Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 86
12. maí 2006 FÖSTUDAGUR54
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Ef hún blótar á sviðinu
2 Seltjarnarnes og Álftanes
3 Sevilla
Mynd Ólafs Jóhann-essonar, Africa
United, er nú sýnd í
norskum kvikmynda-
húsum. Norðmenn
hafa tekið ágætlega
á móti myndinni
sem var forsýnd
á íslenskri kvik-
myndahátíð í
Cinemateket í
Osló á miðvikudag. Dagblaðið Aften-
posten gefur myndinni fjórar stjörnur af
sex og setur ekkert út á hana nema þá
myndatökuna en myndavélin er sögð
oft vera á mikilli hreyfingu. Aftenposten
tók einnig ágætis viðtal við Ólaf en hann
hefur verið duglegur að kynna myndina
í norskum fjölmiðlum og meðal annars
hefur hann mætt í viðtöl þar sem hann
hefur reynt að halda uppi samræðum
á norsku með misgóðum árangri. Í
viðtalinu í Aftenposten gagnrýnir Ólafur
norska knattspyrnusambandið fyrir að
hafa ekki svarað neinum bréfum en
hugmyndir hafa verið uppi um það að
sambandið gæti hugsanlega nýtt sér
myndina í eigin herferð gegn rasisma.
Fréttablaðið veltir fyrir sér á hvaða
tungumáli bréfið hafi verið skrifað...
Ólafur ætti kannski að senda samband-
inu nýtt bréf og hafa það á ensku, það
væri kannski skiljanlegra.
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT
2 óskiptu 6 hæð 8 sægur 9 yfir rúm
11 frú 12 flott 14 smápeningar 16
nafnorð 17 fjór 18 tunnu 20 golf
áhald 21 gort.
LÓÐRÉTT
1 líkamshluti 3 í röð 4 sendir 5 dýra-
hljóð 7 skemmtun 10 frostskemmdir
13 bein 15 eyja 16 lík 19 tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 öllu, 6 ás, 8 mor, 9 lak, 11
fr, 12 smart, 14 klink, 16 no, 17 fer, 18
ámu, 20 tí, 21 raup.
LÓÐRÉTT: 1 háls, 3 lm, 4 loftnet, 5 urr,
7 samkoma, 10 kal, 13 rif, 15 krít, 16
nár, 19 uu
Eurovision - keppn-in virðist vera
komin í uppnám hjá
Íslendingum en hin
skrautlega persóna
Ágústu Evu Erlends-
dóttur, Silvía
Nótt, hefur
farið mikinn
að undan-
förnu. Eins
og greint var
frá í Frétta-
blaðinu í gær
hótar Samband evrópskra sjónvarps-
stöðva að vísa laginu úr keppni vegna
óviðurkvæmilegs orðalags en textanum
var breytt eftir að hafa verið sendur út til
hinna sjónvarpsstöðvanna og inniheldur
hið vinsæla blótsyrði „fuck.“ Fréttir af
Ólafíu Hrönn og Ingvari E. Sigurðssyni
í hlutverkum Silvíu og Mario vöktu
einnig litla kátínu meðal aðdáenda sem
bauluðu á eftirhermurnar. Gamanið
gæti því heldur verið farið að kárna hjá
Ágústu Evu, Gauki Úlfarssyni og hinum
í Eurovision - hópnum en þau eru nú
stödd í Grikklandi að undirbúa sig fyrir
undankeppnina sem fram fer 18. maí.
Víst er að einn þeirra sem myndi gráta
þurrum tárum yfir brottvísun Silvíu væri
Kristján Hreinsson, Skerjafjarðarskáld,
en hann barðist ötullega fyrir því að
laginu yrði hent út eftir að það lak á
netið þegar undankeppnin fór fram hér
á landi.
Alþjóðlega listasetrið að Eiðum í
eigu Sigurjóns Sighvatssonar á í
samstarfi við Ara Alexander Ergis
Mangússon um gerð hundrað þátta
heimildarmyndaseríu sem byggja
á viðtölum hins heimsþekkta
sýningarstjóra Hans Ulrich Obrist,
við fjölmarga skapandi hugsuði
um víða veröld. Mörg viðtalanna
fara fram að Eiðum en önnur verða
tekin í hinum ýmsu stórborgum
heimsins. Alls hafa um tuttugu
viðtöl þegar farið fram.
Ari Alexander mun leikstýra
þáttunum en hann er einn þeirra
fremstu í sínu fagi hérlendis.
Fréttablaðið tók hann tali og
spurði hann nánar út í þetta
samstarfsverkefni. „Samstarf mitt
með Sigurjóni hefur gengið vonum
framar en við unnum saman að
gerð heimildarmyndarinnar
Gargandi Snilld sem Sigurjón átti
frumkvæði að. Nú leiðum við
hesta okkar aftur saman í mun
stærra verkefni þar sem tónlistar-
fólk, myndlistarmenn, rithöfund-
ar, vísindamenn, málfræðingar
og heimspekingar, allt heimsþekkt
fólk, verður tekið tali af ekki
minni manni en Hans Ulrich
Obrist sem er sýningarstjóri
Nýlistasafnsins í París. Grunn-
hugsunin að baki þáttaröðinni
lýtur að spurningunni, hvað býr
að baki svo skapandi hugsuðum.
Það er einstakur heiður að fá tæki-
færi til að vinna með Ulrich Obrist
og eins að komast í tæri við þá
flóru skapandi fólks sem hann
mun ræða við.“ Meðal þeirra
fjöldamörgu sem rætt verður við
eru, Yoko Ono, Matthew Barney,
Ólafur Elíasson, J.G. Ballard, Mir-
iam Backström, Magnús Blöndal,
Juan Garcia Esquivel og Alain
Robbie-Grillet og Björn Roth.“
Hér eru aðeins sárafáir heims-
þekktir hugsuðir og listamenn
nefndir til sögunnar.
Hver þáttur sem ráðgert er að
framleiða fyrir sjónvarp verður
um tuttugu og sjö mínútur að
lengd, en jafnframt verða viðtölin
birt í fullri lengd á DVD-diskum
eða um níutíu mínútur að lengd,
hvert og eitt þeirra. Verkefnið er
ekki fullfjármagnað en Ari segist
vongóður um að sú hlið gangi fljótt
eftir. „Þetta er langtímaverkefni
sem mun í það minnsta standa yfir
næstu þrjú til fimm árin. „Þessi
þáttaröð er einstök að því leyti að
hún mun veita innsýn í hugarheim
einhverra þekktustu og frumleg-
ustu andans menn samtímans en
það hlýtur að teljast ómetanlegt til
skilnings á þeim tímum sem við
lifum og hrærumst í, bæði fyrir
okkur samtímafólk og þær kyn-
slóðir sem koma munu, segir Ari
að lokum.“ - brb
ARI ALEXANDER: GERIR NÝJA HEIMILDARMYND
Rætt við fræga hugsuði
ARI ALEXANDER Endurnýjar samstarfið við Sigurjón Sighvatsson en þeir gerðu garðinn
frægan með heimildarmyndinni Gargandi Snilld. FRÉTTABLAÐIÐ / VALGARÐ
Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með okkur Íslend-
ingum þegar fyrsta almennilega sólin brýst út. Þá er
eins og við umhverfumst og breytumst í sólarsjúka
einstaklinga enda ekki furða eftir margra mánaða vetur.
Við húkum að sjálfsögðu inni allan veturinn enda nenna
fáir að slappa af úti í hríðinni.
Ég rölti niður í bæ á laugardaginn þegar fyrsti hlýi dagur
sumarsins rann upp. Þá var ansi margt um manninn á
Austurvelli og öll kaffihús borgarinnar sem bjóða upp á
útisetu voru uppfull og einhverra hluta vegna voru allir
með bros á vör og sólgleraugu í stíl. Það er ekki annað
hægt eftir langan áhyggjuvetur en að leggja vandamálin
á hilluna í nokkra daga, setja upp sparibrosið og njóta
við. Það er allavega á hreinu að það er bannað að velta
sér upp úr áhyggjum og standa í veseni í þessa fáu
fallegu daga sem við fáum ár hvert. Það er líka þannig
að á þessum dögum eru allir stemmdir í spjall og heilsa
öllum sem þeir þekkja hið minnsta úti á götu. Hver
haldiði að nenni að stoppa í „small talk“ úti í biluðu
roki við einhvern sem hann var með í barnaskóla?
Það var nefnilega svo krúttlegt að ég varð vitni
að einu svona spjalli þegar ég sat á kaffihúsi
við Austurvöll. Þá var það þannig að ung kona
og maður sátu á sitthvoru borðinu við völlinn.
Svo heilsuðust þau vandræðalega og stuttu
síðar færði ungi maðurinn sig til konunnar. En
hún sat einmitt við hliðina á mér. Hann bauð
henni upp á hvítvínsglas og þau spjöll-
uðu um hvað hefði drifið á daga þeirra
frá því í Hagaskólanum og kjöftuðu
viðstöðulaust í örugglega klukkutíma.
Hann minntist á hversu mikið hún
hefði breyst með árunum og heillaði
hana með ævintýralegum sögum af
ferðalögum sínum og vinnu. Hvort hann
var að spinna veit ég ekki en eitt er víst,
allar konur hefðu bráðnað í stólnum þar
sem hann verður að teljast afar reyndur
og heimsvanur maður. Það skemmtilega við
þetta var að áður en hún þurfti að þjóta í
vinnu bauð hann henni út að borða til að
halda samræðunum áfram. Hún þáði það
og hélt svo brosandi í burtu. Þetta gerði
daginn fyrir mig. Það er bara svo gaman að
vera fluga á vegg og fylgjast með fólki dragast
saman.
Ég held og ég vona að við séum að líkjast örlítið
frændum okkar frá Evrópu. Við erum farin að taka
upp útimenningu þeirra og getum setið tímunum
saman á kaffihúsum og spjallað við aðra en þá
sem eru í innsta hring. Það er nefnilega málið!
Það hefur enginn gaman af því að vera á
endalausum hlaupum og horfa alltaf í hina
áttina til að komast hjá því að heilsa. Ég
ætla að vona að það verði margir sólardagar
í sumar svo við komumst öll á sjéns, en
athugið þó vel hver situr á næsta borði!
REYKJAVÍKURNÆTUR: HARPA PÉTURSDÓTTIR SÉR SJÉNSA Í SUMAR
Sól, sól skín á mig!
HRÓSIÐ
...fær kaffihúsið Hljómalind sem
býður viðskiptavinum upp á
yndislega afslappaða stemningu,
heimilislegar innréttingar,
reyklaust loft og lífrænt ræktaðar
vörur.
Undanúrslitaþáttur Meistarans
var sýndur í gær en þá var það
hún Inga Þóra Ingvarsdóttir sem
lagði Erling Sigurðsson að velli í
ótrúlega spennandi viðureign.
„Þetta kláraðist bara á síðustu
spurningu og var alveg hrikalega
spennandi,“ segir Logi Bergmann
Eiðsson stjórnandi þáttarins. „Við
tókum lokin á þættinum reyndar
upp tvisvar því fyrri hlutinn
klúðraðist eitthvað og við þurftum
að taka stig af Erlingi. En Inga
Þóra tók sig bara til og vann aftur
þannig að niðurstaðan var sú
sama. Það sem gerðist í millitíð-
inni var að Erlingur lagði mikið
undir eina snúna spurningu um
skírnarnafn Freddy Mercury og
flaskaði á því, en hann tók tapinu
afar drengilega eins og allir hafa
gert.“
Í úrslitakeppninni mun Inga
Þóra mæta Jónasi Erni Helgasyni
en hann er yngsti keppandi Meist-
arans. Athygli vekur að þau voru
bæði í Gettu Betur liði Mennta-
skólans við Hamrahlíð. „Inga
Þóra og Jónas virðast bæði vera
mjög sterk á taugum en það er
það sem skiptir einna mestu máli.
Ég er ekki viss um að fólk geri
sér grein fyrir því hversu erfitt
þetta er. Það er meira en að segja
það að gera þetta. Í næstu viku
munum við svo sýna upprifjunar-
þátt þar sem verður farið yfir
undanfarna þætti en úrslitaþátt-
urinn verður svo sýndur á Upp-
stigningardag.“
Inga Þóra sigraði með glæsibrag
INGA ÞÓRA INGVARSDÓTTIR Hún sigraði
í undanúrslitaþætti Meistarans með
glæsibrag og mætir Jónasi Erni Helgasyni í
úrslitaþættinum.
NÝR STÓR
HUMAR
GRILLPINNAR
SIGIN GRÁSLEPPA
��������������
�������
����������
����
����������������
��������������
������