mánaða áskrift að SÝN
79.900,-
4.650
,-
léttgr
eiðslu
r í 6 m
ánuð
i
13.31
7,-
léttgr
eiðslu
r í 6 m
ánuð
i
2.150
,-
léttgr
eiðslu
r í 6 m
ánuð
i
LAGERSALA
50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLU !
OPIÐ 11-19
FELLSMÚLA 28
(GAMLA WORLD CLASS HÚSINU)
FRAKKLAND, AP Pólitíska hneykslis-
málið, sem varð til þess að Jacques
Chirac forseti taldi sig í vikunni
þurfa að lýsa yfir fullu trausti sínu
til forsætisráðherrans Dominiques
de Villepin, teygir anga sína víða
um franska stjórnkerfið.
Málið snýst um það að grunur
hefur leikið á því að Dominique de
Villepin forsætisráðherra hafi í
janúar árið 2004 látið njósna um
Sarkozy innanríkisráðherra, hugs-
anlega í þeim tilgangi að grafa upp
einhver óhrein leyndarmál sem
gætu spillt fyrir framboðsáhuga
innanríkisráðherrans.
Villepin harðneitar þessum
ásökunum, en orðrómurinn hefur
engu að síður orðið til þess að grafa
undan Villepin og nú er nánast ekk-
ert orðið úr áformum hans um að
bjóða sig sjálfur fram til forseta-
embættisins.
Nógu slæmt var ástandið fyrir
hjá Villepin eftir að hann varð að
láta undan kröfum stúdenta og
verkalýðshreyfingarinnar um að
hætta við breytingar á vinnulög-
gjöfinni í vetur, þótt þessar ásak-
anir hefðu ekki bæst við.
Villepin hefur hins vegar skýrt
frá því að hann hafi beðið Philippe
Rondot, reyndar yfirmann úr leyni-
þjónustunni, um að kanna hvað
hæft væri í ásökunum um spillingu
í tengslum við sölu á frönskum her-
skipum til Taívans árið 1991.
Árið 2004 fékk dómari, sem
einnig var að rannsaka þennan
sama viðskiptasamning, sendan
lista með nöfnum á fólki, sem sagt
var hafa hagnast á þessum við-
skiptum. Meðal þeirra sem þar
voru nefndir er Sarkozy, en dómar-
inn komst á endanum að þeirri nið-
urstöðu að listinn væri falsaður.
Sarkozy telur hins vegar ein-
sýnt að þessi listi hafi verið sendur
dómaranum til þess að eyðileggja
mannorð sitt. Nú stendur yfir áköf
leit að þeim sem sendi nafnalist-
ann. Í franska gríntímaritinu Le
Canard Enchaine er því haldið
fram að hinn seki sé Jean-Lois
Gergorin, aðstoðarframkvæmda-
stjóri EADS, sem framleiðir og
selur bæði flugvélar, vopn og
búnað til geimferða. Gergorin neit-
ar sök, en lét engu að síður af störf-
um hjá EADS nú í vikunni. - gb
Hriktir í stoðum frönsku stjórnarinnar:
Hneykslið teygir
anga sína víða
NICOLAS SARKOZY Innanríkisráðherra Frakklands segir ófrægingarherferð á hendur sér til
þess ætlaða að hann hætti við forsetaframboð á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Guð-
mundur Sævar Guðjónsson, for-
seti bæjarstjórnar Vesturbyggðar,
er ekki á framboðslista D-lista
sjálfstæðismanna og óháðra fyrir
þessar kosningar.
Í hans stað er kominn Jón B. G.
Jónsson yfirlæknir. Að sögn Guð-
mundar Guðlaugssonar bæjar-
stjóra var Guðmundi Sævari boðið
að vera forseti fyrstu tvö árin ef
listinn næði meirihluta en hann
þáði ekki það boð.
Eftir að þetta varð ljóst var til-
kynnt að Úlfar B. Thoroddsen
myndi leiða lista S-lista Samstöðu
þó svo að hann væri flokksbund-
inn í Sjálfstæðisflokknum en Úlfar
er svili Guðmundar Sævars.
Guðmundur Guðlaugsson, sem
var ráðinn bæjarstjóri eftir síð-
ustu kosningar, skipar fjórða sæti
D-listans. - jse
Framboðslistar í Vesturbyggð:
Forsetinn farinn
GUÐMUNDUR SÆVAR GUÐJÓNSSON Forseti
bæjarstjórnar Vesturbyggðar á ekki sæti á
framboðslista D- listans fyrir þessar kosn-
ingar. Eftir að það varð ljóst gekk svili hans
til liðs við S-listamenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI