Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 30
[ ]
Mikið líf er í pólsku búðinni
Stokrotka við Hvaleyrarbraut
þar sem gott úrval er af pólsk-
um mat og sælgæti.
Það er vel við hæfi að í Hafnar-
firði sé starfrækt pólsk búð enda
hefur fjöldi innflytjenda í bænum
aukist síðustu ár og er nú talið að
ríflega þúsund íbúar bæjarins séu
af erlendu bergi brotnir. Stærstur
hluti kemur einmitt frá Póllandi
en einnig er stór hópur fólks frá
Eystrasaltslöndunum, gömlu
Júgóslavíu og Filippseyjum.
Pólska búðin Stokrotka við
Hvaleyrarbraut var opnuð fyrir
tveimur og hálfu ári og selur aðal-
lega pólskar matvörur auk tíma-
rita. Fremur nýlega var opnað eld-
hús í búðinni og er nú hægt að
kaupa sér pólskan mat á mjög
góðu verði. Eigandi staðarins segir
að fólk á öllum aldri heimsæki
búðina, mjög mikið sé af innflytj-
endum sem sæki staðinn en Íslend-
ingar séu farnir að gera það í æ
ríkari mæli.
Lögð er áhersla á persónulega
þjónustu í versluninni og hefur
pólska sælgætið sem selt er í búð-
inni notið mikilla vinsælda. Þá
hefur sérstakur pólskur heilsu-
drykkur einnig slegið í gegn en
hann er aðallega gerður úr gulrót-
um en einnig öðrum ávöxtum. Þeir
sem heimsækja búðina koma aftur
og aftur, enda margt þangað að
sækja.
Komið hefur verið upp íslensk-
um merkingum við vörurnar og
hvetjum við alla til að kíkja í þessa
sérstöku og stórskemmtilegu búð.
Pólska sælgætið vinsælt
Vel er tekið á móti viðskiptavinum Stokrotka.
Notalegt er að setjast niður í Stokrotka og
fá sér pólskan mat.
Mikið og spennandi vöruúrval er í versluninni.
Pólska búðin Stokrotka í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Smákökur eru ekki bara fyrir jólin. Það er gott að hafa
ljúffengt nasl þegar komið er heim úr vinnunni.
ÞAÐ ER HÆGUR VANDI AÐ BÚA TIL
SMJÖR HEIMA.
Börn velta veröld-
inni talsvert fyrir
sér. Hvernig verður
... og hvaðan
kemur...? er algengt
upphaf spurninga-
flóðs sem foreldrar
þurfa að gera
sitt besta við að svara. Ein þess-
ara spurninga gæti verið: Hvernig
verður smjörið til? Því er auðvelt fyrir
mæður og feður að svara og það í
verki. Með því að grípa pela af rjóma,
hella honum í sultukrukku með loki
og hrista síðan vel í talsverðan tíma
geta börnin séð með eigin augum
hvernig þykkfljótandi rjóminn verður
smátt og smátt að smjöri. Þessari
kennslustund er síðan hægt að ljúka
með því að smyrja nýtilbúnu smjör-
inu á lystugt brauð.
Ráð }
Smjör í krukkuLandslið Íslands í uppvaski
lenti í fjórða sæti í Norður-
landakeppni uppvaskara í
Stokkhólmi í lok apríl.
Norðurlandakeppnin fór fram á
Gastronord-sýningunni í Stokk-
hólmi en landsliðið skipuðu
Íslandsmeistarinn Erna Aðal-
heiður Karlsdóttir sem vinnur á
Nordica hotel, Da Chadaporn og
Aron frá Landspítalanum, Bryn-
hildur Magnúsdóttir frá DAS
Hafnarfirði og Hugrún Ólafs-
dóttir frá Alcan. Liðstjóri lands-
liðsins var Þuríður Helga Guð-
brandsdóttir, matartæknir í
Fellaskóla.
Keppnin fór fram 25. apríl og
stóð íslenska liðið sig með prýði
og sýndi fagleg og góð vinnu-
brögð. Úrslitin voru á þá leið að
Finnarhrepptu fyrsta sætið,
Svíar voru í öðru og Danir í því
þriðja. Íslensku uppvaskararnir
lentu í fjórða sætu en þeir voru
samt sem áður með næstfæst
refsistig í keppninni á eftir
Svíum. Norðmenn ráku síðan
lestina í fimmta sæti.
Upplýsingar fengnar af www.
freisting.is
Uppvaskarar í útrás
Vasklegt landslið uppvaskara.
MYND/FREISTING.IS
Ver› fyrir einrétta Ver› fyrir tvírétta
Okkar róma›a humarsúpa 990
Steiktur skötuselur 3.390 4.390
me› hvítvínssósu
Kjúklingabringa 2.950 3.890
,,a la Italiana“
Lambafillet 3.390 4.390
me› sherrybættri sveppasósu
Nautalundir
me› Chateubriandsósu 3.700 4.690
Súkkula›ifrau› 790
Einnig úrval annarra rétta á ,,a la Cartse›li“
~
~
~
~
~
Þriggja rétta matseðill
Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27-29
Borðapantanir í síma 562 1988 • Madonna síðan 1987 • www.madonna.is
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
Kaffihús:
Laugavegi 24
Smáralind
Verslanir:
Kringlunni
Smáralind
Laugavegi 27
Suðurveri
Akureyri
Egilsstöðum
��
��
���
���
��
�
�����������������
�������������
����������������������������������
����������������������