Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 12. maí 2006 3
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Kartöflur með möndlum og spínati
Hvaða meðlæti á að hafa með grill-
matnum í sumar? Fyrir okkur Íslend-
inga jafnast ekkert á við kartöflur.
Samkvæmt heimildum á Vísindavefn-
um, þá var það árið 1758 að Hastfer
barón á Bessastöðum uppskar fyrstu
„íslensku“ jarðeplin, eins og kartöflur
voru þá nefndar. Hálfri öld seinna má
sjá þess merki að kartöflur eru á góðri
leið með að verða ómissandi matur
á hvers manns borði hér á landi.
Kartöfluréttur sumarsins er auðveldur,
bragðgóður og öðruvísi.
1/2 kg kartöflur
1 rauður laukur (skorinn í þunna
fleyga)
1 hvítlauksgeiri (marinn m. hnífs-
blaði og saxaður)
1 msk. ólífuolía
70 g möndluflögur
1/2 poki ferskt spínat
1/3 dl rjómi
Salt og pipar
1. Þvoið kartöflurnar og skerið þær í
sneiðar.
2. Steikið lauk og hvítlauk í ólífuolíu
á stórri pönnu og setjið möndluflög-
urnar út í þegar laukurinn er orðinn
mjúkur. Steikið áfram dálitla stund
og bætið þá kartöflusneiðunum við.
Snöggsteikið kartöflurnar þar til þær
fá á sig gullinn lit. Setjið þá spínatið
út í og veltið því saman við þar til það
mýkist.
3. Hellið rjómanum þá yfir, blandið
öllu vel saman. Setjið kartöflublönd-
una í eldfast mót og bakið í 190 gráðu
heitum ofni í 20 mínútur.
Ölgerðin hlaut nýlega gullverð-
laun í heimsmeistarakeppni
bjórtegunda þar sem Egils Lite
bjórinn var valinn besti bjórinn
í sínum flokki.
World Beer Cup 2006 keppnin var
haldin fyrr í mánuðinum en þar
hlaut Ölgerðin gullverðlaun fyrir
Egils Lite bjórinn sem hún er með
í framleiðslu. Þetta er í fyrsta
skipti sem Íslendingar komast á
verðlaunapall í þessari keppni
sem að þessu sinni var haldin í
Seattle.
Ölgerðin hlaut gullverðlaun í
flokki kolvetnis-
snauðra léttbjóra eða
American-Style Low-
Carbohydrate Light
Lager. Risabjórfram-
leiðandinn Foster´s
hlaut silfurverðlaun í
sama flokki
Til að hljóta gull-
verðlaun á World
Beer Cup þarf til-
tekinn bjór að telj-
ast framúrskar-
andi fulltrúi í
sínum flokki á
heimsvísu og hafa
til að bera full-
komið jafnvægi í
bragði, ilmi og
útliti. Þessi verð-
laun eru því mikil
viðurkenning
fyrir þróunarstarf
Ölgerðarinnar.
Guðmundur Mar Magnússon,
bruggmeistari Ölgerðarinnar, er
einn af þeim sem unnið hafa að
þróun Lite-bjórsins. Hann segir
verðlaunin vera mikinn heiður.
„Það sem er ólíkt þessari keppni
frá öðrum er að einungis eru veitt
ein gullverðlaun í hverjum flokki,“
segir Guðmundur. „Við vonumst
til að verðlaunin færi Ölgerðinni
aukinn hróður á heimsmarkaði
enda eru þetta nokkuð stór verð-
laun að vinna.“
Lite-bjórinn frá Ölgerðinni
hefur að geyma 29 kaloríur í hverj-
um 100 millilítrum og við þróun
bjórsins var mikið lagt upp úr því
að ná fram fyllingu í lit og bragði
en halda hitaeiningunum í skefj-
um. Því er bjórinn bragðgóður og
fríar neytendur hans undan
áhyggjum af orkuinnihaldi.
Þó mætti kannski halda því
fram að dómararnir hafi fengið
mestu gleðina út úr World Beer
Cup. En 109 manns frá 18 löndum
fengu það skemmtilega verkefni
að dæma 2.221 bjórtegund frá 540
framleiðendum í 56 löndum.
johannas@frettabladid.is
Heimsmeistari bjóra
Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari Ölgerðarinnar, og starfsfólk hans er að vonum
ánægt með árangurinn.
Verðlaunahafinn á
World Beer Cup 2006.
Sætuefnið
Aspartam er
selt undir
nafninu
Nutrasweet
og er tilbúið
efni sem
finnst ekki í
náttúrunni. Það er um 200 sinnum
sætara en venjulegur sykur og á því
byggist notkun efnisins. Aspartam er
búið til úr tveimur amínósýrum en
prótín eru einnig búin til úr amínósýr-
um. Þegar aspartam berst inn í líkam-
ann klofnar það niður í amínósýrurnar
fenýlalanín (um 50%) og aspartínsýru
(um 40%) en þar að auki breytast um
10% efnisins í metanól eða tréspíritus.
Aspartam var sett á markað í
Bandaríkjunum 1981 og fljótlega þar
á eftir í Evrópu og víðar. Það er nú
notað í að minnsta kosti 100 löndum
og hefur því verið notað í stórum stíl
í bráðum 20 ár. Varla hefur nokkurt
aukaefni í matvælum verið rannsakað
eins mikið og aspartam og þessar
rannsóknir halda áfram.
Hvað er }
Aspartam?
300 til 400 grömm þorskur (má vera
annar fiskur)
salt
pipar
1 lárviðarlauf
4 appelsínur
1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
1 msk kapers
söxuð steinselja
Dressing:
1 hvítlauksrif, pressað
1 tsk chilipipar, fínt saxaður
2 msk hvítvínsedik
2 msk ólífuolía
Beinhreinsið fiskinn. Skerið í bita,
setjið vatn í pott með salti, pipar og
lárviðarlaufi. Sjóðið fiskinn í 3 til 4
mínútur. Takið fiskinn úr soðinu og
kælið. Afhýðið appelsínuna, skerið í
þunnar sneiðar.
Hristið saman olíu, hvítvínsedik,
hvítlauk og chilli. Raðið appelsínu-
sneiðunum á disk eða fat, setjið
fiskinn í miðjuna, síðan rauðlauk og
kapers. Hellið dressingunni varlega
yfir, stráið saxaðri steinselju yfir. Þetta
er góður forréttur eða létt sumarmáltið
með nýbökuðum brauðum.
Uppskrift Marentzu }
Léttsoðinn þorsk-
ur á appelsínubeði
Íslandsmeistari
kaffibarþjóna 2006
www.kaffitar.is
IMMA
mælir með
nýrri uppskeru af
KÓLUMBÍU
SUPREMÓ
GUADALUPE
Fæst í öllum
helstu matvöru-
verslunum og
á kaffihúsum
Kaffitárs
• Kringlunni
• Bankastræti
• Þjóðminjasafni
• Stapabraut 7
• Flugstöð Leifs
Eiríkssonar
H
2
hönnun
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
www.aman.is
S. 533 1020