Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 18
Stökktu til
Benidorm
18. eða 25. maí frá kr. 29.995
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til
Benidorm í maí. Þú bókar og
tryggir þér flugsæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú býrð.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í
herb./stúdíó/íbúð. Stökktu tilboð 18.
og 25. maí. Flug, gisting, skattar og
íslensk fararstjórn.
Síðustu sætin
Verð kr. 29.995
Netverð á mann, m.v. hjón með 2
börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð 18.
og 25. maí. Flug, gisting, skattar og
íslensk fararstjórn.
Pitstop – vörubíladekk
Dugguvogi 10 (v/Sæbraut) • 104 R.vík • S: 568 2020
og Hjallahrauni 4 • 220 H.fj • Sími 565 2121
Athugið að vörubílaþjónusta okkar er í Dugguvogi
Við höfum einnig á boð stólum
frábær dekk frá Taurus undir
dráttar- og vinnuvélar
Mjög góð dekk á góðu verði!
Ótrúlegt tilboð á mjög góðum NÝJUM HANKSUGI
vörubíladekkjum 315/80 R22,5 á 9” breiðum stálfelgum.
Aðeins krónur
34.200 + vsk
tilbúin undir bílinn
á felgum.
Við eigum einnig fjölmargar
aðrar stærðir af nýjum
vörubíladekkjum frá
Michelin, Hanksugi
og Kormoran og sóluð
vörubíladekk frá Vulkan á
frábæru verði.
Við geru
m þér
TILBOÐ
SÚPE
R
– þjónusta í fyrirrúmi.
12. maí 2006 FÖSTUDAGUR
KOSNINGAR Mosfellsbær er sjöunda
stærsta sveitarfélag landsins og
bjóða fjórir listar þar fram. Sjálf-
stæðisflokkur hefur setið í meiri-
hluta á kjörtímabilinu. Mikil upp-
bygging á sér stað í sveitarfélaginu
og reiknar bæjarstjóri með að
íbúum muni fjölga úr þeim 7.300
sem þeir eru í dag í tíu þúsund eftir
þrjú ár. Framsóknarflokkur og
bæjarmálafélagið Mosfellingur,
sem Samfylkingin og vinstri grænir
standa að, hafa setið í minnihluta.
Samfylking og vinstri grænir bjóða
nú fram í sitt hvoru lagi.
Allir núverandi minnihluta-
flokkar gagnrýna meirihlutann
fyrir mikla miðstýringu og segja að
ekki hafi verið hlustað á raddir
bæjarbúa. G-listinn og Framsóknar-
flokkur sátu saman í meirihluta á
kjörtímabilinu 1998 til 2002 og tala
oddvitar flokkanna um að viðsnún-
ingur hafi orðið á þróun íbúalýð-
ræðis síðan þá.
Oddviti sjálfstæðismanna hafnar
þessu og vísar til íbúaþings og
hverfafunda sem haldnir voru á
kjörtímabilinu og segir mikið
samráð hafa verið haft við íbúa
bæjarins.
Ágreiningur er á milli flokka um
skipulagsmál og auknar álögur á
kjörtímabilinu gagnrýndar. Oddvitar
Samfylkingar og Framsóknarflokks
telja að það hafi bitnað sérstaklega
illa á barnafjölskyldum í bænum.
Allir flokkar setja málefni fjöl-
skyldna meðal helstu stefnumála í
kosningabaráttunni. Vinstri grænir
og Samfylking vilja gjaldfrjálsa
leikskóla og Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur vilja lækka leik-
skólagjöld þangað til aðkoma ríkis-
valdsins gerir það kleift að þeir
verði gjaldfrjálsir.
