Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 83
LANGLOKURISTSAMLOKURIST
SAMLOKA LANGLOKA
BÁTUR
HAMBORGARI
TORTILLA
SÓMAHORN
PASTABAKKAR
Sómi ehf., Gilsbú› 9, 210 Gar›abæ, sími 565 6000, fax 565 6084, somi@somi.is, www.somi.is
RÆKJUSALAT
ROAST BEEF
SKINKA & SALAT
HANGIKJÖT & SALAT
TÚNFISKSSALAT
HEILSUBITI
KJÚKLINGUR & EGG
KALKÚNN OG TÓMATBRAU‹
ROAST BEEF
KJÚKLINGUR & LÉTTSÓSA
SKINKA, EGG & PÍTUSÓSA
SKINKA, OSTUR & SINNEPSSÓSA
OSTUR, GRÆNMETI & SINNEPSSÓSA
SKINKA, OSTUR & PEPPERONI
KJÚKLINGUR, OSTUR & BEIKON
SKINKA & OSTUR
SKINKA, OSTUR & BEIKON
LÚXUSBORGARI
HAMBORGARI ME‹ OSTI
KJÚKLINGUR
SKINKA
KJÚKLINGUR & PESTO
ROASTBEEF
BACON & EGG
LÚXUS SKINKA & EGG
BIRKIREYKT HANGIKJÖT
KJÖTLOKA ME‹ NAUTAHAKKI OG OSTI
KJÖTLOKA ME‹ NAUTAHAKKI, SVEPPUM & OSTI
SKINKA, ASPAS & BEIKON
REYKT SKINKA & EGG
TIKKA MASALA KJÚKLINGUR
FETAOSTUR & SPÍNAT
FÓTBOLTI Franski varnarmaður-
inn William Gallas vill greinilega
með engu móti vera áfram í her-
búðum Englandsmeistaranna
Chelsea því hann er nú sagður
ætla að kaupa upp samninginn
sem hann hefur við félagið, en
ennþá er eitt ár eftir af honum.
það myndi kosta Gallas fimm
milljónir punda sem hann er þó
tilbúinn að greiða úr eigin vasa,
svo óánægður er hann. Gallas
hefur farið fram á að vera seldur
innan næstu tveggja vikna, ell-
egar grípi hann til eigin ráða.
Gallas lék frábærlega með
Chelsea í vetur og skoraði m.a.
fimm mörk í deildinni. Mörg
stórlið hafa áhuga á að fá varnar-
manninn til sín en Gallas er sagð-
ur vera búinn að útiloka önnur
félög en AC Milan, Juventus og
Barcelona.
John Terry, fyrirliði Chelsea,
vill alls ekki að Gallas fari frá
félaginu. „Hann er búinn að vera
ótrúlegur í ár. Við leikmennirnir
viljum allir að hann verði hér
áfram og ég hef sagt honum það,”
sagði Terry í gær. - vig
William Gallas vill ólmur komast frá Chelsea:
Ætlar að kaupa sig út úr
samningi sínum við félagið
WILLIAM GALLAS Er kominn með nóg af
því að vera Englandsmeistari og vill prófa
sig á Spáni eða Ítalíu.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÖSTUDAGUR 12. maí 2006 51
Deildabikar karla:
FYLKIR-HAUKAR X-X
Mörk Fylkis: Heimir Örn Árnason 8, Eymar Kruger
8, Guðlaugur Arnarson 6, Arnar Sæþórsson 5.
Varin skot: Hlynur Morthens 24.
Mörk Hauka: Andri Stefan 9, Jón Karl Björnsson 9,
Kári Kristjánsson 5, Árni Þór Sigtryggsson 4.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 28.
Haukar unnu einvígið samtals 2-0 og eru deilda-
bikarmeistarar.
Ítalski bikarinn:
INTER-MALMÖ 2-3
1-0 Esteban Cambiasso (6.), 2-0 Julio Cruz (45.),
3-0 Obafeni Martins (77.), 3-1 SC. Nonda (80.).
Inter vann samanlagt 4-2 og er ítalskur bikar-
meistari annað árið í röð.