Mismikil endurnýjun á sér stað í
efstu fimm sætum listanna. Sama
fólk situr í fjórum efstu sætum D-
lista og nýr kemur í fimmta. Á B-
lista kemur nýtt fólk í 2. til 5. sæti
en oddvitinn sat seinast í þriðja
sæti. Þrír nýir koma inn á V-lista en
oddviti og sá sem skipar þriðja
sætið voru áður á G-lista. Á S-lista
sitja sömu menn í tveimur efstu og
nýtt fólk kemur í næstu þrjú. - sdg
Fjórir framboðslistar í sjöunda stærsta sveitarfélagi landsins:
Fólksfjölgun og uppbygging
MOSFELLSBÆR Mikil uppbygging er í áætlunum bæjarfélagsins og gert ráð fyrir að íbúafjöldi verði kominn upp í tíu þúsund eftir þrjú ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þann 9. ágúst 1987 varð Mosfellshreppur að
bæ og fékk nafnið Mosfellsbær. Sveitarfélagið
er röskir tvö hundruð ferkílómetrar að flatar-
máli. Fjöldi íbúa er 7.157 samkvæmt tölum
Hagstofunnar frá 1. desember 2005. Sjö full-
trúar sitja í bæjarstjórn.
KOSNINGAR 2002
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 4.321
Fjöldi greiddra atkvæða: 3.481 (80,6%)
Fjöldi auðra og ógildra seðla: 75
Listi Framsóknarflokksins (B)
827 atkv., 2 fulltr.
Listi Sjálfstæðisflokks (D)
1.787 atkv., 4 fulltr.
Listi Samfylkingar og vinstri grænna (G)
792 atkv., 1 fulltr.
Bæjarfulltrúar B-listans:
Þröstur Karlsson verslunarstjóri
Bryndís Bjarnarson kaupkona,
Bæjarfulltrúar D-listans:
Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri
Haraldur Sverrisson rekstrarstjóri
Herdís Sigurjónsdóttir meinatæknir
Hafsteinn Pálsson verkfræðingur
Bæjarfulltrúi G-listans:
Jónas Sigurðsson lagerstjóri
KOSNINGAR 2006
B-listi Framsóknarflokks
1. Marteinn Magnússon markaðsstjóri
2. Helga Jóhannesdóttir viðskiptafræðingur
3. Óðinn Pétur Vigfússon grunnskólakennari
4. Halldóra M. Baldursdóttir
aðstoðargæðastjóri
5. Eva Ómarsdóttir háskólanemi
D-listi Sjálfstæðisflokks
1. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri
2. Haraldur Sverrisson bæjarfulltrúi
3. Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi
4. Hafsteinn Pálsson
bæjarfulltrúi
5. Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson vinnumarkaðsfræðingur
S-listi Samfylkingarinnar
1. Jónas Sigurðsson bæjarfulltrúi
2. Hanna Bjartmars Arnardóttir,
myndlistarkona og kennari
3. Anna Sigríður Guðnadóttir
aðstoðarforstöðumaður
4. Baldur Ingi Ólafsson þjónustufulltrúi
5. Óskar Ingi Sigmundsson deildarstjóri
V-listi Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs
1. Karl Tómasson tónlistar- og blaðamaður
2. Bryndís Brynjarsdóttir myndlistarkona
og kennari
3. Jóhanna B. Magnúsdóttir umhverfisráðgjafi
4. Elísabet Kristjánsdóttir kennari
5. Bjarki Bjarnason rithöfundur og kennari
MOSFELLSBÆR
Jónas Sigurðsson bæjarfulltrúi leiðir lista
Samfylkingarinnar. Í síðustu kosningum
buðu Samfylkingin og Vinstri hreyfingin
grænt framboð saman fram undir merkjum
bæjarmálafélags G-listans þar sem Jónas
skipaði efsta sæti. Að sögn Jónasar gekk
samstarfið vel en ákveðið var að bjóða
fram sér núna. „Samfylkingin er það
stór flokkur að okkur þótti sóknarfæri í
að bjóða fram sem slíkir.“ Grunnstefna
Samfylkingarinnar snýr að fjölskyldunni og aðstæðum hennar.
„Við viljum gera leikskóla gjaldfrjálsa í áföngum og hlúa að
stoðþjónustu grunnskólanna.“ Áhersla er einnig lögð á íbúa-
lýðræði. „Við teljum að þróun íbúalýðræðis hafi verið snúið til
verri vegar með mikilli miðstýringu á kjörtímabilinu og viljum
bæta aðbúnað íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun og ákvarð-
anatöku.“ Jónas telur bæjarfélagið hafa mikla möguleika og
mikilvægt að skemma ekki þá möguleika sem bærinn hefur.
Jónas Sigurðsson S-lista:
Létta á barnafólki í bænum
Karl Tómasson, tónlistar- og blaðamaður, er
efsti maður á framboðslista vinstri grænna.
Helstu stefnumál vinstri grænna lúta
að velferðarmálum, skipulagsmálum og
umhverfisvernd. „Við viljum gera leikskóla
gjaldfrjálsa og hafa fríar máltíðir í skólum.“
Einnig eru málefni barnafjölskyldna,
aldraðra og öryrkja í fyrirrúmi að sögn
Karls.
„Við viljum auka ferðamennsku í bænum til muna og losna
við svefnbæjarímyndina,“ segir Karl sem telur þann málaflokk
hafa gleymst hjá bæjaryfirvöldum í gegnum tíðina.
Karl segir skipulagsmálin einnig mikilvæg og að vinstri
grænir vilji byggja upp miðbæjartorg kringum Kjarnann. „Hægt
er að búa þar til torg með gróðri, listaverkum og mannlífi.“
Karl segir mikinn hraða á uppbyggingu í bænum sem sé
eitt logandi sár. „Gæta verður að þessi hraða uppbygging komi
ekki niður á þjónustu við bæjarbúa.“
Karl Tómasson V-lista:
Miðbæjartorg við Kjarnann
Marteinn Magnússon markaðsstjóri leiðir
lista Framsóknarflokks.
B-listinn leggur áherslu á fjölskyldu-
væna fjármálastefnu þar sem álögum og
gjaldtöku verði stillt í hóf. Stefnt er að því
að taka upp frístundagreiðslur til að koma
til móts við foreldra. „Einnig viljum við
tryggja daggæslu frá lokum fæðingar-
orlofs. Með breyttu þjóðfélagi er þetta
eitthvað sem þarf að vera í lagi.“
Álögur hafa stórhækkað á tímabilinu að sögn Marteins.
Tekur hann leikskólagjöld sem dæmi og segir þau hafa hækkað
um fjörutíu prósent. „Við höfum sagt að ekki sé hægt að láta
barnafjölskyldur vera breiðu bökin í samfélaginu.“
Marteinn segir B-lista hafa gagnrýnt það sem hann kallar
óviðunandi vinnubrögð meirihluta í skipulagsmálum og segir
að hagsmunapólitík og spilling verði ekki liðin.
Marteinn Magnússon B-lista:
Fjölskylduvæn fjármálastefna
Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri er
oddviti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið í meiri-
hluta á kjörtímabilinu og setur áframhald-
andi trausta fjármálastjórn í forgang.
Helstu stefnumál lúta að skipulagi, mál-
efnum fjölskyldna og aldraðra.
„Við munum beita okkur fyrir lækkun
leikskólagjalda og forsendur eru fyrir því
vegna þess árangurs sem hefur náðst í
fjármálastjórn bæjarins.“ Að sögn Ragnheiðar hefur fast-
eignaprósenta aldrei verið lægri en nú og fasteignagjöld á
svipuðu róli og hjá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu.
Mikil uppbygging er framundan og fólksfjölgun í samræmi
við það. Vel hefur tekist að skipuleggja þróun þjónustustigs í
samræmi við fjölgun að sögn Ragnheiðar.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir D-lista:
Áfram traust fjármálastjórn
Mosfellsbær
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
2006