Meistarakeppni KSÍ - konur:
BREIÐABLIK-VALUR 5-1
1-0 Edda Garðarsdóttir, 1-1 Guðný Óðinsdóttir,
2-1 Vanja Stefanovic, 3-1 Edda Garðarsdóttir, 4-1
Greta Mjöll Samúelsdóttir, 5-1 Vanja Stefanovic.
Sænska knattspyrnan:
DJURGARDEN-MALMÖ 2-3
Emil Hallfreðsson spilaði allan leikinn fyrir Malmö
en Kári Árnason kom inn á sem varamaður á 65.
mínútu fyrir Djurgarden.
HELSINGBORG-HALMSTAD 1-1
Gunnar Heiðar Þorvaldssson spilaði fyrstu 88.
mínúturnar fyrir Halmstad.
HACKEN-AIK 0-1
ELFSBORG-GEFLE 0-1
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HJÁLPARBLOKK Arnar Sæþórsson, línumaður Fylkis, sést hér hindra Kára Kristjánsson,
kollega sinn hjá Haukum, í að ná til Heimis Arnar Árnasonar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
HANDBOLTI Fylkismenn byrjuðu
betur á heimavelli sínum í Árbæn-
um og skoruðu tvö fyrstu mörk
leiksins. Þá vöknuðu Haukar, skor-
uðu fimm mörk í röð, og tóku öll
völd á vellinum. Það gekk illa hjá
Fylkismönnum að brjóta vörn
Hafnfirðinganna á bak aftur og
ekki bætti úr skák að Birkir Ívar
Guðmundsson tók að verja nánast
allt sem á markið kom.
Haukar náðu mest sjö marka
forskoti í fyrri hálfleik, 15-8 en
Fylkismenn voru sterkari á loka-
spretti hálfleiksins og náðu að
rétta úr kútnum, staðan 13-17 í
hálfleik.
Fylkismenn héldu uppteknum
hætti í síðari hálfleik. Þeir byrj-
uðu mjög vel, skoruðu fyrstu fjög-
ur mörkin og jöfnuðu leikinn í 17-
17. Eftir að hafa lent 23-20 undir,
skoruðu Fylkismenn fimm mörk í
röð og komust yfir í fyrsta skipti
síðan í byrjun leiks. Frábær kar-
akter í Fylkisliðinu smitaði út frá
sér og lokamínúturnar voru æsi-
spennandi. Þegar örfáar sekúndur
lifðu leiks gátu Fylkismenn tryggt
sér sigur í stöðunni 28-28, það
tókst ekki og því varð að fram-
lengja leikinn.
Fylkismenn gátu þakkað Hlyni
Morthens, markmanni liðsins,
fyrir að staðan var 29-29 eftir
fyrri hálfleik framlengingarinnar.
Hann varði fjögur skot í henni en
síðari hálfleikurinn var æsispenn-
andi. Staðan var jöfn 31-31 þegar
einn leikmaður Hauka var rekinn
af velli og fimmtán sekúndur eftir.
Birkir Ívar bjargaði þá Haukum
og varði frá Hreini Haukssyni og
tryggði Haukum aðra framleng-
ingu.
Mikið var um mistök á báða
bóga en eftir fyrri hálfleik fyrri
hálfleik, síðari framlengingar
höfðu Haukar einu marki yfir 33-
32. Þegar á hólminn var komið
voru Haukar sterkari og þeir inn-
byrðu að lokum 35-36 sigur.
Hlynur Morthens í marki Fylk-
is gerði sig sekan um slæm mistök
á lokasekúndunum þegar Fylkis-
menn unnu boltann en Hlynur
fann engan samherja til að senda á
og kastaði því boltanum frá sér.
Fyrir vikið náði Fylkir ekki að
byggja upp sókn og Haukar fögn-
uðu sigri.
- hþh
Haukar sigruðu
í háspennuleik
Haukar urðu í gær deildabikarmeistarar karla í
handbolta þegar þeir sigruðu Fylkismenn eftir tví-
framlengdan maraþonleik í Árbænum, 35-36.
MEISTARAR Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir sjást hér með
bikarinn sem Blikastúlkur fengu fyrir sigur á Val í Meistarakeppni KSÍ á milli sín. Breiðablik
burstaði leikinn 5-1 og skoraði Greta Mjöll eitt mark. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR